Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 49
8.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Flestir Íslendingar hafa heyrt
sögur af innlendum eitur-
lyfjabarónum. Mönnum sem
sagðir eru lifa í allsnægtum í
skjóli fíkniefnaviðskipta og
halda öllu sínu nánasta um-
hverfi jafnvel í heljargreipum í
krafti stöðu sinnar og máttar.
Eins hefur lengi verið orðróm-
ur um umsvifamikla menn í ís-
lensku atvinnulífi, sem stundi
löglegan rekstur í dag, en hafi
notað fíkniefnaviðskipti til að
koma undir sig fótunum.
Karl Steinar Valsson úti-
lokar ekki að slíkir menn séu
til og gangi lausir. Þeir séu þó
varla margir, sögurnar af
mönnum sem þessum séu
gjarnan mýta. Þá sé ekki óal-
gengt að menn spili sig stærri
en þeir raunverulega eru. Til
að ala á ótta.
„Það er hins vegar alveg rétt
að okkur tekst ekki alltaf að
ná toppunum í hverju máli fyr-
ir sig. Stundum tekst mönnum
að hylja slóð sína og fá aðra,
minni spámenn, til að taka á
sig sökina. Stundum grunar
okkur og við vitum jafnvel
meira en við getum sannað.
Með því verðum við að lifa.“
Heppnast ekki alltaf
Hann segir þó af og frá að það
séu alltaf bara peðin sem lendi í
skotlínunni, millimenn og höf-
uðpaurar náist oft líka. Nefnir
hann í því sambandi „Kaup-
mannahafnarmálið“, „skútu-
málið“ og „efnaverksmiðju-
málið“. „Þar náðust allir
topparnir.“
Spurður hvort einhverjir lyk-
ilmenn í fíkniefnaviðskiptum á
Íslandi hafi aldrei þurft að svara
til saka getur Karl Steinar ekki
útilokað það en séu þeir yfir
höfuð til hljóti þeir að vera
mjög fáir. „En það verður að
viðurkennast að okkur hefur
ekki alltaf heppnast í aðgerðum
gegn meintum höfuðpaurum í
fíkniefnaheiminum. Við höfum
ekki alltaf haft heppnina með
okkur eða lesið ástandið rétt.“
Hann bendir á, að nýlega hafi
verið gerð breyting á lagaum-
hverfinu í samræmi við Evr-
ópulönd til að reyna að nálgast
peningaþvætti þegar svokall-
aður Palermosamningur var
viðurkenndur á Alþingi. „Von-
andi á það eftir að hjalpa lög-
reglu í að ná til hæstu laga
brotamanna.“
MÝTA EÐA VERULEIKI?
orhjólagengin á sínum tíma. Þeir
spyrntu ekki nógu snemma við fót-
um með þeim afleiðingum að þeir
hafa þurft að setja svakalegan
mannafla og fjármuni í baráttuna
gegn gengjunum. Sú staða er tvísýn
og erfið, eins og við þekkjum, og
hefur skaðað orðspor landsins, að
ekki sé talað um öryggi borg-
aranna.“
Spurður hvort við séum að sigla
inn í það ástand að lögregla þurfi
að bera vopn dags daglega kveðst
Karl Steinar vona ekki. „Í
ákveðnum aðferðum þarf lögregla
að vera vopn og gerir það nú þegar.
Ég vona á hinn bóginn að sá dagur
komi ekki að vopnaburður lögreglu
verði almennur. Það myndi breyta
ásýnd og samskiptum lögreglu við
almenning verulega til hins verra
en þessi samskipti eru hvergi sem
ég þekki til eins mikil og góð.“
Upplýsingamiðlun er heldur
hvergi eins mikil – á báða bóga.
„Bæði er lögregla dugleg að miðla
upplýsingum til almennings og eins
berst lögreglu óvenju mikið af upp-
lýsingum frá hinum almenna borg-
ara sem oftar en ekki skilar miklu í
baráttunni gegn glæpum og mis-
rétti.“
Meira fé og fleiri menn
Af framansögðu má ráða að ástand-
ið í undirheimum Íslands fer versn-
andi. Umsvifin og harkan eru að
aukast. Á því vandamáli er ein-
ungis ein lausn, að áliti Karls
Steinars. Verja þarf meira fé til
málaflokksins og fjölga lög-
reglumönnum. „Lögregla hefur
ágæta yfirsýn yfir sviðið og eins
góða stjórn á málum og mögulegt
er við núverandi skilyrði. Hitt er
annað mál að ábendingar eru fjöl-
margar og við gætum hæglega
hafið nýja rannsókn á hverjum
degi. Til þess höfum við hins veg-
ar hvorki fjármagn né mannafla. Í
mínum huga er þetta fyrst og
fremst þjóðhagsleg spurning. Er
ekki ávinningur í því fyrir íslensku
þjóðina að fara í hart átak gegn
skipulagðri brotastarfsemi og yrði
því fé ekki vel varið? Viljum við
hafa þessa starfsemi hangandi yfir
okkur?“
Sú ákvörðun verður þó ekki tek-
in af lögreglu, heldur stjórnvöldum
í þessu landi. „Það hefur legið fyrir
í mörg ár að stjórnvöld þurfa að
taka stóra ákvörðun í þessu efni.
Því fyrr þeim mun betra.“
Morgunblaðið/Kristinn
Erlendir félagar í Hells Angels handteknir í Leifsstöð og snúið til síns heima.
Aðgerðir lögreglu gegn mótorhjólagengjum hafa vakið athygli víða.
Morgunblaðið/Sverrir
Einn sakborninga í skotárársarmálinu í Bryggjuhverfinu í Reykjavík fyrir tæpum
tveimur árum færður fyrir dómara. Málið vakti mikinn óhug meðal almennings.
Morgunblaðið/Golli
Lögregla getur þurft að
beita hörku til að yfir-
buga misindismenn.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
S
ÍA
Sæktu um lykil núna á ob.isí tíunda hvert
skipti sem þú dælir 25 lítrum eða meirameð ÓB-lyklinum