Morgunblaðið - 23.08.2013, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
E-60
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð að
eigin vali
Verð frá kr. 24.300
Íslensk hönnun og framleiðsla
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
www.facebook.com/solohusgogn
A81
Hönnuðir: Atli Jensen og Kristinn
Guðmundsson
Verð frá kr. 27.800
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Bílakirkjugarður á Garðsstöðum í
Ísafjarðardjúpi er enn án starfs-
leyfis þrátt fyrir samkomulag sem
eigandi hans gerði við Súðavíkur-
hrepp fyrir sjö árum. Eigandinn er
með bílaparta- og brotajárnssölu á
jörðinni en síðast þegar Heilbrigð-
iseftirlit Vestfjarða taldi voru 430
bílar á henni. Nágrannar eigandans
sem reka ferðaþjónustu eru ósáttir
við starfsemina sem er starfs-
leyfiskyld vegna mengunarhættu.
Að sögn Þorbjarnar Steingríms-
sonar á Garðsstöðum hóf hann
starfsemina árið 1981. Hann kaupir
bílana úr nágrannasveitum og rífur
þá niður. Partana selur hann til
hinna og þessa um allt land en
brotajárnið selur hann til endur-
vinnslufyrirtækisins Hringrásar.
Það hafi tekið við á annað þúsund
tonna af brotajárni frá honum frá
árinu 2006.
Þorbjörn sótti um starfsleyfi fyr-
ir starfsemina árið 2006 en var
synjað vegna þess að jörðin er skil-
greind sem landbúnaðarjörð á
skipulagi. Í kjölfarið gerði hann
samkomulag við Súðavíkurhrepp
um að fækka bílunum niður í 90 en
í staðinn ætlaði hreppurinn að
breyta skipulaginu. Síðan hefur lítið
gerst og bílhræin á jörðinni litlu
færri en fyrir sjö árum. Þorbjörn
skýtur á að þau séu nú um 380 tals-
ins.
„Þetta stendur í því sama
óbreytt. Ég hef ekkert gert neitt
meira í því sjálfur og það hefur
ekki gerst meira. Ég hef ekki
ákveðið hvað ég geri,“ segir Þor-
björn.
Bagalegt fyrir alla viðkomandi
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps, segir að sveitar-
félagið hafi skipt sér af starfsem-
inni árið 2006 því þá hafi fjöldi bíl-
hræja á jörðinni þótt of mikill. Þá
hafi samkomulagið verið gert og
það endurnýjað 2010. Bílunum hafi
fækkað síðan en betur má ef duga
skal.
„Samkomulagið gengur einfald-
lega út á að við aðstoðum hann við
að koma sér upp starfsleyfi þegar
bílafjöldinn er kominn niður í
ásættanlega tölu. Ég á von á að það
náist þó að það hafi tekið lengri
tíma en heppilegt væri,“ segir Óm-
ar Már.
Sveitarstjórinn tekur þó fram að
ágætis samstarf hafi verið um starf-
semina við Þorbjörn. Það sé þó
bagalegt fyrir alla aðila, að honum
meðtöldum, að hann sé ekki með
starfsleyfi fyrir starfseminni.
„Þetta er klárlega starfsleyfis-
skyld starfsemi þar sem öllum í
sambærilegum iðnaði er gert að
lúta reglum. Það er ótækt að sum-
um sé gert að fara eftir þeim en
aðrir komist upp með að gera það
ekki. Það er vissulega kominn tími
til að taka næsta skref í málinu því
það er ekki verið að fylgja eftir því
samkomulagi sem var gert,“ segir
Ómar Már.
Anton Helgason, framkvæmda-
stjóri Heibrigðiseftirlits Vestfjarða,
segir að ekki sé mengunarhætta af
bílhræjunum. Þorbjörn fjarlægi olíu
úr þeim og rafgeyma eins og eft-
irlitið hafi farið fram á.
Ekki bráð hætta
„Það er alltaf reynt að fara
samningaleiðir áður en farið er út í
harðari aðgerðir. Við höfum ekki
farið út í aðgerðir út af þessu. Það
er ekki bráð hætta af starfseminni,
hvað sem síðar verður,“ segir Ant-
on.
Leifur Halldórsson er einn af eig-
endum Ögurferða, ferðaþjónstufyr-
irtækis í Ögri við hlið Garðsstaða.
Hann er afar ósáttur við ástandið
enda sjónmengun að bílhræjunum.
„Við erum að reyna að reka
ferðaþjónustu og við höfum áhyggj-
ur af því að þetta hafi áhrif á hana,“
segir Leifur. Þá veltir hann fyrir
sér hvort sveitarfélagið væri skaða-
bótaskylt ef fasteignaverð í ná-
grenni Garðsstaða lækkaði, vildi
hann selja jörðina sína einn daginn.
Enn ekkert starfsleyfi sjö árum síðar
Á fjórða hundrað bílhræja í bílakirkjugarði á Garðsstöðum í Ísafjarðardjúpi Nágrannar óttast
áhrif á ferðamennsku Sveitarstjóri segir ótækt að sumir komist undan því að vera með starfsleyfi
Garðsstaðir Þorbjörn segir að hundruð ferðamanna leggi leið sína til sín á hverju ári til að skoða bílana.