Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013 Viðskiptafræð-ingurinn Sig-urður Olsen fagnar 47 ára af- mæli sínu í dag. Hann býst ekki við því að halda sér- staklega upp á dag- inn en segir að lík- lega muni eiginkonan kaupa eitthvað gott á grill- ið. „Ég verð nú að viðurkenna það að maður hefur lítið verið að halda upp á afmælið sitt, nema þegar um stór- afmæli er að ræða,“ segir Sigurður sem hélt veglega fer- tugsafmælisveislu, þar sem gestum var boðið í mini-golfmót í garðinum. Sig- urður segist hafa mjög gaman af golf- íþróttinni og er með 15,2 í forgjöf. „Mað- ur er mikið í golfinu með félögunum og svo finnst mér mjög gaman að vera í góðra vina hópi. Við æskuvinirnir úr Garðabænum höfum lengi haldið hópinn.“ Sigurður starfar hjá Tekjuvernd, dótturfélagi Arion banka. Eiginkona hans heitir Ruth Guðnadóttir og starfar sem mann- auðsfulltrúi hjá Ístaki. Börn þeirra eru þau Sveinn Gísli sem er 10 ára og Helga Sæunn sem er á sextánda ári. Í sumar fór Sig- urður í fyrsta skipti á þjóðhátíð. „Þetta var skemmtilegra en ég gat búið mig undir. Stemmingin var frábær og veðrið gott. Svo fengum við lögregluna í heimsókn í íbúðina sem við höfðum leigt. Þangað komu fjórar fílefldar löggur. Þeir sögðu okkur að hringt hefði verið út af kannabislykt frá þessari íbúð. Við kom- um auðvitað af fjöllum og þeir sáu á viðbrögðum okkar að þetta hlaut að vera einhver vitleysa. En þetta var í það minnsta ein af sögunum sem fæddust í ferðinni,“ segir Sigurður kíminn. vidar@mbl.is Sigurður Olsen er 47 ára í dag Skellti sér loks á þjóðhátíð í Eyjum 47 ára Sigurður Olsen býr í Seljahverfi en er Garðbæingur að upplagi. Hann ætlar ekki að halda sérstaklega upp á afmælið. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Áslaug Sólbjört Jensdóttir er níu- tíu og fimm ára í dag, 23. ágúst. Hún bjó á Núpi í Dýrafirði mestan hluta ævi sinnar, ásamt manni sínum Valdimar Kristinssyni, bónda og skipstjóra, sem lést 2003. Áslaug dvelur nú á hjúkr- unarheimilinu Eir í Reykjavík. Ás- laug og Valdimar eignuðust níu börn, sem halda upp á daginn með móður sinni og nánustu fjöl- skyldu. Árnað heilla 95 ára Reykjavík Victor Már fæddist 20. des- ember kl. 3.49. Hann vó 3.645 g og var 51,5 cm langur. Foreldrar hans eru Auður Lorenzo og Hörður Már Henrysson. Nýir borgarar Mosfellsbær Máni fæddist 1. desem- ber kl. 23.48. Hann vó 3.485 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Brynja Guðmundsdóttir og Matthías Hálfdánarson. R ögnvaldur fæddist og ólst upp í Bolungarvík. Hann var í Grunn- skóla Bolungarvíkur, lauk stúdentsprófi frá VÍ 1983, stundaði nám í sjáv- arútvegsfræðum við HA 1994-98 og lauk MBA-prófi frá HÍ 2011. Rögnvaldur vann í fiskvinnslu í Bolungarvík frá því á æskuárunum og öll sumur fram yfir tvítugt. Hann var sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Súgfirðinga 1990-94 og sölu- stjóri sjófrystra fiskafurða hjá Þor- móði ramma – Sæbergi 1997-2000. Rögnvaldur var búsettur í Bandaríkjunum á árunum 2000- 2004 og starfaði þar m.a. í banka og var framleiðslustjóri við hörpu- diskvinnslu. Hann var lánasérfræð- ingur í Sparisjóðabanka Íslands (síðar Icebank) 2005-2008, fjár- málastjóri hjá Frostfiski 2009-2012 og er nú þjónustufulltrúi í vöruhúsi Samskipa. Rögnvaldur og Sigríður hafa ver- ið búsett í Bolungarvík, í Súg- andafirði, á Akureyri, á Ólafsfirði, í New Jersey og Massachusetts en síðastliðin níu ár í Grafarholtinu. Rögnvaldur var félagi í Kiwanis- klúbbnum Súlum á Ólafsfirði og forseti hans, situr í stjórn Félags viðskiptafræðinga MBA frá HÍ og tók þátt í uppfærslum leiksýninga áhugaleikhúsa í Bolungarvík, á Suðureyri og á Ólafsfirði. Ljósmyndun og hjólreiðar „Ég hef haft áhuga á ýmsu í gegnum tíðina en góðar bækur og klassísk tónlist hafa samt alltaf Rögnvaldur Guðmundsson þjónustufulltr. hjá Samskipum – 50 ára Hefur hjólað 1500 km í ár og sparað mikið bensín Hjón og synir Rögnvaldur og Sigríður, ásamt Hjalta, Guðmari, hér nýfermdum, og Hraunberg. BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16 ÚTSALA 298.200 kr. JOERI ÁÐUR kr. 372.800 185.900kr.ÁÐUR kr. 232.400 27.300 kr. MURCIA LAMPI ÁÐUR kr. 36.400 PÚÐAR AVIGNON SÓFAR SKÁPAR STÓLAR SÓFABORÐ SMÁVARA 20-50% AFSLÁTTUR 35.800kr. kr. kr. FRENCH SPEGILL ÁÐUR kr. 44.800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.