Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2013 Matur og drykkir Jólahlaðborð Spírunnar Í hádEgiNu alLa fiMmTudAgA oG fösTudAga Frá 21 nóvEmbEr tiL 13 DesEmBer sJá MatSeðiL iNná SpiRAn.iS vErð aðeIns 3.500kR                          ! V ictoría Elíasdóttir útskrif- aðist frá Hótel- og mat- vælaskólanum í Kópavogi með hæstu einkunn. Eftir námið öðlaðist hún mikla reynslu á veitingastað í San Fransisco í Bandaríkjunum. „Ég lærði fagið í Sjávarkjallaranum sem var og hét og var svo heppin að fá að vinna með mörgum litríkum meisturum. Eftir útskrift öðlaðist ég mikla reynslu á heldur stuttum tíma og situr þar efst vera mín á veit- ingastað Alice Waters, Chez Pan- isse í úthverfi San Fransisco. Þar kynntist ég nýrri nálgun á mat- reiðslu og gífurlegri virðingu gagn- vart hráefninu. Hvert brómber átti skilið heilmikla ást og virðingu,“ segir Victoría. Hún hefur haft dálæti á mat frá blautu barnsbeini og segist oft hafa verið aðhlátursefni vina og fjölskyldu þegar haldið er út að borða. „Ég á það til að lifa mig inn í stemninguna og brögðin sem eru í boði og mikið grín gert að mér þegar ég spyr í fullri al- vöru hvort hinir séu ekki líka að upplifa þessa flugeldasýn- ingu sem á sér stað í bragðkirtlum mín- um,“ segir Victoría og hlær. Hún minn- ist þess að þegar hún var í barna- skóla, átta ára göm- ul, hafði hún meiri áhuga á að vita hvað foreldrar hefðu hugsað sér að hafa í mat á jólunum, en að vita hvað börnin óskuðu sér í jólagjöf. „Svo var ég spennt að segja frá appelsínugljáðu öndinni sem ég beið í angist eftir á jólunum, við misgóð- ar undirtektir bekkjarfélaga minna.“ Það er því óhætt að segja að hér er á ferð mikill matgæðingur og nautnaseggur. Það þarf ekki allt að vera fullkomið Victoría segir að hver sem er geti orðið fær í eldhúsinu en áhugi og þor sé það sem þurfi að vera til staðar. Það að hafa allt fullkomið sé ekki aðalmálið „Þegar eitthvað per- sónulegt stóð til, afmæli, veislur í heimahúsi eða aðrar skemmtilegar uppákomur átti ég það til að taka því alltof alvarlega og gleyma mörgu af því yndislega sem fylgir því að elda góðan mat og gefa sér tíma í hugmyndavinnu og undirbún- ing, njóta þess að elda með vinum og fjölskyldu. Þessir mikilvægu þættir urðu útundan þegar full- komnunaráráttan í mér lagði mestu áherslu á nákvæmnisskurð á græn- meti eða svekkelsi yfir ósamstæðu diskastelli. En með tímanum hef ég lært að njóta og meta mikilvægari þætti eldamennsku og það er að elda góðan og næringarríkan mat fyrir fólkið mitt og einfaldlega eiga þessar góðu stundir í eldhúsinu í frábærum félagsskap.“ Hún segir að það sé lykilatriði að eiga góð tæki og tól til að vinna matinn en einnig opið hugarfar. „Eitt stykki veglegur og vel brýnd- ur grænmetishnífur tekur mann ansi langt inn í ævintýraheima eldhússins ef viljinn er til staðar og hug- urinn opinn fyrir nýjungum og fá- einum mistökum á leiðinni.“ Hún segir það mik- ilvægt fyrir byrj- endur í eldhús- inu að notast þar við grunn- aðferðir, leyfa hráefninu að njóta sín og vera óhrædd við að elda bæði græn- meti og fisk. „Með því að snöggelda græn- meti höldum við betur í næring- arefnin, það heldur fallegum litum sínum betur og bragðið og áferðin er í flestum tilfellum mun meira spennandi. Um að gera að láta bara vaða, fyrir vik- ið verður maður reynslunni ríkari.“ Rangt að velja einn rétt Aðspurð um uppáhaldsmatinn sinn segist Victoría ekki geta valið á milli, henni þyki það einfaldlega rangt. „Mér finnst ekki réttlátt fyr- ir hið fullkomna lasagna að vera sett í sama hóp og sérvaldir hum- arhalar, steiktir upp úr truff- lusmjöri og borna fram á gylltum smásperglum. Þá gætum við allt eins borið saman Luciano Pavarotti og Freddie Mercury. Báðir eru þeir afgerandi listamenn en hver á sínu sviði. Ég get hins vegar farið út í það hvað ég borða mikið af og það er ferski fiskurinn. Við erum svo lánsöm að fá að njóta hans allt árið í kring. Steinbítur og karfi sitja þar í topp tveimur sætunum.“ Morgunblaðið/Golli GÓMSÆTT OG GOTT SALAT Lifir sig inn í matinn ÁTTA ÁRA HAFÐI VICTORÍA MEIRI ÁHUGA Á ÞVÍ HVAÐ VÆRI Í MATINN Á JÓLUNUM HJÁ BEKKJARFÉLÖGUM SÍNUM EN JÓLAGJÖFUNUM. HÚN HEFUR DÁLÆTI Á MAT OG GEF- UR HÉR UPPSKRIFT AÐ GÓMSÆTU VETRARSALATI. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is * „Ég á það tilað lifa miginn í stemninguna og brögðin sem eru í boði og mik- ið grín gert að mér þegar ég spyr í fullri alvöru hvort hinir séu ekki líka að upp- lifa þessa flug- eldasýningu sem á sér stað í bragðk- irtlum mínum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.