Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 39
10.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Í vikunni sat ég morgunfund Félags kvenna í atvinnurekstri, FKA, þar sem rætt var um ósýnileika kvenna í fjölmiðlum. Þar var vísað í könnun sem Creditinfo gerði fyrir FKA en þar kom í ljós að í ljós- vakamiðlum voru karlar tvöfalt fleiri en konur þegar kom að við- tölum. Hlutfallið skánaði eitthvað pínulítið þegar bornar voru saman tölur úr spjallþáttum en þó var munurinn ennþá mikill. Könnunin fór fram á tímabilinu 1. febrúar 2009 til 30. ágúst 2013 og var heildarfjöldi viðmælenda yfir 100.000. Þessar tölur eiga reyndar ekki við mitt Smart- land þar sem konur eru í aðalhlutverki allan sólarhringinn alla daga ársins. Jafnréttisumræðan snýst mjög oft um það að konur komist ekki að fyrir feðraveldinu. Auðvitað er það alveg hárrétt enda hefur sagan ekki sýnt að fólki séu rétt völd – fólk hrifsar þau til sín (eða réttara sagt – karlar hrifsa þau til sín). Þeir sem hafa völdin gera auðvitað allt til að halda þeim – því það er bara hluti af mannlegu eðli. Til þess að breyta þessu þurfa konur að komast til valda í stjórnmálum og þær þurfa að fá peningavöld. Það er líklega ekkert skrýtið að flestir fréttatímar séu full- ir af körlum þegar forsetinn er karl og formenn stærstu stjórn- málaflokkanna eru karlar. Þótt karlarnir séu fyrirferðarmeiri í ljósvakamiðlum er því miður ekki eingöngu hægt að kenna feðraveldinu um það. Það er að hluta til okkur sjálfum að kenna því það er eins og við séum ragari en bræður okkar við að tjá okkur. Flestar konur vilja hafa allt á hreinu áður en þær fara í viðtöl því það alversta sem gæti gerst er náttúrlega að þær myndu segja einhverja bölvaða vitleysu. Auk þess er stór hópur kvenna upptekinn af því að taka „nú alls ekki þátt í neinum fíflagangi“. Sem minnti mig á það að á ferlinum hef ég oft fengið þau svör, þegar ég óska eftir viðtali við konu og að fá ljósmynd af henni, að það henti nú ekki alveg því viðkomandi fari í strípur í næstu viku. Þegar þessi næsta vika kemur er „mómentið farið“. Á ferlinum hefur karlmaður aldrei frestað myndatöku vegna hárlitunar og aldrei beðið um að sjá myndina áður en hún birtist. Þeim virðist einhvern veginn vera alveg „drullusama“. Og þá spyr ég, hefur það komið þeim í koll? Nei!!! Ég elska varaliti og fín föt en við megum ekki vera svo hégómlegar að láta það stoppa okkur í að stíga fram og komast til valda. Indra Nooyi, forstjóri Pepsico, sem er ein valdamesta kona heims, sagði á fundi í Þjóðleikhúsinu í síðustu viku að við ættum að sýna meiri tilfinningar og leyfa okkur að vera eins og við erum. Þá velti ég því fyrir mér hvort það sé ekki farsælast fyrir okkur að tala alltaf frá hjartanu og láta vaða. Auðvitað þurfum við stundum að glugga í einhverjar skýrslur en ef við höfum skoðanir á mál- unum þá hljótum við að geta rætt það við blaðamenn líkt og fólkið í kringum okkur. Ég mæli með því að konur venji sig á að segja alltaf já þegar þær eru beðnar um að koma í viðtal. Þú veist aldrei hvert Já-ið á eftir að leiða, því lífið er dálítið þannig að eitt leiði af öðru og svo fram eftir götunum. Ég grínast stund- um með það að ég sé eins og Ást- þór – „alltaf með“ … Það hefur reynst ágætlega … martamaria@mbl.is „Alltaf með – eins og Ástþór“ Indra Nooyi forstjóri Pepsico. Ástþór Magnússon DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011 Síðustu 85 árin hefur Koziol verið uppspretta hönnunar sem tekið er eftir og framleitt ótal þarfaþing sem færa gleði og litadýrð inn á heimili og vinnustaði. Útsölustaðir: Apótek og Heilsuverslanir um allt land. Háralitir fyrir konur sem velja náttúrulegan háralit og hárið glansar af heilbrigði • Inniheldur ekki Paraben, algengasta innihaldsefni sem veldur ofnæmisáhrifum í háralitun • Hylur grá hár 100% • 24 náttúrulegir háralitir • Hárlýsingarlitur (strípuefni) plasthetta og hárpinni innifalin • Náttúrulegar jurtir sem gefa hárinu gljáa og mýkt • Varanlegur háralitir sem helst fallegur í 3 mánuði • Ofnæmisprófaður • Íslenskar leiðbeiningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.