Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 8
Morgunblaðið/RAX Ferðamenn Mikil fjölgun. Erna Hauksdóttir hefur tilkynnt að hún muni láta af störfum sem fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, SAF. Erna hefur sinnt starfinu frá árinu 1998 og var áður framkvæmdastjóri Sambands veit- inga og gistihúsa frá árinu 1985. Spurð um ástæður starfslokanna segir hún að sig langi að sinna öðr- um hlutum. „Þetta var orðið góður tími til að hætta eftir langan starfs- dag í ferðaþjónustu,“ segir Erna. Hún býst við því að venda kvæði sínu í kross og spreyta sig á há- skólanámi auk þess sem hana langar að sinna barnabörnunum betur. „Það er svo margt sem mann langar að gera sem maður hefur ekki haft tíma til,“ segir Erna. Hún segir að það hafi verið afar athyglisvert að starfa við ferðaþjónustuna á þeim mikla uppgangstíma sem hefur verið í geiranum hér á landi. „Það er búið vera með ólíkindum að bera saman tímann nú og þann sem var. Þetta þótti ekki merkileg atvinnugrein þegar ég var að byrja en í dag gæti hún verið stærsta gjaldeyrisskap- andi atvinnugrein landsins,“ segir Erna. Spurð hvort eitthvað sérstakt standi upp úr nefnir hún Eyjafjalla- jökulsgosið. „Það var svo mikið um- stang í kringum það,“ segir Erna. Hún lætur af störfum eftir þrjá mán- uði. Erna Hauksdóttir Erna hættir sem framkvæmdastjóri 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013 HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ Í GÓÐUM HÖNDUM Snjallt að kíkja á okkur á adal.is Við erum með fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -0 4 6 7 Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is og www.adal.is Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900 Í einni af ritstjórnargreinumViðskiptablaðsins, Tý, er fjallað um ESB-umsóknina. Þar segir: „Þeir flokkar sem náðu yf- irgnæfandi meirihluta þingmanna í kosningunum og mynduðu rík- isstjórn hafa báð- ir lýst sig and- víga aðild að Evrópusamband- inu. Þar með munu þeir ekki reka málið og ESB-umsóknin vitanlega dauð.    Á landsfundi Sjálfstæðisflokks-ins í vor var hafnað tillögu um að gert yrði „hlé“ á aðild- arviðræðum, en þess í stað sam- þykkt að þeim skyldi „slitið“. Í því felst að landsfundur hafnar kröfum ESB-sinnanna, sem nú vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræðurnar sínar. Í því felst einnig, að láti stjórnvöld sér nægja að gera „hlé“ á viðræðun- um, en afturkalla ekki inn- göngubeiðnina, þá fara þingmenn Sjálfstæðisflokksins með því gegn skýrri ákvörðun landsfundar. Sumir þeirra gerðu það einnig í Icesave-málinu og taka ekki slíka ákvörðun í bráð.    Engin þjóðaratkvæðagreiðslavar haldin um það hvort sækja skyldi um aðild að ESB. Strax þess vegna er óþarft að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um að afturkalla umsóknina. Ef ekki þarf þjóðaratkvæðagreiðslu til þess að senda inn umsókn, þá þarf ekki þjóðaratkvæðagreiðslu til að afturkalla hana.    ESB-sinnar, sem hófu umsókn-ina, ákváðu að gera það án þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar með völdu þeir málinu farveg. Þeir sitja uppi með hann.“ Samþykkt að við- ræðum skyldi slitið STAKSTEINAR Veður víða um heim 22.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 13 skýjað Akureyri 16 skýjað Nuuk 10 léttskýjað Þórshöfn 11 alskýjað Ósló 20 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 skýjað Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 18 léttskýjað Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 18 skúrir Dublin 18 skýjað Glasgow 18 léttskýjað London 20 skúrir París 27 heiðskírt Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 23 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 23 léttskýjað Moskva 23 heiðskírt Algarve 28 heiðskírt Madríd 36 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 28 léttskýjað Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 18 heiðskírt Montreal 21 skúrir New York 23 skýjað Chicago 22 skúrir Orlando 30 þrumuveður Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 23. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:45 21:17 ÍSAFJÖRÐUR 5:39 21:32 SIGLUFJÖRÐUR 5:22 21:16 DJÚPIVOGUR 5:12 20:49 Að sögn veðurfræðings á Veð- urstofu Íslands er búist við hægri vestanátt á laugardagsmorgun þeg- ar þúsundir hlaupara munu taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Spáð er vindhraða upp á 3-8 metra á sekúndu og að þungskýjað verði á höfuðborgarsvæðinu með mögu- legum skúrum. Svipað veður verð- ur fram eftir degi og fram á kvöld þegar Menningarnótt fer fram. Fremur svalt verður í veðri og hit- inn á bilinu 10-11 stig en eilítið kólnar með kvöldinu. Um nóttina er útlit fyrir hægan vind og horfur á smávægilegri úrkomu og áfram- haldandi vestanátt. Besta veðrið á laugardag verður á Austurlandi. Hitinn gæti farið upp í 16 stig á Egilsstöðum. vidar@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Maraþon Hægur vindur mun leika um hlaupara á laugardag. Hægt og svalt í hlaupi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.