Morgunblaðið - 23.08.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
VIÐTAL
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ríkharð Ríkharðsson, formaður Af-
stöðu, félags íslenskra fanga, segir
að bæði starfsfólk og fangar séu
meðvitaðir um þá fíkniefnaneyslu
sem fram fer á Litla-Hrauni þar sem
hann er vistaður. Hins vegar hafi
neyslan verið í lágmarki að undan-
förnu. „Þetta er fangelsi og það
verður alltaf einhver neysla. En
þetta hefur verið í algjöru lágmarki í
sumar,“ segir Ríkharð.
Þetta er sjúkdómur
Ríkharð hefur að eigin sögn alls
setið í fangelsi í fjögur til fimm ár.
Aðspurður hvers vegna minni neysla
hafi verið innan veggja fangelsisins
að undanförnu segir hann að þakka
megi það auknu eftirliti auk þess
sem samsetning fanga sé önnur en
hún hefur verið. „Hópurinn hefur
verið góður í sumar. Ég hef verið
hér fjögur eða fimm sumur og aldrei
orðið var við eins litla fíkniefna-
neyslu og núna í sumar,“ segir Rík-
harð.
Aðspurður segir hann meðferðar-
úrræði sem föngum er boðið upp á
mjög góð. Hins vegar séu yfirvöld of
fljót að grípa til refsinga þegar menn
„detta í það“.
„Þetta er náttúrlega sjúkdómur
og þú refsar ekki veikum mönnum,“
segir Ríkharð.
Hjálpa mönnum að verða edrú
Eins og fram kemur í máli Jóns
Þórs Kvaran, meðferðarfulltrúa á
Litla-Hrauni, eiga fangar gjarnan til
að falla í freistni þegar þeir eiga
samneyti við aðra fanga á opnum
svæðum. Segir hann þá sem eru í
neyslu eiga það til að reyna að draga
hina fangana með sér. Ríkharð segir
þetta ekki vera tilfellið um þessar
mundir. „Ef einn af félögum okkar
segist ætla að vera edrú þá hjálpum
við honum. Þá eru strákarnir ekki að
ota neinu að honum. Meðferðar-
gangurinn er virtur. Menn vita að
það á ekki að bjóða mönnum neitt
sem eru í meðferð,“ segir Ríkharð.
Hann segir viðhorf hafa breyst mik-
ið síðan hann hóf afplánun. „Með-
ferðargangurinn er orðinn miklu
sterkari í dag en hann var. Þá var
hann nýr en hann verður betri með
hverju árinu,“ segir Ríkharð.
Aðspurður um smyglleiðir inn í
fangelsið og hvort fangar þekki leið-
ir til þess að koma fíkniefnum þang-
að segir Ríkharð svo vera. „Almenn-
ir fangar og almennir starfsmenn
eru meðvitaðir um þetta. Með nýrri
tækni komar nýjar leiðir. Þetta
verður alltaf til staðar en það er
kannski hægt að stjórna því að ein-
hverju leyti hversu mikið magn fer
inn í fangelsin,“ segir Ríkharð.
Fíkniefnaneysla í lágmarki
Formaður Afstöðu segir góð meðferðarúrræði á Litla-Hrauni Segir alltaf
hægt að finna leiðir til að smygla fíkniefnum Refsingar eru ekki rétta leiðin
Morgunblaðið/Júlíus
Fangaklefi Formaður Afstöðu segir fíkniefnaneyslu í lágmarki á Litla-
Hrauni. Þakka megi auknu eftirliti og betri samsetningu fanga.
Margrét Frímannsdóttir, for-
stöðumaður fangelsisins að
Litla-Hrauni segir að tölur um
minni fíkniefnaneyslu í fang-
elsum séu í takt við hennar upp-
lifun. Meðferðarúrræði fangels-
isins og bættu eftirliti sé að
þakka. „Ég tel að meðferð-
argangurinn hafi gjörbreytt
hugarfari margra stráka sem
eru vistaðir á Litla -Hrauni. En
það er alltaf ákveðinn hópur
sem er vistaður í fangelsi sem
er alls ekki tilbúinn til þess að
taka á sínum málum,“ segir
Margrét. Hún segir hlutfall
fanga sem eigi við fíkniefna-
vandamál að stríða haldast lítið
breytt. „Dómar hafa verið að
þyngjast og því breytist sam-
setning fangahópsins minna á
milli ára en áður,“ segir Mar-
grét. Hún segir að þeir fangar
sem koma nýir inn eigi ekki síð-
ur við fíkniefnavanda að stríða
en áður. „Langflestir fangar eru
hér tengdir brotum sem rekja
má til fíkniefnaneyslu,“ segir
Margrét.
Oftast tengd
fíkniefnum
SVIPUÐ NEYSLA ALLT ÁRIÐ
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Oft er talað um Magnesíum sem„anti –stress“ steinefni
því það róar taugarnar og hjálpar okkur að slaka á. Magnesíum stjórnar og virkir um
300 ensím sem gegna mikilvægum hlutverkum í eðlilegri virkni líkamans. Það er
nauðsynlegt fyrir frumumyndun, efnaskipti og til að koma á jafnvægi á kalkmyndun
líkamans og fyrir heilbrigða hjartastarfsemi. Magnesíum er líka afar hjálplegt við
fótaóeirð út af vöðvaslakandi eiginleikum þess. Mjög gott er að taka magnesíum í
vökvaformi fyrir svefn til að ná góðri slökun og vakna úthvíldur.
Magnesium vökvi
Virkar strax
• Til að auka gæði svefns
• Til slökunar og afstressunar
• Hröð upptaka í líkamanum
• Gott til að halda
vöðvunum mjúkum
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Morgunblaðið greindi í gær frá
óánægju móður vegna fjölda daga yf-
ir skólaárið þar sem ekki er gert ráð
fyrir að börnin
mæti í skólann.
Slíkt sagði hún
erfitt fyrir vinn-
andi fólk sem
þyrfti að taka
meira frí úr vinnu
en sem nemur
sumarfríi til að
mæta þessu.
Þannig reiknaðist
henni til að for-
eldrar þyrftu að mæta 55 fleiri frí-
dögum en þeir hefðu yfir að ráða.
Bundið í kjarasamninga
Auður Árný Stefánsdóttir, skrif-
stofustjóri grunnskólaskrifstofu
Reykjavíkurborgar, sagði fjölda
starfsdaga kjarasamningsatriði.
„Þessi fjöldi starfsdaga er bundinn í
kjarasamninga, lög og reglugerðir,“
sagði Auður. Hún sagði einnig að
skólaárið á Íslandi væri nokkru
styttra en þekktist hjá einhverjum
hinna Norðurlandaþjóðanna, þó svo
að skólaárið hér hefði lengst nokkuð
á undanförnum árum. „Það er ekki
langt síðan þeir urðu 180. Hins vegar
er rétt að vekja athygli á því í þessari
umræðu að Reykjavíkurborg býður
upp á frístund alla daga fyrir nem-
endur í 1. til 4. bekk grunnskóla, líka
þá daga sem ekki er kennt.“ Börn í
yngstu bekkjum grunnskóla eru því
ekki send heim á dögum þar sem
ekki er kennt allan daginn og geta
komið í skólann þá daga sem ekki er
skipuleg kennsla.
Kjarasamningar ráða starfinu
Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í skóla- og frístunda-
ráði, sagði skólastarf í grunnskóla að
of miklu leyti stjórnast af kjarasamn-
ingum. „Leiðin til úrbóta er að draga
úr miðstýringu í kerfinu, auka sveigj-
anleika og gera aðstæður líkari því
sem gerist á almennum vinnumark-
aði.“ Hann bendir á kerfi sem hefur
verið kennt við bókun fimm, en það
gengur út á öðruvísi og sveigjanlegri
stjórnun grunnskóla. „Þessi stjórnun
hefur verið tekin upp í nokkrum skól-
um borgarinnar með samningum við
kennara, sem felur í sér sveigjanlegri
kennsluhætti, og ég hef orðið var við
mikla ánægju með hana.“
Vandi grunnskól-
ans kerfislægur
Kjarasamningar ráða starfsdögum
Kjartan
Magnússon