Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Side 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Side 33
Ljósmyndir/Lind Hrafnsdóttir * „Ég er hlynnt því að við borðumfjölskyldumáltíð, að það sé ekkimargrétta þar sem verið er að elda eitt fyrir foreldrana og annað fyrir börnin.„ Ágúst Óskar Gústafsson, Jórunn Einarsdóttir, Berglind Sig- marsdóttir, Sigurður Gíslason, Kristrún Ósk Hlynsdóttir og Andri Heimir Friðriksson. 8.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 STEIKTUR FISKUR 1 kg þorskur, hægt að nota annan hvítan fisk og einnig lax, roðflettur og beinhreinsaður 150-200 g möndlumjöl, spelt- eða heilhveiti 3 egg 100 ml möndlumjólk, geita- mjólk eða hvaða mjólk sem þið viljið nota sjávarsalt og svartur pipar að smekk jómfrúarólífuolía eða smjör til steikingar Aðferð 1. Skerið hvert flak í 3-4 bita. 2. Hafið tilbúið möndlumjöl eða hveiti, t.d. spelthveiti í djúpri skál. 3. Hrærið egg og mjólk saman í annarri skál. 4. Hitið olíu eða smjör á pönnu við meðalháan hita. 5. Veltið fiskbitunum upp úr mjöl- inu og síðan eggjunum. Setjið þann- ig beint á heita pönnuna. 6. Kryddið með salti og pipar. 7. Steikið í örfáar mínútur á hvorri hlið. BLÓMKÁLSMAUK 1 blómkálshaus eða 600 g nið- urskorið í lítil tré 250 g kartöflur, skrældar og skornar í litla bita 1 hvítlauksgeiri, maukaður eða saxaður 300 ml mjólk eða vatn 2 tsk. kjúklingakraftur 100 g smjör eða bragðlítil olía Aðferð 1. Allt sett í pott nema smjör/olía. Látið suðu koma upp og látið malla í korter eða þar til kartöflur og blómkál er orðið mjúkt. 2. Allt sett í blandara, smjöri/olíu bætt við og maukað. Athugið að nota hæfilega stóran pott því vökvinn þarf að fljóta vel yfir blómkálið og kartöflurnar á meðan þær sjóða. TÓMATAR OG BASILÍKA 4-5 stk. tómatar eða 1 pk. kon- fekttómatar, skerið konfekt- tómata til helminga, ef þið notið venjulega skerið þá í teninga. 2 hvítlauksrif, maukuð 2 msk. jómfrúarólífuolía 1 msk. hunang sjávarsalt 1 búnt fersk basilíka 2 msk. balsamikedik Aðferð 1. Hitið ofninn í 150 gráður. 2. Setjið tómata í lítið eldfast mót. 3. Blandið hvítlauk, hunangi og olíu saman, hellið yfir tómatana og velt- ið þeim aðeins upp úr olíunni. 4. Saxið basilíku og sáldrið yfir. 5. Kryddið með sjávarsalti og bakið í 30 mínútur. Setjið blómkálsmauk á diskinn, fisk- inn þar ofan á og síðan tómat og basilíku. Steiktur fiskur á blómkáls- mauki með ofnbökuðum konfekttómötum og basilíku ANANAS- OG ENGIFERDRYKKUR 3 dl frosinn ananas 1 tsk. ferskt engifer, rifið 2 dl hreinn appelsínusafi cayenne-pipar á hnífsoddi Allt sett í matvinnsluvél og blandað vel. Bæta má meiri appelsínusafa eða vatni saman við ef ykkur finnst drykkurinn of þykkur. PIPP HRÁKAKA Botn 300 g möndlur 200 g mjúkar döðlur, steinlausar. Ef döðlurnar eru ekki mjúkar er ágætt að leggja þær í volgt vatn í 10-15 mín- útur, hella vatninu af og nota þær svo. 1½ dl kakó, lífrænt Aðferð 1. Malið möndlur í matvinnsluvél fínt. 2. Saxið döðlur og setjið út í matvinnsluvél ásamt kakói og blandið vel saman. 3. Setjið smjörpappír í hringlaga form og þjappið blöndunni í formið. Setjið í frysti og búið næst til piparmyntukrem. PIPARMYNTUKREM 2 dl kasjúhnetur sem lagðar hafa ver- ið í bleyti, sjá aðferð 1 dl kókosolía (mjúk en ekki fljót- andi) 1 dl fljótandi sætuefni, agavesíróp eða lífrænt hunang piparmyntudropar, að smekk Ef þið notið hreina ilmkjarnaolíu þá eru 2 dropar nóg. Ágætt er að setja skeið und- ir þegar droparnir eru taldir því ef fleiri en tveir dropar fara óvart í kremið verð- ur það of bragðsterkt og er því líklega ónýtt. Ef notaðir eru venjulegir pip- armyntudropar þarf um 2 tsk. Aðferð 1. Setjið hneturnar í skál og látið kalt vatn yfir þar til flýtur yfir hneturnar. Látið standa í um 6 klukkustundir eða yfir nótt. Hellið þá öllu vatni af og setjið í mat- vinnsluvél. 2. Bætið kókosolíu og sætuefni við og blandið vel þar til kekkjalaust og mjúkt. 3. Setjið piparmyntudropa út í og blandið saman. 2-3 bananar, skornir í sneiðar 100-150 g 70% súkkulaði Kakan sett saman 1. Takið botninn úr frysti og smyrjið krem- inu á. 2. Sneiðið banana og raðið yfir. 3. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og notið skeið til að hella yfir, svipað og á mynd. Kakan er þá tilbúin til að bera fram. Einnig má setja hana aftur í frysti og bera fram þegar hentar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.