Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Side 24
*Heimili og hönnunÁ vinnustofu Reykjavík Letterpress fær gamalt að njóta sín og handbragð er í hávegum haft »26
Mig
langar í …
… í svefnherbergið
Skipulag á fötin mín … Ég er mjög
hrifin af því að leyfa fötum að njóta sín
betur en lokuð inni í skápum, best
finnst mér að hafa stóra fataslá hang-
andi úr loftinu og ég gæti vel hugsað
mér þessa á myndinni inn í svefn-
herbergið mitt.
… á baðherbergið
Þar vantar mig flotta körfu undir
óhreina þvottinn og skorar nýja
taukarfan frá Ferm Living mjög
hátt. Mér finnst vörurnar frá
þessum dönsku snillingum alltaf
jafnskemmtilegar og ég gæti hugs-
að mér að eiga mjög margt úr
línunnni þeirra MORE.
… í forstofuna
Dyrastopparinn Cast mini Jack í
koparútgáfu frá snillingnum Tom
Dixon er velkominn í forstofuna
mína, dyrnar fengju alltaf að
standa opnar ef ég ætti einn slík-
an!
… í eldhúsið
Klassíska String Pocket-hillan sem fæst í Epal væri fullkomin í eldhúsið
undir uppáhaldshlutina mína. Hillan er heldur ekki jafndýr og ég hélt
svo það styttist í að hún verði mín …
… í garðinn
Glitrandi listaverkin eftir tékknesk-
dönsku listakonuna Theresu Himmer,
sem sjá má á nokkrum stöðum í
miðbæ Reykjavíkur, heilla mig alltaf jafn-
mikið. Ef ég ætti mitt eigið hús og fulla
vasa af peningum fengi ég Theresu til
að útbúa listaverk á húsvegginn minn
svo ég gæti notið þess úr garðinum.
… í útópískri veröld
… væri súkkulaði hollt, ég meina hvern
langar ekki til þess?
SVANA LOVÍSA KRISTJÁNS-
DÓTTIR VÖRUHÖNNUÐUR
OG BLAÐAMAÐUR HJÁ HÚS-
UM OG HÍBÝLUM ER ÞEKKT
FYRIR EINSTAKA SMEKKVÍSI.
SVANA HELDUR ÚTI HINU VINSÆLA HÖNNUNAR- OG
HEIMILISBLOGGI SVART Á HVÍTU Á VEFSÍÐUNNI TREND-
NET.IS ÁSAMT ÞVÍ AÐ BLOGGA FYRIR VERSLUNINA EPAL.
SVANA ER ÞVÍ ÁVALLT MEÐ PUTTANN Á PÚLSINUM HVAÐ
VARÐAR HEIMILI OG HÖNNUN.
Sigurborg Selma sigurborg@mbl.is
… í stofuna
Polder-sófinn, sem uppáhaldshönnuðurinn minn
hún Hella Jongerius hannaði árið 2005 fyrir
Vitra, er draumasófinn minn, hann væri ég gjarn-
an til í að eiga í ljósu áklæði.