Morgunblaðið - 23.08.2013, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2013
Þjónusta og síur
fyrir allar tegundir
af loftpressum
ÞRÝSTILOFT FYRIR ALLAN IÐNAÐ
LOFTPRESSUR – SÍUR – LOFTÞURRKARAR
idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is | Smiðjuvegur 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700
Gott ú
rval á
lager
ÞÝSKAR GÆÐA
PRESSUR
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu óhræddur við að segja það sem
þér býr í brjósti. Sérhver samkoma í dag
verður skemmtileg þar sem allir þátttakendur
fá notið sín.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú verður ekki lengur hjá því komist að
leysa þau mál sem hvílt hafa á þér. Að segja
það sem maður hugsar leiðir ekki alltaf til
ánægjulegrar niðurstöðu, en gerir það í dag.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert að brjótast í þeim málum
sem þér finnst þér ofvaxin. Nú er rétti tíminn
til þess, því fólk er vingjarnlegra en ella í ann-
arra garð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú kemst hreinlega ekki yfir meira á
sólarhring án þess að biðja vini þína að hjálpa
til. Brettu upp ermarnar og taktu til starfa.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fæst orð hafa minnsta ábyrgð og þú
myndir seint fyrirgefa sjálfum þér ef þú yrðir
til þess að ljóstra upp viðkvæmu leyndarmáli.
Mundu að allir hafa eitthvað til síns ágætis.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinur eða kunningi lætur ekki vel að
stjórn þessa dagana, sama hvað þú reynir.
Einhver gæti tekið upp á því að segja þér til
syndanna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur lúmskan grun að einhver sé
vinur þinn til að fá eitthvað út úr þér. Ef þú
hefur sterkar tilfinningar og skoðanir á ein-
hverju geturðu ekki snúið þér undan.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú skalt varast óþarfa eyðslu í
dag, að öðrum kosti áttu á hættu að lenda í
skuld. Að hoppa um með frábæra framtíð-
arsýn og miklar vonir er gott, en ekki núna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að huga vandlega að
þeim skuldbindingum sem þú hefur und-
irgengist. Notaðu ástríðu þína til að greiða
fyrir persónulegri velgengni þinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur mikinn sjálfsaga og gerir
stundum of miklar kröfur til sjálfs þín. Ný
manneskja fær þig til þess að ljóma af skap-
andi orku.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sporðdrekinn er venju fremur að-
laðandi og fær tækifæri til þess að hitta ein-
hvern einstaklega heillandi í kvöld. Sinntu
vinum þínum og hlustaðu á þá.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú getur nýtt sannfæringarkraft þinn
til að bæta aðstæður þeirra sem minna mega
sín. Hafðu samt andvara á þér því alltaf getur
eitthvað komið upp á og þá er gott að vera
við öllu búinn.
Ólafur G. Einarsson, fyrrv. for-seti Alþingis, fór til laxveiða í
Hítará á dögunum. Seinni nóttina
fékk hann herbergi merkt „Elda-
buska“, þar sem ráðskona var í
fríi og hafði brugðið sér milli
bæja. Þegar föggur Ólafs voru
bornar inn í herbergið að kvöldi
fyrri veiðidags orti Hjálmar Jóns-
son:
Veiðihollið í ströngu stríðir
og strýkur af sér með tuskunni.
En Ólafur kemur seint og um síðir
og sefur hjá eldabuskunni.
20. ágúst skrifaði Davíð Hjálmar
Jónsson í Leirinn: „Í dag hefst
gæsaveiðitímabilið. Skyttur eru
helst á ferð í miðri sveit, þar sem
ekki er hætt við villum og hrakn-
ingum eins og á rjúpnaveiðum:
Skjóta þeir gæsir í blómlegri byggð
á bylgjandi ökrum og túnum.
Reiðhross og alisvín ærast af styggð,
eins hrapar nytin í kúnum.
Ármann Þorgrímsson orti af því
tilefni, að nú er 10 þúsund króna
seðill í prentun:
Bætur hækka, bráðum finn
blása vinda hlýtt á kinn;
einhver bið þó enn um sinn,
er í prentun seðillinn.
Vésteinn Valgarðsson segir frá
því, að hann hafi keypt tvær bæk-
ur, sígild rit og verðmæt, og þar
af leiðandi dýr, „eiginlega ætti ég
frekar að kalla það fjárfestingu en
bara kaup. Við – bækurnar og ég
– eigum eftir að eiga góðar stund-
ir saman í dyngjunni þar sem ég
iðka yndislestur. Þar sem bæk-
urnar snúast að miklu leyti um
bragfræði þótti mér við hæfi að
fleygja einni vísu með í kaupunum:
Augun fyllast unaði
er ég sest í dyngju.
Oft um minna munaði
mína hillu og pyngju.
Philip Vogler, Egilsstöðum,
sendi mér línu 20. ágúst með þeim
orðum að „mér fannst upplagt að
gera eitthvað úr stuðluðu orð-
unum sem lýstu fjárhundum á síðu
Moggans í dag, að hundurinn yrði
að vera „snöggur og snarpur“.
Í snúninga vil snarpan hund
sem snöggur rekur fé.
Hirðir það af grænni grund
í góða rétt úr tré.
Við útrás grípur garpsins hönd,
gjarnan tekur fé.
Græðgi engin girða bönd
ef gróði fæst í té.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af búpeningi og löxum, seðla-
prentun og dýrum bókum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ ER MEÐ GOTT ÚTSÝNI
AÐ STRÖNDINNI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að þú getur
ekki tapað.
BARA REYKUR OG S
PEGLAR.
GJAFIR FYRIR ÞÁ S
EM
TRUFLAST AUÐVELD
LEGA.
OPIÐ
KREMJ!
HEIMURINN VÆRI
BETRI STAÐUR EF
KÖNGULÆR FENGJU
AÐ RÁÐA.
TIL AÐ BYRJA MEÐ,
ÞÁ VÆRI MINNA
AF ÞESSU!
KEMUR HELGA
EKKI HEIM Í
DAG FRÁ MÖMMU
SINNI?
JÚ …
ÆTTIR ÞÚ EKKI AÐ
TAKA TIL AÐEINS?
HÚN KEMUR EKKI FYRR
EN EFTIR HÁLFTÍMA EÐA
SVO …
Víkverji hefur talsverða reynslu afþví að nota strætókerfi borg-
arinnar á síðustu árum. Um það má
auðvitað ýmislegt jákvætt segja en
einnig er eitt og annað sem hægt er
að tína til sem betur má fara. Sjálf-
sagt er það ekki hrist fram úr erminni
að finna út og skipuleggja heppileg-
ustu leiðirnar fyrir vagnana.
x x x
Þrátt fyrir að það sé haft í huga erengu að síður erfitt að horfa upp
strætó eiga í basli með að fara hring á
tilætluðum tíma. Víkverji notar
gjarnan leið 15 sem fer fremur langa
leið. Staðan er einfaldlega sú að þó
um kjöraðstæður sé að ræða þá eiga
vagnstjórarnir fullt í fangi með að
halda áætlun sína þegar þeir aka 15.
x x x
Víkverji hefur tekið eftir því að þeg-ar umferð er með minnsta móti
þá rétt nær leið 15 að halda áætlun.
Tímaáætlunin er einfaldlega ekki
raunhæf fyrir þessa leið. Um leið og
umferð þyngist þá er það nánast bor-
in von að leið 15 skili sér á réttum
tíma. Nú má auðvitað líta svo á að far-
þegar geti beðið eftir vagninum í
örfáar mínútur eða jafnvel verið örfá-
um mínútum á eftir áætlun. Málið er
bara ekki svo einfalt, sérstaklega ef
viðskiptavinirnir ætla sér að skipta
um vagn.
x x x
Í tilfelli leiðar 15 er ágætt dæmi aðtaka þegar vagninn stoppar í Ár-
túnsbrekkunni á sama tíma og þrír
aðrir vagnar. Eða á að vera á sama
tíma öllu heldur. Farþegar eiga þar
að fá tækifæri til að vippa sér yfir í
leið 5, 6, 15 eða 18. Hvimleitt er
hversu oft leið 15 nær ekki skipting-
unni og hinir vagnarnir eru einfald-
lega farnir til að reyna að halda áætl-
un. Þegar slíkt gerist er um fátt
annað að ræða en bíða í hálftíma í Ár-
túnsbrekkunni.
x x x
Stjórnmálamenn okkar leyfa sér oftað gagnrýna samlanda sína fyrir
að nota ekki almenningssamgöngur.
Jafnvel hafa verið búin til orð í því
sambandi, eins og „einkabílismi“.
Væri þeim raunveruleg alvara með
þeirri gagnrýni þá myndu þeir vænt-
anlega bjóða upp á betri þjónustu en
raun ber vitni. víkverji@mbl.is
Víkverji
Eins og hindin þráir vatnslindir þráir
sál mín þig, ó Guð. (Sálmarnir 42:2)