Morgunblaðið - 23.08.2013, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
AGA GAS
ER ÖRUGGT
VAL HEIMA
OG Í FRÍINU
Þú getur verið afslappaður og öruggur
við grillið með AGA gas. Öruggur um
að þú ert að nota gæðavöru og að
þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft
áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú
nýtir þér heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú
heimsækir söluaðila AGA.
Farðu á www.gas.is og finndu
nálægan sölustað eða sæktu
öryggisleiðbeiningar og fáðu
upplýsingar um AGA gas.
www.GAS.is
STUTTAR FRÉTTIR
● Hagvöxtur á mann verður 0,9% í ár
samkvæmt mannfjöldaspá Hagstof-
unnar sem birt var í morgun og þjóð-
hagsspá stofnunarinnar. Reiknar stofn-
unin með 0,8% vexti mannfjöldans og
1,7% hagvexti.
Greining Íslandsbanka segir ljóst að
hagvöxturinn á mann í ár verði hægur,
en að meðaltali hefur hagvöxtur á mann
verið hér á landi 1,8% ári síðustu tutt-
ugu ár.
Hagstofan gerir ráð fyrir 1,9% hag-
vexti á mann árin 2014 og 2015.
0,9% hagvöxtur á mann
● Á öðrum ársfjórðungi þessa árs hef-
ur WOW air flutt 25% fleiri farþega en
samanlagður fjöldi WOW air og Iceland
Express á sama tíma í fyrra. Sætanýt-
ingin á ársfjórðungnum var 82%, en á
fyrsta ársfjórðungi var hún 85%. Til
samanburðar var samanlögð sætanýt-
ing Iceland Express og WOW air á öðr-
um ársfjórðungi í fyrra 63% og því er
um 20 prósentustiga hækkun að ræða.
Nær allar brottfarir WOW air voru á
réttum tíma eða í 98% tilvika síðustu
tvær vikurnar í júlí.
Sætanýting WOW air
eykst um 20 prósentur
Nokkur vestræn lyfjafyrirtæki eru sökuð um
spillingu í Kína og sæta rannsókn. Bandaríska
lyfjafyrirtækið Eli Lilly er nýjast í röðinni, en
það er sakað um að hafa greitt læknum hátt í
sex hundruð milljónir íslenskra króna til að
skrifa upp á lyf frá fyrirtækinu til sykursjúkra
til að hafa betur í baráttunni við danskan keppi-
naut sinn Novo Nordisk, segir í frétt Financial
Times.
Erlendir fjölmiðlar hafa sagt frá því að lyfja-
fyrirtækin Novartis, Sanofi, Lundbeck og Astra
Zeneca séu sökuð um spillingu og sæti opinberri
rannsókn. GlaxoSmithKline er sakað um að
greiða 500 milljónir dollara eða 60 milljarða
króna með ólögmætum hætti.
Á seinasta ári samþykkti Eli Lilly að greiða
bandarískum stjórnvöldum 29 milljónir dollara
eða 3,5 milljarða króna vegna ásakana um spill-
ingu erlendis, meðal annars að hafa falsað gögn
um kostnað í Kína á árunum 2006-2009, svo sölu-
menn gætu gefið t.d. gjafir og máltíðir.
Kínversk stjórnvöld tilkynntu í liðinni viku að
gera ætti rannsókn á lyfjaverði og spillingu í
heilbrigðisgeiranum yfirgripsmeiri en hún var.
Að undanförnu hafa kínverskir fjölmiðlar
fjallað mikið um meinta spillingu í heilbrigð-
isgeiranum í kjölfar þess að upplýst var um að
rannsaka ætti meintar mútur frá starfsmönnum
GlaxoSmithKline. Lögreglan þar í landi segir að
um 59 milljarðar króna hafi farið í gegnum
ferðaskrifstofur til þess að múta læknum og
GSK hefur viðurkennt að sumir starfsmenn fyr-
irtækisins hafi brotið kínversk lög.
Fyrir skömmu hófu kínversk stjórnvöld að
rannsaka franska lyfjafyrirtækið Sanofi eftir
ábendingu um að starfsmenn þess mútuðu lækn-
um. helgivifill@mbl.is
Eli Lilly er nýjast í
röðinni og er sakað um að
hafa greitt læknum mútur
Apótek Kínverskir neytendur sitja fyrir utan apótek í Pekíng. Vestræn lyfjafyrirtæki sæta rannsókn.
AFP
Lyfjafyrirtæki sökuð um spillingu
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./,
+01.23
++4.10
,+.454
+5.12/
+0.4/,
+,5.12
+.,,-4
+0,.05
+2-.34
+,-.0+
+00.-5
++/.+,
,+.//1
+5.0,3
+0./-2
+3-.+,
+.,,4
+03.44
+2-.15
,+4.0354
+,+.+
+00.//
++/.42
,+.2,
+5.00+
+0./2
+3-.40
+.,,12
+03.55
+2+.,4
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Færeyski bankinn Eik hagnaðist
um 54 milljónir danskra króna,
jafnvirði 1,2 milljarða íslenskra
króna, á fyrstu 6 mánuðum ársins.
Í tilkynningu kemur fram að
eiginfjárhlutfall bankans sé 23,3%,
en lögbundið lágmark er 11,2%.
Fyrr á árinu voru nokkrir yfir-
menn bankans kærðir til efnahags-
brotadeildar lögreglunnar. Var það
gert í kjölfar rannsóknar fjármála-
eftirlitsins á aðdraganda þess að
bankinn féll árið 2010 og danska
ríkið tók bankann yfir.
Hlutabréf Eikar voru á sínum
tíma skráð í Kauphöll Íslands.
Bankinn Eik
hagnast
Íslenska fyrirtækið Creditinfo
stendur í september næstkomandi
fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um
áhættustjórnun í Prag. Á meðal
ræðumanna á ráðstefnunni verða
stjórnendur Paypal, Societe Gene-
rale Group, International Finance
Corporation og Bank of Georgia.
Í tilkynningu segir að á ráðstefn-
unni mæti fjöldi alþjóðlegra sér-
fræðinga um viðskipta- og útlána-
áhættu og gefst þeim þar tækifæri
til þess að deila hugmyndum sínum
um helstu úrlausnarefni sem við
blasa í starfsumhverfi lánastofnana
um þessar mundir. kij@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Creditinfo Heldur ráðstefnu í Prag.
Creditinfo
heldur
ráðstefnu