Morgunblaðið - 23.08.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
Sumarið er komið í
Álafoss
ÁLAFOSS
Álafossvegur 23, Mosfellsbær
Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00
Laugard. 09:00 - 16:00
www.alafoss.is
Bændasamtökin hafa tekið saman
lista yfir helstu fjárréttir og stóð-
réttir í haust. Mývetningar og Ey-
firðingar ríða á vaðið, en réttað
verður eftir rúma viku, sunnudag-
inn 1. september, í Baldursheims-
rétt og Hlíðarréttt í Mývatnssveit
og í Þverárrétt ytri í Eyjafjarð-
arsveit.
Ólafur R. Dýrmundsson, ráðu-
nautur hjá BÍ, hafði veg og vanda af
samantekt listans. Hér til hliðar má
sjá fjárréttir haustsins í stafrófsröð,
en að því er fram kemur á bondi.is
tókst ekki að afla upplýsinga um all-
ar réttir á komandi hausti og koma
þær því ekki fram á listanum.
Réttir í Landnámi Ingólfs, sem
stutt er að fara í fyrir íbúa höfuð-
borgarsvæðisins, verða flestar helg-
ina 21. og 22. september. Fyrstu
stóðréttir verða í Miðfjarðarrétt
laugardaginn 7. september. Listi yf-
ir stóðréttir er að finna á bondi.is.
Fyrstu vikurnar skipta miklu
Eyjólfur Ingvi Bjarnason, sauð-
fjárræktarráðunautur, segir að
ágætlega líti út með vænleika dilka
miðað við það sem búið sé að slátra
og það sem hann hafi heyrt á mönn-
um. Ekki hafi þó miklu verið slátrað
og engin heiðalönd hafi verið smöl-
uð enn.
„Það verður að hafa þann vara á
að síðasti vetur var mjög erfiður og
vorið var einnig mjög erfitt víða.
Fyrstu vikurnar í lífi lambsins hafa
mikið að segja um framhaldið. Þótt
sumarið sé hagfellt og gott er ekki
víst að lömbin verði jafnvæn í haust
og menn vona. Í fyrra var metár
víða í vænleika dilka og ég er ekki
viss um að það verði slegið í ár,“
segir Eyjólfur.
Í fyrrahaust var rúmlega 537 þús-
und lömbum slátrað og um 46 þús-
und af fullorðnu. Í fyrravetur var
heildarfjöldi ásettra kinda 476 þús-
und. aij@mbl.is
Fjárréttir haustið 2013
•Auðkúlurétt við Svínavatn,A.-Hún.
laugardag 7. sept.
•Árhólarétt í Unadal, Skag.
laugardag 14. sept.
•Baldursheimsrétt í Mývatnssv., S.-Þing.
sunnudag 1. sept.
•Brekkurétt í Norðurárdal,Mýr.
sunnudag 15. sept.
•Brekkurétt í Saurbæ,Dal.
sunnudag 15. sept.
•Broddanesrétt í Strandabyggð
sunnudag 15. sept.
•Brúsastaðarétt í Þingvallasveit, Árn.
sunnudag 22. sept.
•Dálkstaðarétt á Svalbarðsstr., S.-Þing
laugardag 7. sept.
•Deildardalsrétt í Skagafirði
laugardag 14. sept.
•Fellsendarétt í Miðdölum
sunnudag 15. sept.
•Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal.
laugardag 14. sept.
•Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang.
mánudag 16. sept. og sunnudag 22. sept.
•Fljótstungurétt í Hvítársíðu,Mýr.
laugardag 14. sept.
•Flókadalsrétt í Fljótum,Skag.
sunnudag 15. sept.
•Fossrétt á Síðu,V.-Skaft.
föstudag 6. sept.
•Fossárrétt í A-Hún.
laugardag. 7. sept.
•Fossvallarétt v/Lækjarb., (Rvík/Kóp)
sunnudag 22. sept.
•Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal.
sunnudag 15. sept.
•Gljúfurárrétt í Höfðahverfi, S.-Þing.
laugardag 7. sept.
•Grafarrétt í Skaftártungu,V.-Skaft.
laugardag 14. sept.
•Grímsstaðarétt á Mýrum,Mýr.
þriðjudag 17. sept.
•Haldréttir í Holtamannaafrétti, Rang.
sunnudag 22. sept.
•Hamarsrétt áVatnsnesi,V.-Hún.
laugardag 14. sept.
•Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn.
laugardag 21. sept.
•Héðinsfjarðarrétt í Héðinsfirði
laugardag 21. sept
•Hítardalsrétt í Hítardal,Mýr.
mánudag 16. sept.
•Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð,A.-Hún.
sunnudag 8. sept.
•Hlíðarrétt í Mývatnssveit, S.-Þing
sunnudag 1. sept.
•Hlíðarrétt í Skagafirði
sunnudag 15. sept.
•Hofsrétt í Skagafirði
laugardag 14. sept.
•Holtsrétt í Fljótum,Skag.
laugardag 14. sept.
•Hornsrétt í Skorradal, Borg.
sunnudag 15. sept.
•Hólmarétt í Hörðudal
sunnudag 15. sept.
•Hraðastaðarétt í Mosfellsdal
sunnudag 22. sept.
•Hraunarétt í Fljótum,Skag.
fimmtudag 12. sept.
•Hraungerðisrétt í Eyjafjarðarsveit
laugardag 7. sept.
•Hraunsrétt í Aðaldal, S.-Þing.
sunnudag 8. sept.
•Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn.
föstudag 13. sept.
•Hrútatungurétt í Hrútafirði,V.-Hún.
laugardag 7. sept.
•Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn.
laugardag 21. sept.
•Hvalsárrétt í Hrútafirði, Strand.
laugardag 14. sept.
•Illugastaðarétt í Fnjóskadal S.-Þing.
sunnudag 8. sept..
•Innri-Múlarétt á Barðaströnd,V.-Barð.
sunnudag 29. sept.
•Kaldárbakkarétt í Kolb., Hnappadalss.
sunnudag 8. sept.
•Kálfsárrétt í Ólafsfirði
sunnudag 22. sept.
•Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal.
laugardag 14. sept.
•Kjósarrétt í Árneshreppi, Strand.
laugardag 21. sept.
•Kjósarrétt í Kjós.
sunnudag 22. sept.
•Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn.
miðvikudag 18. sept
•Kollafjarðarrétt í Reykhólahr.,A-Barð.
laugardag 14. sept.
•Krísuvíkurrétt, Gullbringusýslu
laugardag 28. sept.
•Króksfjarðarnesr. í Reykhólasv.,A-Barð.
laugardag 21. sept.
•Landréttir við Áfangagil, Rang.
fimmtudag 26. sept.
•Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði
sunnudag 15. sept.
•Lokastaðarétt í Fnjóskadal, S.-Þing.
sunnudag 15. sept.
•Melarétt í Árneshreppi, Strand.
laugardag 14. sept.
•Miðfjarðarrétt í Miðfirði,V.-Hún.
laugardag 7. sept.
•Mýrarrétt í Bárðardal
laugardag 7. sept.
•Mýrdalsrétt í Hnappadal
þriðjudag 24. sept.
•Mælifellsrétt í Skagafirði
sunnudag 8. sept.
•Möðruvallarétt í Eyjafjarðarsveit
sunnudag 15. sept.
•Nesmelsrétt í Hvítársíðu,Mýr.
laugardag 7. sept.
•Núparétt á Melasveit, Borg.
sunnudag 15. sept.
•Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg.
miðvikudag 18. sept.
•Ósbrekkurétt í Ólafsfirði
laugardag 14. sept.
•Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg.
sunnudag 22. sept.
•Reistarárrétt í Hörgársveit, Eyf.
laugardag 14. sept.
•Rugludalsrétt í Blöndudal,A-Hún.
laugardag 31. ágúst
•Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum
laugardag 21. sept.
•Reykjarétt í Ólafsfirði
fimmtudag 12. sept.
•Reykjaréttir á Skeiðum,Árn.
laugardag 14. sept.
•Reynisrétt undir Akrafjalli, Borg.
laugardag 21. sept.
•Sauðárkróksrétt, Skagafirði
laugardag 7. sept.
•Selflatarrétt í Grafningi, Árn.
mánudag 23. sept.
•Selárrétt á Skaga, Skag.
laugardag 7. sept.
•Selvogsrétt í Selvogi
sunnudag 22. sept.
•Siglufjarðarrétt í Siglufirði
föstudag 20. sept.
•Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag.
mánudag 16. sept.
•Skaftárrétt í Skaftárhr.,V.-Skaft.
laugardag 7. sept.
•Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn.
föstudag 13. sept.
•Skarðarétt í Gönguskörðum,Skag.
laugardag 7. sept.
•Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal.
laugardag 14. sept.
•Skarðsrétt í Bjarnarfirði, Strand.
laugardag 21. sept.
•Skeljavíkurrétt í Steingrímsfirði, Strand.
laugardag 14. sept.
•Skógarétt í Reykjahverfi, S-Þing.
laugardag 7. sept.
•Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal.
sunnudag 15. sept.
•Staðarbakkarétt í Hörgárdal, Eyf.
föstudag 13. sept.
•Staðarrétt í Skagafirði
sunnudag 8. sept.
•Staðarrétt í Steingrímsfirði, Strand.
sunnudag 15. sept.
•Stafnsrétt í Svartárdal,A.-Hún.
laugardag 7. sept.
•Stíflurétt í Fljótum,Skag.
föstudag 13. sept.
•Svarthamarsrétt á Hvalfj.str., Borg.
sunnudag 15. sept.
•Svignaskarðsrétt, Svignaskarði,Mýr.
mánudag 16. sept.
•Tungnaréttir í Biskupstungum
laugardag 14. sept.
•Tungurétt á Fellsströnd, Dal.
laugardag 7. sept.
•Tungurétt í Svarfaðardal
sunnudag 8. sept.
•Undirfellsrétt í Vatnsdal,A.-Hún.
föstudag 6. sept. og laugardag 7. sept.
•Valdarásrétt í Fitjárdal,V.-Hún.
föstudag 6. sept.
•Víðidalstungurétt í Víðidal,V.-Hún.
laugardag 7. sept.
•Þorvaldsdalsrétt í Hörgársveit, Eyf.
laugardag 14. sept.
•Þórkötlustaðarétt í Grindavík
laugardag 21. sept.
•Þórustaðarétt í Hörgárdal, Eyf.
laugardag 14. sept.
•Þverárrétt ytri, Eyjafjarðarsveit, Eyf.
sunnudag 1. sept.
•Þverárrétt Eyja- ogMiklaholtshr, Snæf.
sunnudag 15. sept.
•Þverárrétt í Vesturhópi,V.-Hún.
laugardag 14. sept.
•Þverárrétt í Þverárhlíð,Mýr.
mánudag 16. sept.
•Þverárrétt í Öxnadal, Eyf.
mánudag 16. sept.
•Ölfusréttir í Ölfusi, Árn.
mánudag 23. sept.
Heimild: bondi.isFyrstu réttir
eftir rúma viku
Lítur ágætlega út með vænleika
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Úr Heiðarbæjarrétt Haustið nálgast
og leitir og réttir eru framundan.
Ókeypis verður í
strætó á Menn-
ingarnótt en
stórum hluta
miðbæjarins
verður lokað og
því aka vagn-
arnir að og frá
Hlemmi og
gömlu Hringbraut, gegnt BSÍ.
Eftir kl. 22:30 verður hefðbundið
leiðakerfi á höfuðborgarsvæðinu
gert óvirkt og allur stræt-
isvagnaflotinn verður nýttur til að
flytja fólk úr miðbænum og heim.
Ekið verður frá Hlemmi og BSÍ og
verða síðustu ferðir klukkan 00:30,
eftir flugeldasýningu.
Ókeypis í
strætó á
morgun
Sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykja-
víkur, Sjór, efnir til hins árlega Við-
eyjarsunds í dag, föstudaginn 23.
ágúst.
Lagt verður af stað kl. 17:30 frá
Skarfakletti við Sundahöfn.
Hægt er að skrá sig tímanlega og
er þá enn mikilvægara en ella að
mæta tímanlega. Einnig er hægt að
skrá sig á sjor.is. Sundið kostar
1.000 krónur en er frítt fyrir fé-
lagsmenn.
Til Viðeyjar frá Skarfakletti eru
900 metrar. Hægt er að velja milli
þess að synda aðra leiðina eða báð-
ar.
Öryggi keppenda verður í fyr-
irrúmi og gæslubátar og kajakar
fylgja sundfólkinu, að því er segir í
tilkynningu frá félaginu. Þátttak-
endur eru þó á eigin ábyrgð.
Áhugasömum er bent á að hafa
eitthvað heitt að drekka meðferðis
og hlý föt til að klæðast þegar sund-
inu lýkur. Ekki er verra ef einhver
tekur á móti þeim á bakkanum.
Í fyrra voru þátttakendur 160 og
var það metfjöldi.
Synda milli
Skarfakletts
og Viðeyjar
Morgunblaðið/Ómar
Það verða ekki aðeins hlauparar
sem munu etja kappi í hálfu mara-
þoni í Reykjavík á laugardag því
Kayakklúbburinn efnir einnig til
hálfmaraþons. Róið verður með-
fram strandlengju borgarinnar, frá
Nauthólsvík að Geldinganesi, um
22 km leið.
Þessi keppni kemur í stað
Hvammsvíkurmaraþonsins en í því
var róið frá Geldinganesi að
Hvammsvík í Hvalfirði, um tvöfalt
lengri leið.
Ræst verður klukkan 11 árdegis
frá Nauthólsvík. Við Gróttu er
skyldustopp þar sem ræðurum
verður boðið upp á hressingu.
Þátttökugjald er 1.000 krónur.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vef klúbbsins, kayakklubburinn.is.
Morgunblaðið/Kristinn
Hálfmaraþon
við strand-
lengjuna