Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 52
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2013 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. „Allt of margir frídagar kennara“ 2. Lýst eftir Tyrfingi 3. Féll í gólfið þegar svifrá brotnaði 4. Stóð aldrei til að senda ávísun í pósti »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Leikarinn Charlie Sheen birtist glaðhlakkalegur á Twitter-síðu sinni á mynd sem tekin var í verslun Eggerts feldskera. Er hann með forláta húfu úr refaskinni, sem hann festi kaup á, en einnig keypti hann tvo hatta af Önnu Gullu, dóttur Eggerts, sem saumaði þá sérstaklega fyrir Sheen. Gaf hann henni gamla hattinn sinn. Sheen með höfuðföt frá feldskeranum  Fyrrverandi knattspyrnukapp- inn og kvikmynda- leikarinn núver- andi Vinnie Jones var við veiðar í Vatnsdalsá í vik- unni og gekk vel; fékk hann nokkra laxa en einnig væna sjóbirtinga og bleikjur. „Hann var bara rosalega almennilegur, engir stælar og bara hinn fínasti drengur,“ segir Pétur Pétursson staðarhaldari. Vinnie Jones veiddi vel í Vatnsdalsá  Mikið er um dýrðir í Hallgríms- kirkju þar sem kirkjulistahátíð stendur sem hæst. Framsæknir listamenn hafa samið tónlist fyrir nýuppfærðan rafbún- að orgelsins stóra og verða verkin flutt í kvöld. Meðal tón- skáldanna eru Guðmundur Steinn Gunnarsson og Arnljótur Sigurðsson. Nýjar víddir Klais- orgelsins kannaðar VEÐUR Stjarnan komst nær toppi Pepsideildar karla í knatt- spyrnu í gær með dísætum sigri á Fram, 3:2. Stjarnan var 2:1 undir og hafði misst Atla Jóhannsson af velli með rautt spjald þegar 25 mínútur voru til leiksloka, en náði að hefna fyrir tapið í bikarúrslitaleiknum um helgina. ÍA og Breiðablik gerðu 2:2-jafntefli og í Eyj- um gerðu ÍBV og Keflavík 1:1-jafntefli. »2-3 Sæt hefnd Stjörnumanna „Alexander verður vonandi byrjaður að spila með okkur fyrir jólin en það er ómögulegt að slá nokkru föstu. Það er of snemmt að segja til um það á þessu stigi hvort aðgerðin hafi heppnast vel en það er vonandi,“ seg- ir Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari landsliðsmannsins í handknattleik Alexanders Peterssons hjá þýska liðinu Rhein- Neckar Löwen. »1 Vonast eftir Alexander fyrir áramót Útlit er fyrir að þátttöku FH-inga í Evrópukeppnunum í knattspyrnu ljúki þetta árið í Belgíu í lok mánaðarins. Staða Íslandsmeistaranna er í það minnsta ekki góð eftir 0:2 tap fyrir Genk á heimavelli í gærkvöldi. Leik- urinn var þó nokkuð jafn og FH hefði getað náð jafntefli með örlítið betri frammistöðu. Liðið brenndi til að mynda af víti á lokamínútunum. »4 Nokkuð jafnt en 0:2 tap hjá FH á móti Genk ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti var sett í gær. Guðrún Hallgrímsdóttir, fagstjóri starfs- brautarinnar, segir hana hafa vaxið úr sex nemenda braut árið 1998 í 39 nemendur í ár, sem ýmist hófu eða héldu áfram framhaldsskólagöngu sinni í gær. „Krakkarnir koma til okkar úr grunnskóla og eru hér í fjögur ár. Sumir þeirra eru eingöngu á starfs- brautinni, en aðrir taka áfanga utan hennar. Nemendahópurinn er ólík- ur, en okkar markmið er að veita öll- um nemendum nám við hæfi. Nem- endur á eldri árum hjá okkur fara víða í starfsnám til að kanna hvar þau geta séð sig starfa í framtíð- inni.“ Kjartan Ólafsson er nýnemi á starfsbrautinni, en hann hóf framhaldsskólagöngu sína í FB í gær. Kjartan útskrifaðist úr Klettaskóla í vor og hlaut þar meðal annars tit- ilinn sundmaður ársins. „Þetta er alveg frábært,“ sagði Kjartan. „Nú er ég kominn í FB.“ Styðjast við iPad spjaldtölvur Guðrún segir iPad-spjaldtölvur henta einstaklega vel í kennslu á starfsbraut. „Við höfum mikið nýtt okkur iPad-spjaldtölvur í kennsl- unni. Grafíkin í þeim er svo góð og myndirnar svo lifandi og það er mjög gott að nota þær til að miðla upplýsingum, bæði til nemendanna og annarra. Við fengum mjög fínan styrk til iPad-kaupa frá Thorvald- sensfélaginu en getum alltaf bætt við okkur fleiri tækjum,“ sagði hún. Nemendur skólans nota iPad ekki eingöngu við nám sitt, því blaðamað- ur og ljósmyndari Morgunblaðsins voru beðnir um að stilla sér upp í myndatöku hjá einum nemendanna, sem heldur dagbók með myndum yf- ir það sem á daga hans drífur í skól- anum. Nýr skóli viðbrigði fyrir alla Guðrún segir fyrstu önn námsins fara að miklu leyti í að aðlagast nýju skólaumhverfi. „Þau koma yfirleitt ekki eitt og eitt til okkar, heldur koma þau oft nokkur saman úr hverjum skóla. Það styrkir krakk- ana og sjálfri finnst mér það ganga mjög vel.“ Guðrún segist ennfremur ekki hafa orðið vör við að nemendur á starfsbraut hafi orðið fyrir nei- kvæðu áreiti samnemenda sinna af öðrum brautum. „Svo erum við alltaf að leita eftir nemendum af öðrum brautum til að vera liðsmenn fyrir þau á starfsbrautinni í frímínútum. Nemendur fá einingu fyrir það og það er mikill kostur að hafa einhvern félaga til að heilsa þegar þú mætir honum á göngunum,“ sagði Guðrún. Nota iPad við kennsluna í FB  Fyrsti skóladagur starfsbrautar FB var í gær  Fjölgað úr sex í 39 frá árinu 1998 þegar brautin tók til starfa  Nemendurnir aðlagast vel lífinu í skólanum Morgunblaðið/Styrmir Kári Starfsbraut Nemendur starfsbrautar FB notast mikið við tækni í sínu námi. Brautin heldur úti facebooksíðu og slóðin er facebook.com/starfsbraut. Atli Steinn Bjarnason, formaður Nemendafélags Fjölbrautaskólans í Breiðholti, segir nemendur á starfsnámsbraut eiga í litlum vandræðum með að taka þátt í félagslífinu. „Krakkarnir að- lagast mjög vel. Þau borða alltaf með nemendum af hin- um brautunum í mat- salnum og taka oft þátt í viðburðum nem- endafélagsins, þó svo þau stundi böllin kannski ekki mikið,“ sagði Atli Steinn. „Mörg þeirra eru mjög hress og blanda geði við hina nemendurna.“ Hann segir starfsfólk skólans halda mjög vel utan um nemend- urna. „Það geta ekki myndast neinir fordómar í þessu umhverfi hjá okkur. Við búum líka í þannig samfélagi að ungt fólk í dag er með mjög opinn huga varðandi flest,“ sagði Atli Steinn. Taka þátt í félagslífi skólans STARFSBRAUT FJÖLBRAUTASKÓLANS Í BREIÐHOLTI Atli Steinn Bjarnason VEÐUR » 8 www.mbl.is Á laugardag Vestan 8-13 m/s og súld eða dálítil rigning, en léttir heldur til fyrir austan. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi. Á sunnudag Suðlæg og síðan suðvestlæg átt og rigning, einkum á Suðurlandi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast fyrir austan. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða rigning og talsverð úrkoma fyrir suð- austan. Austan 8-13 síðdegis. Áfram vætusamt. Hiti 10 til 18 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.