Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013 Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, hefst eftir fimm vikur, 26. september. Nú er ljóst að hluta hvaða kvikmyndir verða sýndar, og í þeim hópi er margt athyglisverðra verka, leiknar kvikmyndir og heimild- armyndir, meðal annars um matargerð og umhverfismál. Tólf kvikmyndir munu keppa um Gyllta lundann í flokknum „Vitranir“; í flokknum sem kallast „Fyrir opnu hafi“ verður sýnt úrval nýlegra verðlaunamynda, og þá verður sérstakur fókus á grískar kvikmyndir. Samhliða hátíðinni verða allrahanda viðburðir, svo sem sundbíó, grínbíó, heimabíó, matarbíó og hellabíó í Bláfjöllum. Meðal kvikmynda sem verða sýndar eru: Ungfrú ofbeldi, leikin mynd gríska leikstjórans Alex- andros Avranas. Þetta er hrollvekjandi og dramatísk kvikmynd sem hefst með því að ellefu ára stúlka hendir sér brosandi fram af svölunum heima hjá sér. Spagett- ísaga er leikin ítölsk kvikmynd eftir Ciro de Caro, um fjögur ungmenni sem þrá að breyta lífi sínu en eru föst á mismunandi stöðum. Gullbúrið er verðlaunamynd frá Cannes eftir Diego Quemeda-Diez og fjallar um þrjá unglinga úr fátækrahverfum Guatemala, sem ferðast til Bandaríkjanna í leit að betra lífi. Barnablús pólska leik- stjórans Kasia Roslaniec hlaut Kristalsbjörn fyrir bestu kvikmyndina að mati unglingadómnefndar á alþjóðlegu hátíðinni í Berlín. Barnablús fjallar um ferðalag um glannalega veröld tísku, kynlífs og eiturlyfja, og er ruddalegt innlit í ungæðislegan kapítalisma Póllands. Leiðangur á enda veraldar er dönsk-sænsk ævin- týramynd eftir Daniel Dencik. Listamenn og vís- indamenn fá tækifæri til að upplifa löngu gleymdan æskudraum þegar lagt er upp í ferð til enda veraldar á þrímastra skonnortu, að bráðnandi breiðum Grænlands. Gráðugir ljúgandi bastarðar er heimildarmynd eftir Craig Rosebraugh um loftslagsbreytingar sem búa ekki lengur í spádómum heldur eiga hlutdeild í raunveruleika dagsins í dag. Í kvikmyndinni er skoðaður sá hópur manna og samtaka sem breiða út efasemdir um lofts- lagsvísindi. Mitt Afganistan – Lífið innan bannsvæðisins er frumleg afgönsk-dönsk heimildarmynd eftir Nagieb Khaja. Önnur athyglisverð heimildamynd er Sjóræn- ingjaflóinn fjarri lyklaborðinu, eftir Simon Klose, er þar er gægst bak við tjöldin í umdeildu dómsmáli vegna höf- undarréttarbrota stofnenda deilisíðunnar Sjóræn- ingjaflóans. Virðast ókunnugir er heimildarmynd eftir Tom Berninger. Þar er fjallað um rokksveitina The Nat- ional sem er að leggja upp í sitt viðamesta tónleika- ferðalag. Höfundurinn er yngri bróðir söngvara hennar. Enn ein heimildarmynd er Loforð Pandóru eftir Robert Stone. Í myndinni er fjallað um að í stað þess að eyða mannkyninu muni kjarnorka hugsanlega bjarga því. Fjölbreytileikinn verður allsráðandi á RIFF  Verðlaunamyndir og forvitnilegar heimildarmyndir sýndar Draumurinn Úr Gullbúrinu, verðlaunakvikmynd eftir Diego Quemeda-Diez um menn sem leita betra lífs. The Bling Ring Nýjasta mynd óskarsverðlauna- leikstjórans Sofiu Coppola og leik- konunar Emmu Watson er að byrja í sýningu núna. Myndin byggist á sannri sögu um kunningjahóp sem langaði að lifa góða lífinu án þess að hafa of mik- ið fyrir því. Hópurinn tekur því til sinna ráða og brýst inn hjá frægu fólki og rænir það. Á meðal fórn- arlamba þeirra voru þau Paris Hilton, Lindsay Lohan, Orlando Bloom, Rachel Bilson, Miranda Kerr og Megan Fox. Sofia, sem skrifar sjálf handritið, tók m.a. viðtöl við hina raunveru- legu höfuðpaura gengisins til að átta sig sem best á aðstæðum þeirra auk þess sem leikararnir lögðu sig sérstaklega fram um að ná bæði töktum og málnotkun per- sónanna sem þeir túlka í mynd- inni. Rottentomatoes 60% IMDB 64% Bíófrumsýning Þjófar Lindsay Lohan, Orlando Bloom, Rachel Bilson, Miranda Kerr og Megan Fox voru öll fórnarlömb þjófagengisins í Hollywood. Rændu frá ríka og fræga fólkinu í Hollywood Órafmagnaða hátíðin Melodica Festival mun fara fram um helgina á Kaffi Rósenberg, Café Haítí og Víkinni en hátíðin hefur verið haldin ár hvert síðan árið 2008 og á því fimm ára afmæli í ár. Melodica Festival er hug- arsmíð tónlistarmannsins Svavars Knúts og hefur áherslan verið lögð á að koma á framfæri lista- mönnum sem hafa verið utan meg- instraumsins auk annarra lista- manna sem hafa gert það gott í íslensku poppsenunni. Meðal lista- manna sem komið hafa fram á há- tíðinni eru Sykur, Ultra Mega Technobandið Stefán, Sing For Me Sandra, Blæti og Sudden Weather Change. Hátíðin hefur vaxið í gegnum árin og er orðin einn helsti áfangastaður ungra og upp- rennandi lagasmiða. Órafmögnuð helgi framundan KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM Á TOPPNUM Í ÁR KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA THEBLINGRING KL.6-8-10:10-10:30-11:20 WE’RETHEMILLERS KL.3:20-5:40-6:30-8-9-10:30 WE’RETHEMILLERSVIP KL.3:20-5:40-8-10:30 RED2 KL.8-10:30 SKRÍMSLAHÁSKÓLINN ÍSLTAL3D KL.3:20-4-5:40 SKRÍMSLAHÁSKÓLINN ÍSLTAL2D KL.3:40 SAMMY2 ÍSLTAL2D KL.3:40TILBOÐ400KR. WORLDWARZ2D KL.5:40-8 KRINGLUNNI THE BLING RING KL. 6 - 8 - 10:30 WE’RE THE MILLERS KL. 5:40 - 8 - 9 - 10 SKRÍMSLAHÁSKÓLINN ÍSLTAL2D KL. 6 KICK-ASS 2 KL. 5:40 - 8 - 10:20 WE’RE THE MILLERS2KL. 5:30-6:45-8-9:15-10:30 2 GUNS 2 KL. 5:30 - 8 - 10:30 NÚMERUÐ SÆTI TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á AKUREYRI WE’RE THE MILLERS KL. 5:40 - 8 - 10:30 THE BLING RING KL. 8 - 10 SKRÍMSLAHÁSKÓLINN ÍSLTAL3D KL. 5:40 KEFLAVÍK KICK-ASS2 KL.8 WE’RETHEMILLERS KL.8 2GUNS KL.10:30 THEBLINGRING KL.10:30 STRUMPARNIR2 ÍSLTAL3D KL.5:40 SKRÍMSLAHÁSKÓLINN ÍSLTAL2D KL.5:40 STÓRKOSTLEG TEIKNIMYND FRÁ SNILLINGUNUM HJÁ DISNEY/PIXAR  ROGER EBERT SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Í 2D OG 3D “SPRENGHLÆGILEG.” “BESTA GRÍNMYND ÁRSINS!” “VIRKILEGA FYNDIN!” COSMOPOLITAN JULIANN GAREY / MARIE CLAIRE SCOTT MANTZ / ACCESS HOLLYWOOD JENNIFER ANISTON, JASON SUDEIKIS OG ED HELMS Í FYNDNUSTU GRÍNMYND ÞESSA ÁRS  H.G., MBL V.G., DV  “SPARKAR FAST Í MEIRIH LUTANN AF AFÞREYINGARMYNDUM S UMARSINS. FÍLAÐI HANA Í BOTN.” BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM MEÐ EMMA WATSON Í AÐALHLUTVERKI FRÁ LEIKSTJÓRANUM SOFFIU COPPOLA T.V. - BÍÓVEFURINN.IS/SÉÐ & HEYRT   ENTERTAINMENT WEEKLY „EMMA WATSON ER STÓRKOSTLEG“ 14 10 16 SÝND Í 3D OG 2D MEÐ ÍSLENSKU TALI H.G. - MBL HHH V.G. - DV HHH „Sparkar fast í meirihlutann á afþreygingarmyndum sumarsins. Fílaði hana í botn.” T.V. - Bíóvefurinn/Séð & Heyrt -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU POWE RSÝN ING KL. 10 :20 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar L L KICK ASS 2 Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:20 (P) PERSY JACKSON: S.O.M. Sýnd kl. 5:30 - 8 2 GUNS Sýnd kl. 8 - 10:20 STRUMPARNIR 2 2D Sýnd kl. 5:30 GROWN UPS 2 Sýnd kl. 10:20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.