Morgunblaðið - 23.08.2013, Side 9
FRÉTTASKÝRING
Jón Heiðar Gunnarsson
jonheidar@mbl.is
Hvalaskoðun hefur verið í mikilli
sókn síðustu ár hér á landi. Fjöldi far-
þega í hvalaskoðun hefur farið úr
2.200 manns árið 1995 í 174.000 á síð-
asta ári. Morgunblaðinu er kunnugt
um níu fyrirtæki sem gera út á slíkar
ferðir í dag. Ekki þarf sérstakt leyfi
frá Samgöngustofu til að reka hvala-
skoðunarfyrirtæki en nauðsynlegt er
að fá farþegaleyfi fyrir bát til að sinna
slíkri þjónustu.
„Það hefur verið gríðarlega mikill
vöxtur í þessari grein síðustu ár en
menn verða samt að fara varlega og
passa sig á að missa sig ekki í græðg-
inni,“ segir Sigurður Ægisson hvala-
áhugamaður og náttúruunnandi.
Hann hefur farið í hvalaskoðun all-
staðar á landinu þar sem það er í boði.
Sigurður þekkir dæmi þess að
hvalaskoðunarbátar séu að halda út á
sjó í slæmum veðrum til að standa við
sínar skuldbindingar. „Þegar fólk
kemur fárveikt til baka úr slíkum
ferðum og er að veltast um í veik-
indum marga daga á eftir þá eru
menn farnir að ganga of langt,“ segir
Sigurður. „Þetta er oft fólk sem er ó-
vant sjómennsku og jafnvel með lítil
börn með í för.“
Hann segir mikla ábyrgð fylgja
slíkum ferðum og þess vegna má ekki
eingöngu horfa í aurinn í þessum
málum. Hann kallar eftir hvalaskoð-
un á Austurlandi og Vestfjörðum en
honum er ekki kunnugt um slíka
starfsemi þar.
Hnúfubakur í hverri ferð
Fjöldi hvalategunda heldur sig hér
við land en stærsta dýr jarðar, steypi-
reyður, hefur oftast sést í Skjálfanda-
flóa við Húsavík síðustu ár.
Hvalaskoðunarfyrirtæki annar-
staðar á landinu eru samt alsæl þrátt
fyrir að steypireyðar séu ekki algeng-
ar í ferðum hjá þeim.
„Þetta er búið að ganga mjög vel í
sumar og í 70% tilvika sjáum við hvali
áður en við leggjum af stað úr höfn,“
segir Árni Halldórsson en hann rek-
ur hvalaskoðunarfyrirtæki í Hauga-
nesi.
Hann segir gríðarlega breytingu
hafa orðið á hvalaskoðun síðustu ár
þar sem hnúfubakur sést nánast í
hverri einustu ferð.
„Þetta er 20. árið okkar í hvala-
skoðun og fyrstu 4-5 árin sáum við
einfaldlega ekki hnúfubak. Hnúfu-
bökum hefur fjölgað mikið á síðustu
árum og núna eru þeir mjög algeng-
ir.“
Fyrir utan hnúfubaka er algengast
að sjá höfrunga og hnísur að sögn
Árna.
„Heilt yfir er þetta búð að ganga
mjög vel en veðrið setti aðeins strik í
reikninginn hjá okkur í sumar því við
förum ekki út nema ferðin verði þægi-
leg fyrir ferðamanninn.“
Skemmtilegasta dýrið
Árni telur hnúfubakinn vera ein-
staklega skemmtilega dýrategund.
„Þótt það sé mjög gaman að sjá
steypireyðar þá eru hnúfubakar lang-
skemmtilegasta dýrið að mínu mati.
Hnúfubakur er mjög forvitin skepna
og kemur oft mjög nálægt bátum til
að kíkja á fólkið. Það er verst að geta
ekki rukkað hann fyrir það,“ segir
Árni.
Hnúfubakur var alfriðaður 1963 og
stofninn hefur stækkað mikið síðustu
ár. Talið er að stofn hnúfubaka á Ís-
landsmiðum sé nú um 15 þúsund dýr.
Þrátt fyrir að hnúfubak hafi fjölgað
mikið í Norður-Atlantshafi og víðar
um heim á síðustu áratugum má enn
finna tegundina á válistum. Freyr
Antonsson hjá hvalaskoðunarfyrir-
tækinu Arctic Sea Tours á Dalvík tek-
ur í svipaðan streng og kollegi hans í
Hauganesi.
„Þetta hefur gengið frábærlega í
sumar. Við byrjuðum 2009 og það hef-
ur verið 100% aukning á milli ára allar
götur síðan,“ segir Freyr. Hann segir
fjölda hnúfubaka hafa margfaldast
með hverju árinu. „Núna erum við að
sjá hnúfubak í yfir 90% ferða þriðja
árið í röð og þetta eru langskemmti-
legustu dýrin, gæfir, forvitnir og
hoppa mikið.“
Ágætis byrjun í Ólafsvík
Hvalaskoðun hefur gengið vel í
Ólafsvík þrátt fyrir að veðrið hafi sett
þar strik í reikninginn í sumar að
sögn forsvarsmanna LákaTours í
Ólafsvík.
„Það hefur ekki verið mikið um
steypireyðar eða hnúfubaka hjá okk-
ur en búrhvalir hafa hins vegar sést
hér frá miðjum júlí og fram til 10.
ágúst,“ segir Gísli Ólafsson, skipstjóri
hjá LákaTours.
Hvalaskoðunarferðir lágu niðri í
Ólafsvík í fimm ár en hófust nú aftur í
sumar. Gísli telur komu makrílsins
hafa haft mikil áhrif á hvalaskoðun
frá Ólafsvík í gegnum tíðina.
Hnúfubökum fjölgar gríðarlega
Farþegum í hvalaskoðun fjölgar stöðugt Siglt út með ferðamenn í vondum veðrum Fjöldi hnúfu-
baka margfaldast Hvalaskoðun vantar á Austurlandi og Vestfjörðum Búrhvalir finnast í Ólafsvík
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Davíð og Golíat Krían reynir að næla sér í matarbita sem hefur fallið úr gini hnúfubaks við Hauganes í Eyjafirði.
Fjöldi farþega í hvalaskoðun
180.000
160.000
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
2.
20
0
9.
70
0
20
.5
40
30
.3
30
35
.4
00
44
.0
00 60
.5
50
60
.0
50
72
.2
20
81
.6
00
81
.6
00
89
.0
00
10
4.
30
0
11
5.
00
0
12
5.
00
0
11
5.
00
0
13
0.
00
0
17
4.
00
0
Heimild: Samtök ferðaþjónustunnar
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
Opið alla daga til kl. 22.00
facebook.com/malogmenning
Þessi volduga veltiorðabók er á miklum aflsætti hjá okkur út ágústmánuð
fullt verð er 7.690.-
tilboðsverð
5.990.-
4 VERÐ Í GANGI
ÚTSÖLULOK
Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is
2000 - 3000 - 3900 - 4500
Fullt af nýjum haustvörum komnar :-)