Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 43
verið ofarlega á vinsældalistanum. Nú sem stendur er ljósmyndun mitt helsta áhugamál. Það fer af- skaplega vel saman að fara í óvissuferð á reiðhjólinu með myndavélina og reyna að fanga augnablikið í íslenskri náttúru. Síðan eru það forréttindi að búa í Grafarholtinu og vera kominn á Hólmsheiðina eftir fáein spor. Þá er ég óneitanlega stoltur af því hvað ég hjóla mikið nú í seinni tíð. Nú hjóla ég í vinnuna sem er 10 km. leið. Á þessu ári hef ég hjól- að rétt tæpa 1.500 km, hef sparað 137 kg af CO2 og 60 lítra af bens- íni. Ég á núna gott fjallahjól til að fara á út úr bænum og nota innan- bæjar á veturna með nagladekkjum en mig langar í annað léttara borg- arhjól til að hjóla á innanbæjar yfir sumarið. Hjólreiðar hafa færst gífurlega í vöxt og stígum hefur fjölgað mjög hér í Reykjavík að undanförnu. Mér finnst hins vegar enn skorta á skýra stefnumörkun um þennan samgöngumáta. Einkum þarf að aðgreina betur umferð hjólreiða- manna og gangandi vegfarenda, og hjólreiðamanna og vélknúinna öku- tækja. Við þurfum umræðu og stefnumótun um þennan sam- göngumáta og sérstakt samgöngu- kerfi sem gerir hjólreiðar að dag- legum ferðamáta, til og frá vinnu.“ Fjölskylda Eiginkona Rögnvaldar er Sigríð- ur Guðmarsdóttir, f. 15.3. 1965, sóknarprestur í Guðríðarkirkju. Hún er dóttir Guðmars Magn- ússonar, f. 14.5. 1941, og Rögnu Guðríðar Bjarnadóttur, f. 21.7. 1941, stórkaupmanna sem bjuggu lengst af á Seltjarnarnesi en eru nú búsett í Garðabæ. Synir Rögnvaldar og Sigríðar eru Hjalti, 2.4. 1987, markaðs- sérfræðingur hjá Símanum, búsett- ur í Kópavogi en kona hans er Tinna Miljevic, 5.4. 1985, förð- unarfræðingur; Hraunberg, f. 17.8. 1990, starfsmaður hjá Actavis, bú- settur í Reykjavík; Guðmar, f. 25.7. 1994, nemi við MS. Systkini Rögnvaldar eru Svan- hildur Ólöf, f. 14.2. 1950, háskóla- kennari í Noregi; Steinunn, f. 4.1. 1952, aðstoðarskólastjóri Grunn- skóla Bolungarvíkur; Egill, f. 20.2. 1953, skólastjóri Fjöltækniskólans; María, f. 12.7. 1955, leikskólakenn- ari og starfsráðgjafi hjá Örva; Ólaf- ur Helgi, f. 16.6. 1959, stoðtækja- smiður hjá Stoð hf; Guðrún, f. 4.7. 1960, ritari hjá Fræðsluþjónustu Hafnarfjarðar. Foreldrar Rögnvaldar eru Guð- mundur Sigvaldi Hraunberg Eg- ilsson, f. 9.12. 1927, fyrrv. versl- unarmaður í Bolungarvík, og Helga Svana Ólafsdóttir, f. 3.8. 1926, kennari í Bolungarvík. Úr frændgarði Rögnvaldar Guðmundssonar Rögnvaldur Guðmundsson Kristín Guðmundsdóttir húsfr. á Uppsölum Rögnvaldur Guðmundsson b. á Uppsölum við Seyðisfjörð María Rögnvaldsdóttir húsfr. í Tröð og Bolungarvík Hálfdán Ólafur Hálfdánsson b. í Tröð og sjóm. í Bolungarvík Helga Svana Ólafsdóttir Daðey Steinunn Elísabet Daðadóttir húsfr. á Hvítanesi og Hesti Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir húsfr. á Meirahrauni Júlíus Jón Hjaltason b. á Meirahrauni í Skálavík Steinunn Sigrún Júlíusdóttir húsfr. í Bolungarvík Egill Guðmundsson, sjóm. og verkam. í Bolungarvík Guðmundur Sigvaldi Hraunberg verslunarm. í Bolungarvík Margrét Jónsdóttir húsfr. í Efstadal Guðmundur Egilsson b. í Efstadal í Ögursókn Guðfinnur Einarsson útvegsb. við Djúp Einar Guðfinnsson útgerðarm. í Bolungarv. Guðfinnur Einarsson forstj. í Bolungarv. Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis Hildur Einarsdóttir húsfr. í Bolungarv. Einar Benediktsson forstjóri. Hálfdán Einarsson b. á Hvítanesi og Hesti í Hestsfirði, bróðursonur Helga Hálfdánarsonar prestaskólakennara Afmælisbarnið Rögnvaldur - örlítið yngri hér eða um eins árs aldurinn. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013 Þórir Bergsson er skáldanafnÞorsteins Jónssonar semfæddist í Hvammi í Norður- árdal 23.8. 1885. Hann var sonur Jóns Ólafs Magnússonar, prests á Mælifelli og á Ríp í Skagafirði, en síðast bónda í Bjarnarhöfn og í Ögri í Helgafellssveit, og k.h., Steinunnar Guðrúnar Þorsteinsdóttur hús- freyju. Jón var sonur Magnúsar Andrés- sonar, bónda í Kolgröf og á Ytra- Mælifelli í Skagafirði og á Steiná í Svartárdal, og Rannveigar Guð- mundsdóttur húsfreyju. Steinunn Guðrún var dóttir Þor- steins Þorsteinssonar, b. í Úthlíð í Biskupstungum, og Sesselju Árna- dóttur húsfreyju. Þórir var bróðir Magnúsar Jóns- sonar, guðfræðiprófessors, alþm. og atvinnuráðherra í minnihlutaríkis- stjórn Ólafs Thors 1942. Bróðir Jóns á Mælifelli var Konráð á Syðra- Vatni, afi Eyjólfs Konráðs Jóns- sonar alþm. og langafi Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrv. hæstarétt- ardómara. Bróðir Steinunnar Guð- rúnar var Árni Þorsteinsson, prest- ur á Kálfatjörn og jafnframt faðir Gróu, eiginkonu Þóris. Þórir ólst upp í foreldrahúsum á Mælifelli og á Ríp, stundaði skóla- lærdóm hjá föður sinum en fór ekki í skóla sökum heilsubrests. Þó stund- aði hann tungumálanám i einka- tímum í Reykjavík um skeið. Þórir var póstafgreiðslumaður í Reykjavík 1907-14, fulltrúi og deild- arstjóri í Landsbanka Íslands 1914- 43 og starfrækti eigin innflutnings- verslun, einkum á skrifstofuvélum. Þórir er þekktasti smásagnahöf- undur Íslendinga en hann varð þjóð- kunnur fyrir smásögur sínar sem birtust í tímaritum, löngu áður en hann gaf þær út. Margar þeirra hafa síðan oft verið endurprentaðar í smásagnasöfnum. Smásögur Þóris eru gjarnan hversdagssögur úr samtíma hans. Þær fjalla oft um tregablandnar til- finningar og dapurleg örlög. Meðal smásagnasafna hans eru Sögur, 1939; Hinn gamli Adam, 1947, og Á veraldar vegum, 1953. Þórir lést 14.11. 1970. Merkir Íslendingar Þórir Bergsson 95 ára Áslaug Sólbjört Jensdóttir Heiðbjört Halldórsdóttir 90 ára Sigríður Ragnh. Ólafsdóttir Sigríður Vilhelmsdóttir 85 ára Erla Ragna Hróbjartsdóttir Lofthildur Loftsdóttir Sigríður Herdís Hallsdóttir Svavar Jónsson 80 ára Gunnar Smári Þorsteinsson Kristín Fanney Jónsdóttir Kristmundur Guðmundsson 75 ára Guðrún Ormsdóttir Jóna Jónsdóttir Lea Egilsdóttir Magnús Lillie Friðriksson Stefán Pálmason Þorbjörg Þóroddsdóttir 70 ára Bergljót Magnadóttir Brynhildur Ósk Sigurðardóttir Gunnhildur Helga Eldjárnsdóttir Helga Sigurbjörnsdóttir Ingibjörg Jónasdóttir Ólafur V. Skúlason Þórunn Kolbeinsdóttir 60 ára Bjarni Már Jensson Elín Edda Árnadóttir Gísli Gíslason Hannes Jónsson Helmut Helgi Hinrichsen Kristbjörg Gunnarsdóttir Lilja Friðriksdóttir Linda Hrönn Sigurðardóttir Ragnar Snær Karlsson Ragnheiður Hrafnkelsdóttir Sigríður Bílddal Ruesch Sigurbjörn S. Jónsson Teitur Bergþórsson Unnur Sólveig Björnsdóttir Vigfús Lýðsson 50 ára Anna Kristín Jónsdóttir Elísabet Olsen Ewa Jadwiga Wozniak Helmut Pensa Ingiríður Lúðvíksdóttir Katrín Helga Árnadóttir Magnús Þór Þórisson Reynir Sigurðsson Rúna Alexandersdóttir Sigurður Hrafn Stefnisson Skúli Rúnar Skúlason Torfhildur Jónsdóttir Vilborg Anna Björnsdóttir Víglundur Magnússon 40 ára Björk Snorradóttir Heiða Snorradóttir Katrín Ósk Adamsdóttir Kristján Georg Leifsson Magna Ósk Júlíusdóttir Merita Morina Pétur Karlsson Sigurður Arnar Sigurðsson 30 ára Daði Örn Heimisson Eva Dagbjört Óladóttir Eydís Ósk Traustadóttir Hildur Hjartardóttir Jón Söring Krystian Rucinski Lena Rut Olsen Sheeja Divakara Panicker Steinunn Ingólfsdóttir Þröstur Sigtryggsson Til hamingju með daginn 30 ára Sesselja lauk próf- um í framreiðslu frá MK, er veitingastjóri á Strikinu og Bryggjunni á Akureyri og rekur Kaffi Kú. Maki: Einar Örn Aðal- steinsson, f. 1980, veit- ingamaður. Dætur: Ásdís Rós Barð- dal, f. 2008, og Helena Lóa Bardal, f. 2012. Foreldrar: Reynir Barð- dal, f. 1949, minkab., og Helena J. Svavarsdóttir, f. 1948, við umönnun. Sesselja I. Reynisdóttir 30 ára Lára ólst upp í Reykjavík, lauk prófum í kvikmyndagerð í Ástralíu, er nú búsett í Reykjavík og er í fæðinarorlofi. Maki: Daði Örn Heimis- son, f. 1983, flugvirki. Dóttir: Amelía Sól Daða- dóttir, f. 2013. Foreldrar: Ásgrímur Kristjánsson, f. 1959, starfsmaður hjá Öskju, og Sigríður Traustadóttir, f. 1961, stuðningsfulltrúi. Þau búa í Reykjavík. Lára Ósk Ásgrímsdóttir 30 ára Rebekka ólst upp í Reykjavík og er þar bú- sett. Hún lauk prófi í við- skiptalögfræði frá Háskól- anum á Bifröst og starfar hjá Pennanum. Sonur: Ernir Snær, f. 2005. Foreldrar: Þórunn Inga Sigurðardóttir, f. 1965, starfsmaður hjá Penn- anum, og Borgar Jón- steinsson, f. 1960, starfs- maður hjá Pennanum, búsett í Reykjavík. Rebekka Rut Borgarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.