Morgunblaðið - 27.07.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.07.2013, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2013 ✝ Guðmundur Á.Auðbjörnsson fæddist á Eskifirði 4. október 1928. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 19. júlí 2013. Hann var sonur hjónanna Mar- grétar Guðmunds- dóttur frá Eski- firði, f. 15.9. 1896, d. 19.12. 1968, og Auðbjörns Emilssonar frá Reykjavík, f. 3.9. 1903, d. 11.5. 1959. Auk Guðmundar eign- uðust þau hjónin soninn Ævar Auðbjörnsson, f. 27.9. 1939. Guðmundur kvæntist 27.9. 1960 Ingunni Valdimarsdóttur frá Eskifirði. Þau eignuðust einn son, Auðbjörn Má Guð- mundsson, f. 23.7. 1960, maki Svanbjörg Pálsdóttir, f. 20.10. 1963. Dætur þeirra: Kristín, f. 15.12. 1987, sambýlismaður er Þór Þormar Pálsson og eiga þau börnin Guðmund Þormar og Angelu; Ester, f. 31.5. 1994 og Eygló, f. 31.3. 1999. Fyrir átti Ingunn synina tvo Sigurð Ómar Jónsson, f. 1.10. 1953 og íbúð, og á efri hæðinni bjó hann fjölskyldu sinni fallegt heimili. Þegar móðir hans féll frá flutti hann málningarvöru- verslun sína heim og rak hana þar um árabil meðfram máln- ingarvinnunni. Guðmundur byrjaði sem ung- lingur að vinna í málningu með föður sínum, sótti sér menntun í Alþýðuskólann á Eiðum og aflaði sér svo meistararéttinda í málaraiðninni frá Iðnskól- anum á Norðfirði og starfaði við greinina í um 70 ár. Hann hélt starfsþreki ótrúlega lengi og síðustu málningarverkin tók hann að sér rúmlega 80 ára gamall. Hann gerði einungis hlé á málningarvinnunni þegar hann rak Shellskálann á Eski- firði í þrjú ár, 1985-1988. Guðmundur var farsæll sveitarstjórnarmaður, en hann var áratugum saman í sveit- arstjórn og síðar bæjarstjórn Eskifjarðar og sat þar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í níu kjörtímabil, eða í 36 ár. Hann bar alla tíð hag Eskifjarðar fyr- ir brjósti og fylgdist vel með og gladdist yfir framförum og öll- um framkvæmdum í bæjarfé- laginu. Hann var einn af stofn- endum Lionsklúbbsins á Eskifirði. Guðmundur verður jarðsung- inn frá Eskifjarðarkirkju í dag, 27. júlí 2013, kl. 14. sem Guðmundur gekk í föðurstað og Gunnar Ómar, f. 14.9. 1957 sem alinn var upp hjá hjónunum Huldu Þorgeirsdóttur og Gunnari Guðjóns- syni. Maki Sig- urðar Ómars er Gyða Bjarnadóttir. Siguður Ómar á þrjá syni úr fyrri hjónaböndum, allir fæddir og búsettir í Kanada. Foreldrar Guðmundar þau Margrét og Auðbjörn bjuggu alla sína búskapartíð í Skálholti við Hólsveg 2 á Eskifirði. Auð- björn starfaði sem mál- arameistari og Margrét rak fata- og gjafavöruverslun um árabil. Guðmundur bjó einnig á Eskifirði alla ævi. Fyrstu bú- skaparárin þeirra Ingunnar leigðu þau hjá Hjalta Guðna- syni vini sínum, síðar byggði Guðmundur stórt og reisulegt hús á grunni æskuheimilisins, Skálholts að Hólsvegi 2. Neðri hæðina útbjó hann fyrir móður sína, bæði fyrir verslun hennar Elsku hjartans Mannsi minn. Ósköp kvaddir þú okkur snöggt. Þótt þú værir gamall að árum varstu svo hress, sístarfandi og til þess að gera nýhættur að vinna sem málarameistari. Seinustu málningarverkin tókstu að þér í fyrrasumar 83 ára gamall. Við vorum farin að skamma þig fyrir að brasa þetta. Okkur fannst heldur að þú ættir að hætta að vinna, fara að slappa af og njóta lífsins. En þú þurftir alltaf að vera að. Þér féll aldrei verk úr hendi. Eftir að þú hættir að vinna hafðir þú alveg jafn mikið að gera. Það þurfti áfram að dytta að húsi og garði, og ef ekki þíns eigin þá varstu ætíð að bjóða okkur hjálp- arhönd með hvað sem var. Um leið og við fórum að vinna í garð- inum eða brasa við húsið varstu mættur til að losa okkur við heyið, fara með rusl eða hjálpa til. Þú sást ekki sólina fyrir barnabörn- unum, dætrum okkar Auðbjörns, þeim Kristínu, Ester og Eygló. Þú varst svo stoltur af þeim og öllu sem þær gerðu. Sýndir þeim alltaf óendanlega væntumþykju, fylgdist vel með því sem þær tóku sér fyrir hendur og já, varst mikill þátttakandi í þeirra lífi. Þær eru svo lánsamar að hafa átt þig að sem afa og munu sakna þín sárt. Og þá varstu ekki síður upptekinn af langafabörnunum tveimur, þegar Kristín mín eignaðist börn- in sín. Sást ekki sólina fyrir nafna þínum honum Guðmundi Þormari og svo Angelu litlu. Þú varst lán- samur að hafa þau á Eskifirði, og þau ekki síður lánsöm að eiga þig að. Á hverjum degi leistu inn hjá Kristínu, dáðist að börnunum og lékst við þau og ófáa göngutúrana eigið þið nafnarnir nú saman. Helsta áhugamál þitt var fótbolti og handbolti. Þú máttir alls ekki missa af landsleikjum í sjónvarp- inu, né heimaleikjum Fjarða- byggðar. Og stelpurnar hafa haft gaman af því að fara á leiki með þér í gegnum árin. Nú síðast nokkrum dögum fyrir andlátið sátuð þið Ester saman við Eski- fjarðarvöllinn og nutuð þess að horfa á Fjarðabyggð spila. Þú snilldarvel útbúinn með tvo úti- legustóla með „goshöldurum“ og teppi til að halda á ykkur hita. Ég veit að þessi minning er Ester minni afar dýrmæt eins og svo margar aðrar. Mér finnst svo skemmtileg tilviljun að á meðan útförin þín fer fram spilar Fjarða- byggð leik á heimavelli, sem er við hlið kirkjunnar. Við sem inni sitj- um brosum að því, það á svo vel við, þú misstir helst ekki af leik. Það er svo margs að minnast, Mannsi minn. Við Auðbjörn höf- um búið lengst af á Eskifirði og því hef ég notið nærveru þinnar og hjálpsemi í tæp 30 ár. Og ég lít til baka með miklu þakklæti og væntumþykju fyrir þennan tíma. Það varð ekkert lát á samvistun- um þó við flyttum til Danmerkur í nokkur ár, þið Inga voruð dugleg að koma í heimsókn. Eftirminni- legt er þegar við héldum þar upp á 75 ára afmælið þitt með pomp og prakt. Og ógleymanlegt þegar þú lést þig hafa það að koma einn í heimsókn, eins heyrnarskertur og þú varst orðinn og ekki talandi stakt orði í útlensku. Við dáðumst að þér sem aldrei fyrr og mikið var gaman hjá okkur þá. Ég er ævarandi þakklát fyrir að hafa átt þig að og mun aldrei gleyma þér. Þín tengdadóttir, Svana. Elsku Mannsi afi. Það er sárt að þurfa kveðja þig núna. En þótt ég sé sorgmædd og leið þá er ég svo þakklát fyrir allar góðu minn- ingarnar okkar saman, ég mun geyma þær vel og alltaf. Ég vil bara þakka þér fyrir allar góðu stundirnar, fyrir allt sem þú hefur gefið og gert. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt svona yndislegan afa. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til ykkar á Hólsveginn vitandi að hlýja og ást tæki á móti manni. Alltaf þegar ég kom þá sast þú í stólnum þínum að lesa Morgunblaðið, en þú varst alltaf jafn glaður að sjá mig. Þú varst svo duglegur, alltaf eitthvað að brasa þótt þú værir orðinn meira en áttræður. Slóst garðinn, varst ennþá að mála, fórst út með Guffa, og varst alltaf að hjálpa okkur heima. Ég geymi góðar minningar í hjarta mínu, afi, og ég mun aldrei gleyma þeim. Þín verður sárt saknað. Þín Eygló. Elsku afi. Það er svo margt skemmtilegt, gott og fallegt sem mig langar að skrifa en ég veit hvorki hvar ég á að byrja né hvernig ég á að koma því frá mér. Engin orð fá því lýst hversu vænt mér þykir um þig. Ég er búin að hugsa til þín í allan dag, allan gærdag og allan hinn. Hver á nú að koma til okkar á hverjum degi og hugsa um okkur? Ég gaf Guð- mundi ís áðan. Afa-ís. Þó ég hafi sagt við þig um daginn: „Þú getur ekki alltaf verið að gefa honum ís,“ þá tek ég það til baka. Þú mátt gefa honum ís alla daga. Við bjuggumst víst ábyggilega ekki við þessu, ég og þú. Að svona hlyti að gera boð á undan sér og að við hefðum nægan tíma. Það sem stendur hæst uppúr og það sem mig langar helst að koma til skila er hversu yndisleg- an mann þú hafðir að geyma. Aldrei varstu önugur, pirraður, reiður eða hneykslaður, sama hvað. Aldrei. Svo áhugasamur og drífandi með allt. Bestu hrósin voru líka þín hrós. Þau komu frá hjartanu. Ég söng börnin í svefn í kvöld með vísunum þínum, sem þú söngst fyrir mig þegar ég var lítil. Bíbí og blaka, Fljúga hvítu fiðrildin og Afi minn og amma mín. Ég vissi ekki að ég myndi svona vel eftir þeim. Ekki fyrr en núna, þegar þú ert farinn. Ég skal syngja þær fyrir þau á hverju kvöldi hér eftir. Alveg þangað til þau hætta að nenna að hlusta á mig, ég lofa. Ég skal líka reyna að vera sterk. Það hefur reyndar ekki gengið voðalega vel hingað til. Ekki beint það sem ég er best í. En ég veit að þú ert ekki langt undan og svoleiðis vil ég hafa það. Ég elska þig, elsku afi minn. Þín Kristín. Í dag kveð ég Mannsa minn með miklum söknuði. Það er alltaf sárt að kveðja en lífið er víst óút- reiknanlegt og við fáum víst engu ráðið um það hvenær við kveðj- um. Þegar ég var lítil var ég mikið hjá Ingu og Mannsa og var það bara mitt annað heimili. Ég gisti ekki eina nótt hjá þeim heldur var ég stundum í tvær til þrjár vikur í einu hjá þeim því ég vildi ekki fara frá þeim. Auðvitað spilaði það inn í að ég hafði hann Mannsa minn svolítið vasanum. Litla stúlkan fékk yfirleitt það sem hún vildi hjá þér og þótti mér það nú ekki leið- inlegt. Oftast nær þegar ég kom hljóp ég í hornið þitt í stofunni og beint í fangið á þér þar sem ég var kitluð með skeggbroddunum þín- um þangað til ég rann úr fanginu á þér af hlátri. Og ekki má gleyma búðarferðum okkar að kaupa ís, það tók nú oft sinn tíma því ekki vorum við alltaf sammála hvaða ís ætti að kaupa en oftast hafði ég betur og komum við heim til Ingu frænku með ísblóm með jarðar- berjum og ég held að hún hafi al- veg vitað hver valdi ísinn í þau skipti. Mér fannst líka æðislegt að fá að vera lítil kassadama hjá þér í málningarbúðinni, mér fannst ég svo svakaleg pæja þá en var nú bara sjö ára. Eftir að fjölskyldan flutti suður minnkaði nú sam- bandið eins og gengur og gerist en alltaf þegar við hittumst fannst mér að ekkert væri langt á milli okkar því alltaf fékk ég yndislegar móttökur hjá þér og Ingu frænku og auðvitað hlýja faðmlagið þitt. Ég er svo þakklát fyrir að Arnar Freyr minn fékk að eyða tíma með ykkur í júní, þó það hafi verið stutt heimsókn þá gerði það mjög mikið fyrir hann. Hann var svo þakklátur og glaður að þið skyld- uð sækja hann í Neskaupstað og fara með hann að leiðinu hjá afa sínum. Ég gæti haldið endalaust áfram að skrifa, svo góðar minn- ingar á ég um þig, en ætla að eiga þær í hjarta mínu að eilífu. Elsku Mannsi minn, takk fyrir að leyfa mér að vera hluti af þínu lífi, verð ég ævinlega þakklát fyrir það. Mig langar að kveðja þig með laginu sem samið var fyrir pabba og sungið í jarðarförinni hans, ég veit að hann hefur tekið vel á móti þér. Drottinn láttu ljós þitt skína. Eskifjörður byggðin mín, undurfagra blíða að vera komin nú til þín laus við trega og kvíða. Þó mig hafi lífið leitt langt frá bænum mínum, ég þess bað og þráði heitt að hvíla í faðmi þínum Nú ég hverf á drottins fund bið hann mig að geyma, þakka fyrir liðna stund og samveruna heima. Elsku Inga frænka, Aubbi, Svana, Kristín, Ester, Eygló, Óm- ar og aðrir aðstandendur, ég og mín fjölskylda sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur og megi guð styrkja ykkur í sorginni. Aðalheiður Erla Björgvinsdóttir. Ég vil með þessum kveðjuorð- um minnast Guðmundar Á. Auð- björnssonar, föður Auðbjörns besta vinar míns. Guðmundur, sem alltaf var kallaður Mannsi, er ákaflega minnisstæður þeim sem hann þekktu, enda einn af merk- ustu sonum Eskifjarðar. Hann var ekki bara þekktur innan bæj- arlífsins fyrir ævistarf sitt sem málarameistari, heldur var hann einnig mikilvirkur í félagsmálum í bæjarfélaginu og bar hag þess mikið fyrir brjósti og beitti sér fyrir ýmsum þjóðþrifamálum inn- an bæjarins. Við Auðbjörn höfum verið bestu vinir frá unga aldri enda ná- grannar og því kynntist ég Mannsa, föður hans, fljótlega. Mannsi var alltaf hress og skemmtilegur þegar maður hitti hann, auk þess hafði hann alltaf gaman af að gantast við okkur Auðbjörn. Alltaf var gott að leita til Mannsa og hann var mjög greiðvikinn og raungóður. Allt sem Mannsi gerði bar honum fag- urt vitni enda einstaklega lag- hentur og vandvirkur. Þessa góðu eiginleika hefur Auðbjörn sonur hans og vinur minn erft eftir föður sinn. Á sínum tíma byggði hann að Hólsvegi 2 í bænum eitt glæsi- legasta og stærsta einbýlishús sem byggt hafði verið í bænum. Húsið þeirra er enn þann dag í dag eitt það flottasta og vand- aðasta í bænum, enda hafa þau hjón verið dugleg að halda því við. Hann og Inga gerðu heimilið sitt þar ákaflega smekklegt og þang- að var alltaf gaman að koma. Allt bar þeim hjónum fagurt vitni, hvort sem það var hús, heimili, lóðin þeirra, bílar eða þau sjálf. Öll umgjörðin traust, húsið hlýtt og notalegt og viðmót þeirra hjóna einstakt í alla staði þegar heim til þeirra var komið. Mannsi hafði sterka nærveru, hann var drífandi og duglegur og lét til sín taka, var ákveðinn og fylginn sér. Hann hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum líðandi stundar og stóð á sínu. Hann ræddi málefni af ástríðu en á málefnanlegan hátt og án þess að fara í neinar skotgrafir eins og tíðkast nú í dag. Mannsi var mik- ilvirkur í starfi Sjálfstæðisfélags Eskifjarðar og í gegnum starf sitt í flokknum lét hann til sín taka í málefnum bæjarins, sat m.a. í Guðmundur Á. Auðbjörnsson ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, MARTEINN KRISTINSSON rafvirkjameistari, Njálsgötu 1, Reykjavík, verður jarðsunginn þriðjudaginn 30. júlí frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin á Íslandi. Kristín Þ.G. Jónsdóttir, Ingibjörg Þóra Marteinsdóttir, Hilmar Teitsson, Kristinn Óskar Marteinsson, Þóra Stefánsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR INGÓLFSSON, löggiltur endurskoðandi, til heimilis að Granaskjóli 7, sem lést á Landspítalanum mánudaginn 22. júlí verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 30. júlí kl. 13.00. Ingibjörg Kristjánsdóttir, Unnur Sverrisdóttir, Laufey Brynja Sverrisdóttir, Svava G. Sverrisdóttir, Stefán Þór Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORBJÖRN SIGURÐSSON, lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss laugardaginn 20. júlí. Útförin fer fram frá Blönduóskirkju í dag kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á orgelsjóð Blönduóskirkju. Sigríður Svanhildur Skaftadóttir, Hulda Þorbjarnardóttir, Egill Guðni Jónsson, Jósefína Þorbjarnardóttir, Þorbjörn Egill Egilsson. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eigin- konu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU BJÖRNSDÓTTUR, sem lést miðvikudaginn 3. júlí. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkradeildar Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Ármann Sigurjónsson og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, BERGDÍSAR JÓNSDÓTTUR, Sæviðarsundi 48, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót. Friðrik Olgeir Júlíusson, Margrét Björg Júlíusdóttir, Viðar Helgi Guðjohnsen, Auður Júlíusdóttir, Sigvaldi Ólafsson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir allan hlýhuginn og stuðninginn vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐLAUGAR ÞORLEIFSDÓTTUR, Árakri 5, Garðabæ, sem lést mánudaginn 24. júní. Stefanía Óskarsdóttir, Jón Atli Benediktsson, Herdís Óskarsdóttir, Sæmundur Valdimarsson, Þorleifur Óskarsson, Kristrún Lilja Daðadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.