Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Side 14
G
uðbrandur Árni Ís-
berg sálfræðingur
er höfundur bók-
arinnar Í nándinni
– Innlifun og um-
hyggja, en þar fjallar hann um það
sem hann segir vera kjölfestu ham-
ingjunnar: nærandi og örugg
tengsl við annað fólk.
„Síðustu áratugina hafa rann-
sóknir leitt í ljós að aðaluppsretta
hamingjunnar eru örugg og nær-
andi tengsl við annað fólk,“ segir
Guðbrandur Árni. „Til að ná slík-
um tengslum þurfum við hins veg-
ar að geta upplifað nánd með öðr-
um, en nándin er það ástand þegar
við upplifum öryggiskennd, finnst
við geta verið við sjálf og sagt það
sem okkur býr í brjósti.
Í nándinni gerast ýmsar efna-
breytingar í heilanum og lík-
amanum. Framleiðsla á streitu-
hormónum minnkar á sama tíma
og framleiðsla á efnum eins og ox-
ítósíni, sem stundum er kallað
tengslahormónið, eykst. Meðan
þessi efnagrautur er í gerjun inni í
okkur finnum við hvernig kvíði og
aðrar óþægilegar tilfinningar
minnka og vellíðan og gleði koma í
þeirra stað. Í þessu ástandi líður
okkur vel, við finnum til löngunar
til að leika okkur og gera skemmti-
lega hluti með öðrum. Það er því
engin furða að nándin er aðal-
uppspretta hamingjunnar.“
Þú tileinkar bókina móður þinni,
Halldóru Kolka Ísberg, sem veitti
þér mikið öryggi. Hvernig mamma
var hún?
„Mamma var greind og um-
hyggjusöm kona með jákvæða lífs-
sýn og yndislegan húmor. Þess ut-
an hafði hún einstakt jafnaðargeð
sem ég dáist að enn þann dag í
dag. Henni tókst að festa í huga
mínum þá vissu að ég væri þess
verður að vera elskaður eins og ég
er, en það er mikilvægasta vega-
nestið sem foreldrar geta gefið
börnum sínum. Freud, sem var
mjög karllægur blessaður, sagði
einhvern tíma að drengir sem væru
augasteinar móður sínnar upplifðu
sig alltaf sem sigurvegara. Ég vil
orða þetta þannig að börn sem
alast upp við gott atlæti upplifi sig
sem litla prinsa og prinsessur í já-
kvæðri merkingu þess orðs.“
Hvenær fórstu fyrst að velta fyr-
ir þér samskiptum fólks?
„Ég var enn í barnaskóla þegar
þær pælingar byrjuðu. Aðal-
ástæðan var sú að pabbi átti við
áfengisvandamál að stríða og á
þeim tíma var mikil skömm tengd
áfengissýki, helst átti ekki að tala
um hana. Ég var oft að velta því
fyrir mér hvað ég mætti segja og
við hvern. Á unglingsárum var ég í
stórum vinahópi, við vorum eig-
inlega eins og fjölskylda, og þegar
ágreiningur kom upp íhugaði ég
„Ég vona að þessi bók mín hjálpi
þeim sem lesa hana til að gera sér
grein fyrir því hvað gerir okkur
hamingjusöm og þar er nánd
lykilatriði,“ segir Guðbrandur Árni.
Öryggi í gegnum nándina
SÁLFRÆÐINGURINN GUÐBRANDUR ÁRNI ÍSBERG, HÖFUNDUR BÓKARINNAR Í NÁND-
INNI, RÆÐIR Í VIÐTALI UM MIKILVÆGI ÞESS AÐ EIGA ÖRUGG OG NÆRANDI SAMSKIPTI.
HANN TELUR AÐ TILGANGUR LÍFSINS SÉ AÐ VERA HAMINGJUSAMUR OG SEGIR EKKI
HÆGT AÐ SKAPA NÁND Í GEGNUM FACEBOOK
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
vandlega hvernig best væri að taka
á honum. En ég var ekki með hug-
ann við sálfræði sem starf heldur
ætlaði ég að verða náttúrufræð-
ingur og skrifaði reyndar tvær
„bækur“ um náttúruna þegar ég
var tólf og fjórtán ára. Mig langaði
til að verða eins og David Atten-
borough. Smám saman fór áhuginn
á náttúrinni og samhengi hlutanna
að snúast upp í athuganir á mann-
inum. Í menntaskóla ákvað ég svo
að verða sálfræðingur.“
Fólk í enda-
lausu sorgarferli
Nú geta samskipti fólks verið ákaf-
lega erfið og þú færð örugglega
margt fólk til þín sem glímir við
samskiptavandamál. Hvaða ráð
gefurðu fólki?
„Áður en að nokkrum ráðum
kemur fer ég vandlega með skjól-
stæðingi mínum yfir hvað það er í
sambandinu sem veldur vanlíðan.
Samband er sköpunarverk tveggja
einstaklinga og þegar um tvo full-
orðna einstaklinga er að ræða er
ekkert sem heitir fórnarlamb og
böðull heldur tveir jafnréttháir ein-
staklingar sem í sameiningu bera
ábyrgð á sambandinu. Það sem oft-
ast veldur sárindum í samböndum
er ofbeldi eða vanræksla í ein-
hverri mynd. Ofbeldi drepur sköp-
unarverkið, sambandið, á meðan
vanrækslan, sem oft kemur fram í
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013
Svipmynd
www.gilbert.is