Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 21
10.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Ragnheiður Garðarsdóttir hefur starfað sem leikskólakennari í 19 ár. Hún vinnur mikið á gólfinu og þarf þar af leiðandi sífellt að vera að setjast og standa upp aftur. Ragnheiður er greindmeð slitgigt og hefur fundið fyrir verkjum í hægri mjöðminni um árabil. "Haustið 2012 var ég í berjamó og varð svo slæm á eftir að ég þurfti að fá sprautur og sterk verkjalyf fyrir mjöðmina. Ég skánaði við það en var alltaf með seyðing og verki. Suma daga var ég þokkaleg en aðrir voru hreint helvíti á jörð. Næturnar hafa líka í gegnum árin verið mér erfiðar. Ég var með eilífan seyðing í mjöðminni og niður í tá og gat ómögulega legið á hægri hliðinni. Ég sá best hversu slæmt ástandið var á því hvað göngulagið mitt var orðið skelfilegt í myndbandi frá Flórídaferð fjölskyldunnar haustið 2011." Öðlaðist nýtt líf "Ég hef notað NUTRILENK GOLD síðan í september 2012 með frábærum árangri, og þá meina ég árangri. Í byrjun tók ég 6 töflur á dag í 2 mánuði en í dag tek ég 3 töflur á dag. Ég hef stundaðæfingar í Meta- bolic af fullum krafti síðan vorið 2013 og tek þá aðeins meira af NUTRILENK GOLD. Núna sef ég allar nætur og get beygt mig án sársauka. Ég átti mjög erfitt með að klæða mig í sokka og skó á morgnana og þurfti að fá aðstoð. Það er allt annað í dag, ég get bókstaflega allt! Ég er meira að segja farin að fara í kraftgöngur á ný. Ykkur finnst þetta kannski vera ýkt saga… en hún er sönn. Ég öðlaðist nýtt líf með NUTRILENK GOLD." Nutrilenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna Skráðu þig á facebook síðuna Nutrilenk fyrir liðina - því getur fylgt heppni! Nánari upplýsingar áwww.gengurvel.is P R E N T U N . I S NUTRILENK - hollráð við liðkvillum. Náttúruleg bætiefni fyrir liðina Verkirnir hreint helvíti á jörð Hvað getur Nutrilenk gert fyrir þig? Heilbrigður liður Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna. Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamó- tum í mjöðmum , hrygg og hnjám. Þess vegna er til mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt. Náttúrulegt byggingarefni fyrir liðbrjóskið og beinin NutrilenkGold er frábært byggingarefni fyrir brjóskvef og geturminnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika. Inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk enda ríkt af kondritíni, kondritín súlfati, kollageni og kalki. Hentugt fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski og slitnum liðum. NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgum. NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun. Prófið sjálf - upplifið breytinguna! Liður með slitnum brjóskvef Ragnheiður Garðar sdóttir leikskólakennari Svefnþörf fer eftir aldri og virkni ein- staklingsins. Til að mynda þarf aðili sem er undir miklu álagi eða glímir við veikindi meiri svefn en aðrir. Hins veg- ar getur það verið óhollt að sofa of mikið. Þetta kemur fram á fréttaveitu CNN. Um það bil 33% af ævi meðal- mannsins fara í svefn. Mikilvægt er að hvíla sig vel og ef tækifæri gefst getur verið gott að fá að sofa í allt að 12 klukkustundir enda kallar líkaminn stundum á það. Sérfræðingar mæla þó með því að hinn fullorðni meðalmaður sofi ekki lengur en sjö til níu klukku- stundir á nóttu. Of mikill svefn í langan tíma hefur ver- ið tengdur við allskyns kvilla svo sem of- fitu, æðasjúkdóma og veikara ónæm- iskerfi. Fólk sem sofi of mikið eða of lítið í senn hafi einnig hærri dánartíðni. Það er því ráð að stilla vekjara- klukkuna og gæta þess að fá passlegan svefn. Það er óhollt að sofa of lítið og sama gildir um að sofa of mikið en sér- fræðingar segja að ráðlegt sé að sofa í sjö til níu tíma á nóttu. Of mikill svefn getur verið skaðlegur heilsu Það er vinsælt talið um að tíminn sé peningar og fólk eigi að meta hann til fjár. En tíminn sem fer í viðhald og alls kyns heimilisverk er oft van- metinn. Þannig sýnir ný rannsókn að fólk sem er vant því að sjá sjálft um viðhald fasteigna og farartækja, dytta að og mála, er hraustara en þeir sem forðast að gera slíkt sjálfir. Bæði er það hreyfingin sem „gerðu það sjálfur“ felur í sér sem og slökun fyrir hugann enda kannast margir við hvernig hugurinn tæmist þegar málningarrúlla er borin að vegg. Þá er það ekki síður heilaþjálf- un sem felst í því að leysa ýmis verk- efni. Niðurstöður rannsóknarinnar birtust í The British Journal of Sports Medicine en fjallað var um hana í bresku vefútgáfu The Tele- graph í vikunni. Ýmis konar verkefni er tengjast viðhaldi geta lengt og bætt lífið. Athafna- semi ákjósanleg Þroskaðir ostar, þurrkaðir ávextir og unnið kjöt eru matvæli sem ber að varast ef höfuðverkur herjar oft á. Samkvæmt vefsíðunni Healt- h.com innihalda matvælin efnið tý- ramíni sem veldur æðaþrengslum. Blóðið nær því ekki að renna eins jafnt um líkamann og það veldur höfuðvek. Önnur efni sem stuðla gjarnan að höfuðverk eru Asp- artam, matvæli sem innihalda MSG eða þriðja kryddið og áfengi. Einnig getur of mikil neysla á kaffi valdið höfuðverk. Aftur á móti getur magnesíumríkur matur svo sem spínat, tófú, ólífuolía og sólblóma- og graskersfræ komið í veg fyrir höfuðverk. Þroskaður ostur og fleiri matvæli geta stuðlað að höfuðverk. Komdu í veg fyrir höfuð- verkinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.