Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 3. Á G Ú S T 2 0 1 3  195. tölublað  101. árgangur  SUNDNÁMSKEIÐ, JÓGA, HOLLUSTA, OG HEILSUBÍÓ AKRANES FJÖLSKYLDUVÆN ÚTIVISTARPERLA 100 DAGA HRINGFERÐ 2048 SÍÐNA AUKABLAÐ UM HEILSU ÁRA STOFNAÐ 1913 AFP Eitur Uppreisnarmenn segja 1.300 hafa látist í efnavopnaárásum stjórnarhersins.  Samkvæmt Unicef hafa fleiri en milljón börn flúið átökin í Sýrlandi en um 740 þúsund þeirra eru undir 11 ára aldri. Anthony Lake, fram- kvæmdastjóri Unicef, segir alþjóða- samfélagið hafa brugðist skyldum sínum gagnvart börnum í landinu, sem hafi verið rifin frá heimilum sínum og upplifað hrylling sem fæstir geti gert sér í hugarlund. Um helmingur allra flóttamanna frá Sýrlandi er á barnsaldri en tæplega tvær milljónir barna eru taldar vera á vergangi innan landamæranna. Mannréttindasamtök og stjórn- málamenn víða um heim kölluðu eftir því í gær að sýrlensk stjórn- völd leyfðu vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna að heimsækja þá staði þar sem stjórnarandstæð- ingar segja að hundruð hafi fallið í efnavopnaárásum stjórnarhersins á miðvikudag. »26 Milljón börn hafa flúið átökin í Sýrlandi Samtök iðnaðarins sendu erindi til Samkeppniseftirlitsins á dögunum vegna svokallaðrar „skanna-sölu“ í íslenskum verslunum. Slíkt fyr- irkomulag gengur út á að verslanir greiða eingöngu fyrir þær vörur sem eru seldar í gegnum skanna í búð- inni en ekki fyrir þær vörur sem þeim eru afhentar. Ýmis framleiðslufyrirtæki og inn- flytjendur eru ósátt við þetta fyr- irkomulag og telja sig bera alla ábyrgð á rýrnun og þjófnaði innan verslana. „Ef ég afhendi 100 stykki af minni vöru og síðan selur búðin eingöngu 80 stykki þá gufa þessi 20 stykki bara upp í kerfinu og búðin ber enga ábyrgð,“ segir eigandi mat- vælaframleiðslufyrirtækis á höf- uðborgarsvæðinu. Mörg fyrirtæki óttast að gagn- rýna fyrirkomulagið þar sem þau gætu misst viðskipti sín við stórar verslunarkeðjur í kjölfarið, að mati sérfræðings hjá Samtökum iðnaðar- ins. Framkvæmdastjóri Hagkaupa segir „skanna-sölu“ hafa færst í aukana eftir efnahagshrunið en seg- ir samninga við smásala vera margs- konar. »6 „Skanna-sala“ til Samkeppniseftirlits Morgunblaðið/Ómar Alþingishúsið Tekist er á um lyktir umsóknar Íslands um aðild að ESB. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég tel að það sé sjúsk og subbuskap- ur ef menn ætla að slíta viðræðunum með þessum hætti án þess að hafa sérstakt samþykki á Alþingi þar um,“ segir Össur Skarphéðinsson, þing- maður Samfylkingar og utanríkisráð- herra í síðustu ríkisstjórn, spurður hvort hann telji að ný stjórn þurfi að fá samþykkta þingsályktunartillögu á Alþingi til að geta slitið aðildar- viðræðunum við Evrópusambandið. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis- ráðherra hefur fengið álitsgerð um heimildir sínar sem ráðherra til að slíta viðræðum. Er niðurstaðan sú að ríkisstjórnin sé ekki bundin af þings- ályktun fyrri stjórnar í málinu. Gangi gegn stefnuyfirlýsingu Gunnar Bragi segir álitsgerðina „taka af öll tvímæli“ um að hann hafi heimildir til að setja af samninga- nefnd og samningahópa vegna ESB- umsóknar. „Það þýðir að við getum tekið ákvörðun um slit á viðræðum. Það hefur hins vegar ekkert verið rætt,“ segir Gunnar Bragi. »4 „Sjúsk og subbuskapur“  Fyrrverandi utanríkisráðherra fordæmir slit ESB-við- ræðn „Þetta var virkilega skemmtilegt og gaman að bera sig saman við þær bestu,“ sagði Aníta Hin- riksdóttir, heims- og Evrópumeistari unglinga í 800 m hlaupi, eftir að hún reyndi sig gegn heims- meistara fullorðinna og fleiri af bestu 800 m hlaupurum heims á Demantamóti Alþjóða frjáls- íþróttasambandsins í Stokkhólmi í gærkvöldi. „Mér leið virkilega vel og hraðinn í hlaupinu hentaði mér vel,“ sagði Aníta sem hafnaði í 8. sæti á 2.02,17, þremur og hálfri sekúndu á eftir sigurvegaranum, Eunice Sum, heimsmeistara frá Kenía. » Íþróttir „Gaman að bera sig saman við þær bestu“ Ljósmynd/Árni Torfason Aníta Hinriksdóttir mætti þeim bestu í Stokkhólmi  Lægstu laun á landinu hafa hækk- að nær tvöfalt á við bætur öryrkja frá því kreppan skall á 2008 til árs- ins 2013. Þetta kemur fram í úttekt Talnakönnunar hf. á þróun bóta Tryggingastofnunar til öryrkja, sem gerð var fyrir Öryrkjabandalag Ís- lands og kynnt var á aðalstjórn- arfundi ÖBÍ í gær. Heildartekjur ör- yrkja hækkuðu um 4,7% frá janúar 2009 til janúar 2013, en á sama tíma hækkaði launavísitala um 23,5%. „Niðurstaðan er skýr og út frá henni má fullyrða að kjör öryrkja hafi versnað meira en annarra á tíma- bilinu frá hruni,“ segir í úttektinni. omfr@mbl.is Lægstu laun hækk- uðu nær tvöfalt meira en bætur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is Lagt var fram bréf bankastjóra Landsbankans varðandi lóð fyrir nýjar höfuðstöðvar bankans á borg- arráðsfundi í gær. „Það hefur verið ljóst að þeir hafa haft áhuga á því, en ferlið er ekki komið langt,“ segir Árni Geir Pálsson, verkefnastjóri hjá Sítusi hf. Reiturinn sem Landsbankinn ósk- ar eftir er í eigu Sítusar hf. og er staðsettur við hlið Hörpu fyrir fram- an hótelið sem mun rísa þar. Sítus hf. átti fjórar lóðir á Hörpu- reitnum og er reiturinn sem Lands- bankinn óskar eftir sá seinasti í sölu. Í bókun borgarráðs kom fram hve mikilvægt væri að áhersla yrði lögð á metnað í hönnun bygginga, gatna og almenningsrýma á þessu lykilsvæði sem tengja mun miðborgina og hafn- arsvæðið órofa böndum. Landsbankinn hf. hefur um eitt- hvert skeið sýnt reitnum áhuga, en ferlið er ekki komið langt. Borgarráð gerði enga athugasemd við áform bankans á fundi sínum í gær og var því vísað til meðferðar hjá Sítusi hf. og óskað jafnframt eftir því að fá upplýsingar um framvindu málsins. Stjórn Sítusar hf. mun taka endan- lega ákvörðun í málinu, en ríkið á 54% í fyritækinu og Reykjavíkur- borg 46%. Stjórnin getur ákveðið að fara í almennt útboð á reitnum. Landsbankinn vill byggja  Hefur óskað eftir lóð við hlið Hörpu  Borgarráð gerði enga athugasemd í gær Áform Byggingar sem væntanlega verða reistar við hlið Hörpu. Hótel Banki Harpa MLandsbankinn óskar eftir »2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.