Morgunblaðið - 23.08.2013, Qupperneq 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
F L Í S A V E R Z L U N
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur | S: 554 6800 - Fax: 554 6801 | Njarðarnesi 9, 603 Akureyri | S: 466 3600 - Fax 466 3601 | www.vidd.is
Veldu rétt
FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
HUMARSALAT “á la Café Paris”
með klettasalati, papriku, fetaosti, sultuðum rauðlauk,
cous-cous og hvítlaukssósu
RISARÆKJUR MARINERAÐAR
í chili, engifer og lime, bornar fram með spínati,
klettasalati, rauðlauk, tómötum,
mangó og snjóbaunum
BARBERRY ANDAR ,,CONFIT” SALAT
með geitaosti, brenndum fíkjum, fersku salati,
rauðrófum, melónu, ristuðum graskersfræjum,
rauðlauk og appelsínufíkjugljáa
Í fréttum hefur
komið fram, að Ragn-
heiður Elín Árnadótt-
ir, ráðherra, hafi ný-
verið farið um svæðið,
þar sem Norð-
lingaölduveita kæmi til
með að verða, ef af
framkvæmdum verð-
ur. Fram kom m.a. að
augu ráðherrans fyrir
þessari framkvæmd
hefðu opnast og skiln-
ingur aukist til muna við yfirferð
hans um svæðið. Var ekki annað á
ráðherranum að heyra en að hann
teldi eftir þetta sjálfsagt að ráðast í
framkvæmdina. Aðdáunarvert er,
að það tók ráðherrann aðeins dags-
stund að líta á svæðið
og mynda sér skoðun.
Venjulegur ferða-
langur myndi eflaust
þurfa nokkra daga til
að átta sig vel á að-
stæðum.
Skoðunarferð þessi
hefur væntanlega ver-
ið farin í boði Lands-
virkjunar undir hand-
leiðslu sérfræðinga og
yfirmanna félagsins.
Engum sögum fer af
því, að hinum að-
ilanum, náttúruvernd-
arsamtökum og fleirum, hafi verið
gert kleift að koma að málinu og fá
þannig notið þess jafnræðis, sem
vera ber. Afstaða ráðherrans virðist
því hafa mótast af snöggsoðnum
heilaþvotti Landsvirkjunar. Ekki
væri gott að eiga t.d. dómsmál und-
ir dómara, sem dregist hefði inn í
að skoða mál með sambærilegum
einhliða hætti. Vonandi sýnir iðn-
aðarráðherra af sér vandaða stjórn-
sýslu í framtíðinni.
Vitrun ráðherra
atvinnuvega- og nýsköpunar
Eftir Björn Ólaf
Hallgrímsson » Yfirlýsingar
Ragnheiðar Elínar
Árnadóttur, ráðherra,
um nýja sýn á Norð-
lingaölduveitu vekja
spurningar um
einhliða málflutning
Landsvirkjunar.
Björn Ólafur
Hallgrímsson
Höfundur er lögfræðingur
og starfar sem lögmaður.
Forseti vor, æðsti
maður þjóðarinnar, er
mikilmenni, maður al-
þýðunnar, hógvær og
lítllátur.
Allar tillögur um lög
sem meirihluti Alþing-
is hefur samþykkt
verður hann að stað-
festa með undirskrift
sinni til þess að þau
öðlist lagagildi fyrir
þjóðina.
Hann hefur opnað möguleika
fyrir almenning í gegnum sig að
hafa áhrif á lagasetningar Alþing-
is, með því að virkja og beita 26.
gr. núverandi stjórnarskrá lýðveld-
isins.
Það hefur hann gert nokkrum
sinnum, þegar ákveðinn fjöldi
kosningabærra aðila, 20 þúsund
eða fleiri, hefur skorað á hann að
stöðva tiltekið frumvarp. Forseti
vor hefur því mikið vald sem er
vandmeðfarið.
Þegar 38.000 áskriftir almennra
borgara óskuðu þess að hann beitti
26. gr. til að stöðva ákveðið mál
frá drengjunum hans BB og SDG
sem snertir undirstöðuatvinnufyr-
irtæki okkar. LÍÚ, var hann
neyddur til erfiðra ákvarðana.
Þessir 38 þúsund óvitar, sem
sennilega eru allir stuðningsfólk
heilbrigðisráðherra, vildu hjálpa
ráðherranum, Kristjáni Júlíussyni,
að ná í þessa 8-9 milljarða frá
LÍÚ, sem hefðu reddað honum og
heilbrigðisgeiranum, en forseti vor
hafnaði beiðninni og með því millj-
örðunum frá LÍÚ.
Þar sem forseti vor veit af víð-
tækri visku sinni að almenningur
hefur lítið vit á pólitík þá reynir
hann af lítillæti sínu að útskýra
mismuninn á þeirri ákvörðun sinni
að hafna beiðni 38.000 áskorenda
en samþykkja beiðni 20.000 áskor-
enda, t.d. mismuninn á leigu-
tekjum og skattatekjum.
Ef sveitarfélag á land og leigir
landið fyrirtæki fyrir rekstur sinn
þá er ekkert óeðlilegt að sveitarfé-
lagið taki bæði leigu af landi sínu
(það er jú föst auðlind) og fast-
eignaskatta af fasteignum á land-
inu og tekjuskatt af hagnaði fyr-
irtækisins,
En það er annað með útvegsfyr-
irtæki, þau eiga oftast litla eða
enga fasteign, bara skip og skip er
engin fasteign (það er yfirleitt allt-
af á hreyfingu) og sjór er ekki
land, sjór er óstöðug, fljótandi auð-
lind, sem erfitt er að henda reiður
á, svo ekki er hægt að líkja þess-
um tveim auðlindum saman með
tilliti til leigutöku eða skattlagn-
ingar.
Hvort óvitar skilja þetta skal
ósagt látið því forseti
vor er engum öðrum
líkur í framkomu og
athöfnum. Ég vona að
forseti vor, af víðsýni
sinni og visku, haldi
áfram þessu frábæra
starfi sínu og fari að
virkja og beita fleiri
ákvæðum í núverandi
stjórnarskrá, en 26.
gr. sem hann nú þeg-
ar hefur virkjað.
Eftirfarandi grein-
ar þarf hann að virkja
og beita.
25. gr. en þar segir: „Forseti
lýðveldisins getur látið leggja fyrir
Alþingi frumvarp til laga og ann-
arra samþykkta.“
28. gr. En þar segir: „Þegar
brýna nauðsyn ber til, getur for-
seti gefið út bráðabirgðalög (þegar
Alþingi er ekki að störfum.) Ekki
mega þau þó ríða í bága við stjórn-
arskrána. Ætíð skulu þau lögð fyr-
ir Alþingi þegar það kemur saman
á ný.“
Í 29. gr. segir: „Forseti getur
ákveðið, að saksókn fyrir afbrot
skuli falla niður, ef ríkar ástæður
eru til. Hann náðar menn og veitir
almenna uppgjöf saka.“
Í 30. gr. segir: „Forsetinn veitir
sjálfur, eða með því að fela það
öðrum stjórnvöldum, undanþágur
frá lögum og reglum, sem farið
hefur verið eftir hingað til.“
Þetta er orðrétt tekið upp úr nú-
verandi stjórnarskrá lýðveldisins.
Ég er hér um bil viss um að
þegar forseti vor hætti við að
hætta sem forseti vor, þá var hann
að hugsa um að nota þessar grein-
ar til að bjarga þjóð sinni
Hugsið ykkur ef forseti vor legði
fyrir Alþingi frumvörp samkvæmt
25. gr. um meiri jöfnuð í þjóðfélag-
inu, sem honum er svo umhugað
um eða bann við hroka og mikil-
læti embættismanna, sem er svo
algengt hjá mönnum í háum emb-
ættum.
Eða gefa út samkvæmt 28. gr.
t.d. um að menn mættu ekki safna
undirskriftum nema með samþykki
hans.
Fella niður saksókn fyrir afbrot
og náða menn. Samkvæmt 29. gr.
t.d. að náða nána vini og veita
sjálfur undanþágur frá lögum, sem
farið hefur verið eftir hingað til.
samkvæmt 30. gr.
Allt þetta gæti forseti vor gert,
alveg eins og hann hefur beitt
26.gr. því ég veit ekki betur en að
allar greinar í stjórnarskránni séu
jafn réttháar.
Hann gæti t.d. gefið út, eða lagt
fyrir Alþingi frumvarp til laga um
að ekki mætti skamma vini sína og
LÍÚ.
Hann gæti sagt nafna sínum,
Óla sérstökum saksóknara, að
hætta að pikka í útrásarvíkingana
vini sína og fara bara heim, og
fleira og fleira gæti hann gert.
Forseti vor má ekki í hógværð
sinni og lítillæti stoppa við 26. gr.
Hann verður að nota allt sitt vald
til að óróadeildin á Alþingi hætti
þessu þvargi og geri eins og hann
vill, því eins og allir vita er þar
hver höndin upp á móti annarri og
forseti vor verður að sýna hver
valdið hefur.
Á hátíðastundum er forseti vor,
æðsti maður landsins, oft kallaður
landsfaðir, mér finnst að við ætt-
um, þegar hann fer að beita fram-
angreindum stjórnarskrár ákvæð-
um ekki að kalla hann lengur
forseta vor, heldur „Faðir vor á
Bessastöðum“.
Forseti vor
Eftir Hafstein
Sigurbjörnsson » Forseti vor hefur því
mikið vald sem er
vandmeðfarið.
Hafsteinn
Sigurbjörnsson
Höfundur er eldri borgari.