Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Qupperneq 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Qupperneq 50
Þ orbjörg Helga Þorgils- dóttir hefur vakið at- hygli fyrir magnaðan kvikmyndaleik síðustu misserin. Verðskuldaða athygli. Í fyrra var það leikur hennar í Djúpinu sem gagnrýn- endur lofuðu hana í hástert fyrir. Einn þeirra sagði að hún væri svo góð í hlutverkinu að „mann skortir eiginlega orð“. Þegar Þorbjörg lék í Djúpinu sumarið 2010 hafði hún samt, miðað við nýútskrifaða leikkonu, farið afar óvenjulega braut í starfsframa eftir útskrift. Hún hafði leikið í einu sviðsverki í Borgarleikhúsinu og í stuttmynd eftir Ómar Örn Hauks- son. Hún hafði auk þess unnið sem ritari á lögmannsstofu heilan vetur áður en hún fékk hlutverkið í Djúp- inu um sumarið. Hún vann því til skiptis við að lesa dóma og fljúga til Vestmannaeyja í tökur. Þorbjörg fann að lögfræðin höfð- aði sterkt til hennar og ákvað að setjast á skólabekk í Háskóla Ís- lands haustið eftir tökur. Hún stóð við það. Hún náði „almennunni“ í fyrstu atrennu og er búin að ljúka ári í lögfræðinni. Þorbjörg hefur nú leikið í tveim- ur kvikmyndum sem hefur verið boðið á kvikmyndahátíðina í To- ronto. Djúpið fór þangað í fyrra og nú er það Málmhaus eftir Ragnar Bragason. Djúpið hefur vakið heimsathygli og nú þegar hefur verið samið um dreifingu á Málm- haus um allan heim. Fjölbreytt umhverfi í æsku Leikkonan kemur á hjóli í viðtalið og er búin að hjóla alla leið úr Kópavogi þar sem hún var hjá tannlækni. Hún er hressileg, hummar ekki yfir neinum spurn- ingum, þarf lítið að hugsa sig um og er óvenjuhraðmælt. Blaðamaður verst ekki þeirri hugsun að það hefði verið gaman að mæla fjölda orða á mínútu. Hraðmælgi er gáfu- merki samkvæmt erlendum rann- sóknum (og það er engin lygi). Þorbjörg er þar að auki forvitin um hvernig lífið virkar hjá öðrum því hún er ófeimin við að spyrja blaðamann spurninga á móti. Enda segist hún hafa getað nýtt sér í leiknum svo ótalmargt annað en leiklistarnámið sjálft. „Fólk sem maður hittir og kynn- ist, persónu þess og eiginleikum og hvernig það tekur á sínu lífi, hefur alltaf haft mikil áhrif á mig, á ýms- um sviðum. Stundum eru leikarar spurðir að því hvaða leikarar hafa haft áhrif á þá en alls konar fólk hefur haft áhrif á mig. Ég var einu sinni að vinna á veitingastað og var að þjóna með frábærri konu sem ég varð fyrir áhrifum frá; hvernig hún var og hvernig hún hagaði sínu lífi. En svo hafa samleikarar mínir í Málmhaus, Ingvar E. Sigurðsson og Halldóra Geirharðsdóttir til dæmis haft áhrif á mig sem leik- konu. Það hefur verið magnað að sjá hvernig þau vinna og gera hlut- ina. Sýn Halldóru á leiklistina hríf- ur mann.“ Þorbjörg Helga er hver? „Ég er fædd árið 1983 og flutti fjögurra ára gömul til Grænlands því faðir minn, sem er verkfræðingur, var fenginn til að reisa frystihús í Nu- uk. Þar átti ég tvíburavini, Kasper og Jesper og við áttum öll eins snjógalla. Líklega hefur dvölin þarna verið eitthvað á við að búa fyrir norðan við óvenjuharðan vet- ur. Maður lék sér bara í snjósköfl- um og var ekkert sérstaklega að spá í þetta. Við fluttum svo til Sví- þjóðar þegar ég var sex ára og ég flutti ekki aftur til Íslands fyrr en ég var 11 ára. Hvað gaf þessi reynsla mér? Auðvitað reiprennandi dönsku og sænsku sem ég bý að, vini sem ég þurfti að kveðja með trega þegar ég flutti til Íslands, sérstaklega Boel, eina af mínum bestu vinkonum. Ég held líka að ég hafi búið að því alla tíð að fjöl- menning var sjálfsagður hluti lífs- ins. Með mér í bekk voru börn sem voru hvaðanæva úr heiminum og tilheyrðu hinum ýmsu trúar- brögðum. Þegar maður kom til Ís- lands var umhverfið einsleitara og að vissu leyti fátæklegra fyrir vikið, að mér fannst.“ Ilmur hver? Þorbjörg flutti í Bústaðahverfið og ólst upp í fjögurra systkinahópi. Hún á eldri bróður og tvær yngri systur. Fyrir áhugafólk um ætterni fólks eftir landshlutum má segja að Þorbjörg sé Austfirðingur í móð- urætt en Vestfirðingur í föðurætt. Móðir hennar er frá Djúpavogi. Það veitti Þorbjörgu dýrmæta inn- sýn í sjómannslíf við tökur á Djúp- inu að móðurbræður hennar höfðu allir verið á sjó fyrir austan auk þess sem móðir hennar hafði á yngri árum bæði verið kokkur og háseti á sjó. Og að sjálfsögðu var afi hennar sjómaður. „Ég dvaldi oft hjá ömmu og afa í Neskaupstað þegar ég kom til Ís- lands á sumrin og auðvitað fyrir og eftir það.“ Sögðu þau þá gæskan? „Já, örugglega. Afi var flámæltur. Sagði sekur í staðinn fyrir sykur og spela þegar við tókum í spil. Ég var afar hænd að þeim og minningin um þau er amma að steikja kleinur og gera flatkökur, þau að spila við mig og spá fyrir mér og svo sátu þau saman við eldhúsgluggann og drógu gardínuna frá til að fylgjast með hver væri að koma og fara. Þegar afi var kominn á elliheimilið fylgdist hann með úr glugganum hvaða skip voru að sigla inn og hann gat komið auga á rekavið hin- um megin í firðinum og bað þá syni sína að ná í hann. Hann sá betur eldgamall en við hin öll.“ Fólkið í hennar nærfjölskyldu hefur ekki lagt fyrir sig leiklistina. Systur hennar eru báðar í meist- aranámi í jarðfræði, móðir hennar, Auður Sveinsdóttir, er fótaaðgerð- arfræðingur og nuddari og faðir, Þorgils Arason, er sem fyrr segir verkfræðingur. Hvernig varð fjöl- skyldunni við að hún ætlaði út í ótryggt og hugsanlegt hark leiklist- arinnar? „Ég hef alltaf fengið stuðning við allt sem ég hef tekið mér fyrir ÞAÐ ER LEIKKONA HÉR Í BÆ SEM LEIKSTJÓRAR LANDSINS VIRÐAST KEPPAST UM AÐ FÁ Í KVIKMYNDIR SÍNAR. ÞORBJÖRG HELGA ÞOR- GILSDÓTTIR HEFUR VERIÐ SÖGÐ SVO GÓÐ AÐ FÓLK SKORTI ORÐ. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Senur úr kvikmynd Ragnars Bragasonar, Málmhaus, sem frumsýnd er á kvikmyndahátíðinni í Toronto um helgina. Ragnar fékk Þorbjörgu í aðalhlutverkið eftir að hún hafði lokið við að leika í kvikmynd Baltasars „Faðir minn verkfræðingurinn reiknaði þetta auð- vitað út á mjög einfaldan hátt og fannst útkoman frekar fyndin og keypti hana ekki alveg. Að það væru yfir 150 manns sem sæktu um pláss í leik- aradeild Listaháskólans, að það væru samt aðeins átta pláss í boði og hversu margir af þeim átta fengju svo vinnu að lokinni útskrift?“ Fólk hefur áhrif á mig Viðtal 50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.