Morgunblaðið - 23.08.2013, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
Við sérhæfum okkur í
vatnskössum og bensíntönkum.
Gerum við og eigum nýja til á lager.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Stjórnvöld í Sýrlandi voru undir
miklum þrýstingi í gær um að leyfa
vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu
þjóðanna að heimsækja þá staði þar
sem uppreisnarmenn segja að
hundruð hafi látist í efnavopnaárás-
um stjórnarhersins á miðvikudag.
Sérfræðingar segja að einkennin
sem fórnarlömbin hafa sýnt séu þau
sömu og komi fram hjá þeim sem
hafa orðið fyrir eitrun af völdum
taugagass.
„Það verður að liggja skýrt fyrir
hvað gerðist og fylgjast náið með
ástandinu,“ sagði forseti öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna, Maria Cristina
Perceval, eftir að ráðið fundaði á
miðvikudag. Hún sagði fulltrúa ráðs-
ins sammála um að öll notkun efna-
vopna bryti gegn alþjóðlegum lögum
en AFP hafði eftir embættismönn-
um að fulltrúar Rússlands og Kína
hefðu komið í veg fyrir að ráðið gæfi
út formlega yfirlýsingu eftir fund-
inn.
Skipulögð ögrun, segja Rússar
Stjórnmálaleiðtogar fjölda ríkja,
þeirra á meðal Bandaríkjanna og
Frakklands, höfðu farið fram á að
vopnaeftirlitsmenn SÞ í Sýrlandi,
sem tóku til starfa á mánudag, yrðu
tafarlaust sendir á vettvang til að
rannsaka ásakanir stjórnarandstæð-
inga en Rússar sögðu að eftirlits-
sveitin þyrfti fyrst að leita leyfis hjá
sýrlenskum stjórnvöldum.
Rússneska utanríkisráðuneytið
sagðist raunar telja að ásakanir um
efnavopnanotkun stjórnarhersins
væru skipulögð ögrun af hálfu upp-
reisnarmanna og sagðist telja að
óþekktri efnablöndu hefði verið
varpað frá svæði sem væri undir
stjórn andstæðinga Assads.
Efnavopnasérfræðingurinn Jean
Pascal Zanders sagði í gær að mörg-
um einkennum sem fórnarlömbin
sýndu, s.s. öndunarerfiðleikum og
krampaköstum, svipaði til einkenna
eitrunar af völdum taugagass á borð
við sarín eða VX en ekki væri hægt
að skera úr um hvort um slík efni
væri að ræða nema með blóð- og
þvagsýnum.
Utanríkisráðherra Tyrklands,
Ahmet Davutoglu, sagði í gær að far-
ið hefði verið yfir „rauða strikið“ í
Sýrlandi og kallaði eftir aðgerðum
alþjóðasamfélagsins. Þá sagði Laur-
ent Fabius, utanríkisráðherra
Frakklands, að Frakkar myndu
mögulega leggja til hernaðaraðgerð-
ir ef í ljós kæmi að sýrlensk stjórn-
völd hefðu beitt efnavopnum en
ítrekaði að erlendir landherir yrðu
ekki sendir inn í landið.
RÚSSLAND
Hizbollah
tengsl við
(í Líbanon)
KÍNA
SÁDI-ARABÍA
ÍRANÍRAK
TYRKLAND
JÓRDAN
ÍSRAEL
Vestur-
bakkinnGAZA
(Hamas)
EGYPTALAND
LÍBÝA
LÍBANON
BAHREIN
S.A.F.
KÚVEIT
OMAN
JEMEN
KATAR
(Vopnin koma frá
Al-Kaída í Írak)
(Hizbollah)
SÝRLAND
Leyfir vopnaflutninga
til uppreisnarmanna,
bækistöð uppreisnarmanna
Leyfir vopnaflutninga
til uppreisnarmanna
Styður flokksbrot Michel Kilo
innan stjórnarandstöðubandalagsins
til mótvægis við stuðning Katar við
Bræðralag múslíma
M. K.
M. K.
500 km
Andspyrnan
Yfirherstjórn
uppreisnarmanna
Frjálsi
sýrlenski herinn
Meginstefnu-
uppreisnarmenn
Jíhadistar
Sjálfstæðir
íslamistar
Vopnuð öflStjórnmálin
Stjórnvöld
Sýrlenska
þjóðarráðið
Leiðtogar
stjórnar-
andstöðunnar
t.d. Al-Nusra
t.d. Ahrar al-Sham
Friðsamleg,
hafnar afskiptum
erlendra ríkja
Sýrlenska
þjóðarbandalagiðSamhæfingarnefnd
þjóðarinnar
Bashar al-Assad
skipuleggur
tengist
Flokksbrot
Michel Kilo
Stærsta hreyfingin
innan bandalagsins
Aðgerða-
sinnar
og aðrir
Nýtur stuðnings
Sádi-Arabíu
+
Helsta hreyfingin
innan Þjóðarráðsins
Bræðralag
múslíma
Nýtur stuðnings
Katar og Tyrklands
S
op
hi
e
R
am
is
/G
ill
ia
n
H
an
dy
si
de
Vopnar Frjálsa sýrlenska
herinn
Vopnar Frjálsa sýrlenska
herinn undir borðið
Vopnar Al-Nusra
og aðra jíhadista
Ríkisstjórn
styður Assad
Erlendir bakhjarlar
Vopnar herafla Assad
Ríkisstjórn styður sýr-
lensku stjórnarandstöðuna
Styður Bræðralag
múslima innan Sýrlenska
þjóðarbandalagsins
Styður flokksbrot Michel
Kilo innan bandalagsins
Opinberlega hlutlaus en...
M. K.
Hver styður hvern í Sýrlandi?
Vinir Sýrlands
Yfir 120 ríki,
þeirra á meðal:
Arababandalagið
Flóaráðið
Evrópusambandið
Íhugar að vopna
Frjálsa sýrlenska herinn
Veita herstjórn upp-
reisnarmanna „aðstoð“
Bandaríkin
Öryggisráð SÞ
Aðildarríki með neitunarvald
BNA
Rússland
Kína
Bretland
Frakkland
StjórnarandstaðanFylgjandi Assad
Hver er hvað í Sýrlandi?
Vilja að vopna-
eftirlitsmenn
fái aðgang
Alþjóðasamfélagið krefst svara
Svipar til einkenna taugagaseitrunar
Borgarastyrjöld
» Stjórnarandstæðingar segja
að 1.300 hafi fallið í efna-
vopnaárásum stjórnarhersins
á miðvikudag.
» Íranir hafna ásökunum og
segja að ef í ljós komi að efna-
vopn hafi verið notuð hafi það
verið af hálfu uppreisnar-
manna, sem þeir kalla hryðju-
verkamenn.
» Benjamin Netanyahu, for-
sætisráðherra Ísraels, sakaði
Írana hins vegar um að nota
Sýrland sem tilraunastofu.
AFP
Dauði Mörg fórnarlamba árásanna
voru jarðsett í fjöldagröfum í gær.
Yfirdómstóll á
Maldíveyjum úr-
skurðaði á mið-
vikudag að 15 ára
stúlka, sem var
nauðgað af stjúp-
föður sínum,
hefði verið rang-
lega dæmd fyrir
kynlíf utan hjóna-
bands með öðrum
manni. Neðri dómstóll hafði dæmt
stúlkuna til að sæta 100 svipuhögg-
um þegar hún næði 18 ára aldri.
Það voru stjórnvöld sem áfrýjuðu
máli stúlkunnar en það vakti heims-
athygli og varpaði ljósi á illa með-
ferð kvenna í eyríkinu. „Það er
stefna stjórnvalda að vernda fórn-
arlömb en við þurftum að gera það
innan ramma laganna,“ sagði tals-
maður forsetans, Mohameds Wa-
heeds. Sagði hann forsetann yfir sig
ánægðan með niðurstöðuna.
MALDÍVEYJAR
Dómstóll snýr við
umdeildum dómi
yfir 15 ára stúlku
Mohamed Waheed