Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013 HÁDEGISMATUR Í FYRIRTÆKI OG STOFNANIR VINSÆLT - HEILSUBAKKAR Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Fjölbreyttur matseðill og valréttir alla daga Við sendum hádegismat í bökkum og kantínum til fyrirtækja og stofnana alla daga ársins. Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum: Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka. Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags. Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Í kvöld verður verkið To The Bone, eftir Shalala-tvíeykið Ernu Ómars- dóttur og Valdimar Jóhannsson, frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhús- inu. Verkið er hluti af Reykjavík Dance Festival, sem hefst í dag og stendur til 1. september næstkom- andi. Hugmyndin að verkinu hafði þróast með þeim um tveggja ára skeið að sögn Ernu en í því er tek- ist á við hvernig nútímamaðurinn getur beitt óhefðbundnum leiðum til að létta á sér og auðvelda sér að lifa af í þeim hraða og harða heimi sem við búum við í dag. Einvalalið listamanna stendur að sýningunni en við sköpun hennar fengu höfundarnir til liðs við sig jafnt leikara, dansara og tónlist- armenn. Á meðal þátttakenda má m.a. nefna leikarana Ólaf Darra Ólafsson, Dóru Jóhannsdóttur og Friðgeir Einarsson, dansarana Sig- ríði Soffíu Níelsdóttur og Lovísu Ósk Gunnarsdóttur, auk tónlistar- mannanna Óttars Proppé, Flosa Þorgeirssonar og Sigtryggs Berg Sigmarssonar. Í spjallþáttastíl Í verkinu er unnið út frá spjall- þáttaformi, þar sem leikur, dans, tónlist og önnur listform spila sam- an, með óhefðbundnum hætti þó. „Í gegnum spjall og óhefðbundin skemmtiatriði kynnum við til sög- unnar hugmyndir að nýjum leiðum sem við trúum að geti haft jákvæð áhrif á líf fólks,“ segir Erna. „Það er alltaf verið að benda manni á að- ferðir sem eiga að bæta líf okkar, eins og verið sé að segja manni að það sé alltaf eitthvað að manni og verði stöðugt að prófa eitthvað nýtt til að halda jafnvægi og geta lifað af þetta klikkaða líf,“ bætir hún við. Á sama tíma og finna má vissa ádeilu á fyrrnefnda þróun í verkinu segir Erna að aðstandendur hafi fulla trú á þeim óhefðbundnu að- ferðum sem þeir kynna til sög- unnar. Höfuð- og hljóð- sveiflur í bland við öskur Á meðal nýjunga sem áhorfendur fá að kynnast í verkinu er svonefnt metal-aerobics, þar sem metal- dauðarokk mætir þolfimi og höf- uðsveiflum. Waveology er önnur aðferð sem kemur einnig við sögu en að sögn Ernu gengur sú út á að hljóðbylgjur eru notaðar til að örva tilfinningarnar. Þá er fátt eitt upp talið. Þess má geta að almenningi mun gefast kostur á að læra fyrrnefnda tækni í opnum tímum sem í boði verða í húsnæði Dansverkstæðisins við Skúlagötu, á meðan á danshá- tíðinni stendur. Svartir öskur- kassar fyrir útrás Ekki má gleyma að minnast á öskurröddina, sem gegnir stóru hlutverki í verki Ernu og Valdi- mars, jafnt á sviðinu í Kassanum sem og víðar næstu daga. Einhverjir hafa eflaust veitt at- hygli svörtum klefum sem komið hefur verið fyrir á nokkrum stöðum um borgina, m.a. í Hörpu og Hafn- arhúsinu, undir heitinu Black Yoga Screaming Chamber, eða svörtu öskurklefarnir. Klefarnir eru hluti af listsköpun Ernu og Valdimars og tengjast verkinu í Kassanum náið. „Verkið er í raun saga kassanna. Hugmyndin er að klefarnir séu nokkurs konar griðastaður, þar sem fólk getur fundið frið frá skarkala umhverfisins og fengið smáútrás með öskrum, án þess að nokkur finni að því,“ segir hún. „Þarna erum við að sýna hvað við gerum til að lifa af daginn. Þetta er eiginlega hugmynd um að gera einhvers konar jóga nema hvað í stað þess að fara inn á við förum við út á við með því að öskra eða beita þessum aðferðum sem við kynnum í dansverkinu. Þannig er- um við strax að hleypa öllu út,“ segir hún og bætir við að mikil vel- líðan hljótist af, sem hún þekkir af eigin raun. Þess má geta að klefarnir verða opnaðir formlega í dag og er öllum frjálst að nýta sér þá á meðan á danshátíðinni stendur. Öll öskrin verða tekin upp og munu þátttakendur síðar fá senda upptöku af Black Yoga Screaming Mantra, þar sem öll öskrin hafa verið sett saman í eitt. Auk þess að hafa unnið að upp- setningu eigin verka að undanförnu hafa Erna og Valdimar einnig verið í hlutverki listrænna stjórnenda Reykjavík Dance Festival í ár. Kveður þar við margvíslegan nýjan tón en leitast hefur verið við að skapa leið fyrir áhorfendur til að taka þátt í verkunum með ýmsum hætti, t.d. með fyrrnefndum ösk- urklefum og danskennslu, auk þess sem fyrirlestrar og fleira verður í boði, fyrir utan sjálf verkin á dans- listahátíðinni. Frumsýning To The Bone hefst kl. 20 í kvöld auk þess sem einnig verður hægt að sjá verkið á sama tíma á mánudag. Öskur og óhefðbundin slökun  Verk Ernu Ómarsdóttur og Valdimars Jóhannssonar, To The Bone, verður frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í kvöld  Barátta mannsins við harðan heim í forgrunni og hvernig hann finnur ró Ljósmynd/Magnús Andersen Höfundarnir Valdimar Jóhannsson og Erna Ómarsdóttir eru höfundar To The Bone og listrænir stjórnendur Reykjavík Dance Festival í ár. Í dag verður opnuð í Þjóðar- bókhlöðu kl. 16-18 sýningin Heimskommúnisminn og Ísland sem fjallar um hina alþjóðlegu kommúnistahreyfingu og starf- semi hennar á Íslandi. Evr- ópuþingið hefur lýst 23. ágúst Evrópudag minningarinnar um fórnarlömb stalínismans og nas- ismans en þennan dag árið 1939 gerðu Hitler og Stalín griðasátt- mála sem hleypti af stað heims- styrjöldinni síðari. Rannsókn- arsetur um nýsköpun og hagvöxt (RNH) stendur að sýningunni í samstarfi við Landsbókasafn Ís- lands – Háskólabókasafn. Höf- undur hennar er dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor. Sögumiðlun ehf sér um sýning- arhönnun. Tveir erlendir fræði- menn halda erindi af þessu tilefni. Eistneski sagnfræðingurinn og þingmaðurinn dr. Mart Nutt flytur erindið „Eistland: Smáþjóð undir oki erlendis valds“ og pólski sagn- fræðingurinn dr. Pawel Ukielski, forstöðumaður Minningarsafns um uppreisnina í Varsjá 1944, flytur erindi um hina sögulegu uppreisn 1944. Varðberg, samtök um vest- ræna samvinnu og alþjóðamál, og Alþjóðamálastofnun Háskóla Ís- lands standa að fyrirlestrum þeirra Nutts og Ukielskis ásamt RNH. Heimskommúnisminn Í Þingeyjarsýslum er að finna mik- inn fjölda af áhugaverðum söfnum og sýningum. Í kvöld verður í fyrsta sinn haldið Safnakvöld í Þingeyjarsýslum. Þá munu 14 söfn og sýningar hafa opið frá sjö til tíu um kvöldið og bjóða upp á ýmsa viðburði. Frítt verður inn á allar sýningarnar. Á Snartarstöðum við Kópasker verður handverksfólk að störfum, boðið verður upp á lifandi tónlist á Hvalasafninu á Húsavík, Minjasafninu á Mánárbakka og Samgönguminjasafninu á Ystafelli og margt fleira á öðrum söfnum í Þingeyjarsýslunni. Söfnin í Þingeyjarsýslu Safnadagur Tónlist, handverk og margt fleira á safnadeginum í dag. Ýmissa fleiri grasa kennir í dag- skrá Reykjavík Dance Festival í ár. M.a.:  Scape of Grace - Höf. Saga Sigurðardóttir, fös. 23/8 kl. 18 í Hafnarhúsi.  Soft Target Installed - Höf. Margrét Sara Guðjónsdóttir, sun 25/8 kl. 20 í Hörpu.  Borrowed Landscape - Höf. Heine Avdal & Yukiko Shinozaki / Fieldworks, mán. 26/8 kl. 16 í Bónus á Hallveigarstíg. Sjá nánar á vefsíðu hátíðarinnar: http://reykjavikdancefestival.tumblr.com/ Af dagskrá hátíðarinnar RDF 23/8 - 1/9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.