Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2013 Dagblöð hafa þann kost umfram net- og samfélagsmiðla að þau eru kyrr – ef svo má að orði kom- ast. Þegar texti, myndir og annað efni er komið á blað og prentað verður ekki aftur snúið. Ekki er hægt að hrófla við neinu eftir á og ómögulegt að hreyfa andmæl- um við því sem skrifað er sam- tímis lestri, nema þá helst upp- hátt við sjálfan sig. Miðillinn er því ekki það sem kallað er gagn- virkur. Hver tegund fjölmiðils hefur kosti og galla en ef við horfum sérstaklega á kostina má segja að dagblöð geti verið kær- komin hvíld frá hröðum net- heimum. Þegar lesandi hefur lok- ið lestri greinar eða viðtals er hægt að velta efni þess fyrir sér án þess að vera undir einhvers konar ímyndaðri pressu við að „kommenta“ eða henda fram illa ígrundaðri skoðun eins hratt og mögulegt er. Það er vel þess virði að nota dagblöð til að æfa sig í samskiptum, jafnvel netsam- skiptum. Prófum að gera litla til- raun á Sunnudagsblaði Morg- unblaðsins í dag. Veldu þér grein í blaðinu og skrifaðu „komment“ við hana neðst á síðuna (já ég er að meina „skrifa“ með svona gamaldags tóli eins og penna, jafnvel blýanti … þannig að þú gætir þurft að grafa upp ydd- arann). Þegar þú hefur lokið við að orða hugsun þína um efni greinarinnar skaltu ímynda þér að sá eða sú sem rætt er við eða fjallað um standi fyrir framan þig. Ef þú treystir þér ekki til að lesa það sem þú skrifaðir orðrétt svo viðkomandi heyri … taktu þá fram strokleðrið og æfðu þig í mannasiðum. Svo má færa þessa æfingu yfir á netið líka, fyrir lengra komna. Bara muna að ýta ekki á „birta“ fyrr en þú ert búin (n) að prófa að lesa í þykjustunni upphátt fyrir þann sem um er rætt. RABBIÐ Blýantinn á loft Eyrún Magnúsdóttir Landgræðslan og Umhverfisstofnun hlutu fyrr á árinu rúmlega tveggja milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til að bæta aðgengi í Dimmuborgum í Mývatnssveit. Styrkurinn var notaður til að malbika göngustíg frá aðkomu í Borgirnar og inn á Hallarflöt. Árið 1983 kom hingað til lands sex manna hópur frá Bretlandi til þess að leggja stíg í kringum borholur í Krýsuvík. Engar vélar voru notaðar við stígagerðina 1983, aðeins hand- aflið og hjólbörur. Í náttúruparadísinni Dimmuborgum var notast við malbikunarvél auk dráttarvélar svo verkið gengi hratt og örugglega fyrir sig. Stíg- urinn í Dimmuborgum verður mikil bragarbót en um 200.000 manns heimsækja Dimmuborgir árlega. AUGNABLIKIÐ Ljósmynd/Daði Lange Friðriksson TÆKNIN AUÐVELDAR GÖNGUSTÍGAR Í DIMMUBORGUM Í MÝVATNSSVEIT VORU MALBIKAÐAR Í VIKUNNI OG VORU NOTAÐAR TIL ÞESS VINNUVÉLAR. ÁRIÐ 1983 BIRTIST FRÉTT Í MORGUNBLAÐINU SEM SAGÐI FRÁ BRESKUM HÓPI MANNA SEM LAGÐI STÍG Í KRÝSUVÍK. TÖLUVERÐUR MUNUR ER Á AÐFERÐUM. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Jólabasar Sólstafa. Hvar? Waldorf- skólanum Sóltúni 6. Hvenær? Laug- ardag kl. 13-16. Nánar: Úrval af fallegum leikföngum og handverki úr náttúrulegum við. Kaffistofa og veit- ingar á staðnum og allir velkomnir. Jólabasar á leikskóla Hvað? Hjartaspaðar. Hvar? Gaflaraleik- húsið. Hvenær? Laugardag og sunnudag kl. 20. Nánar: Leiksýningin Hjartaspaðar fjallar um lífið og ævintýr- in í ellinni. Verð: 3.500 kr. Ævintýri í ellinni Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Sveinsstykki. Hvar? Þjóðleikhúsið. Hvenær? Sunnudag kl. 20. Nánar: Heiðruð er minning Þorvalds Þorsteinssonar myndlistarmanns með einleiknum Sveinsstykki eftir hann sjálf- an. Arnar Jónsson fer með hlutverk Sveins. Verð: 4.750 kr. Heiðra Þorvald Hvað? Tóneikar Hel- enu Eyjólfsdóttur ásamt stórsveit. Hvar? Súlnasal, Hótel Sögu. Hvenær? Laugardag kl. 21. Nánar: Helena syngur ásamt einvalaliði tónlistarmanna sem hún hefur unnið með í um sex áratugi. Verð: 3.500 kr. Syngjandi í 60 ár Hvað? Íslandsmót í Scrabble. Hvar? Happ á Höfðatorgi. Hvenær? Frá laug- ardegi kl. 10.45 fram á sunnudag kl. 20. Nánar: Sex um- ferðir verða leiknar og verðlaun fyrir efstu tíu sætin. Léttar veitingar í boði fyr- ir spilara. Verð: 2.000 kr. Skrafl í fyrsta sinn Hvað? Leiksýn- ingin Óvitar. Hvar? Þjóðleik- húsinu. Hvenær? Sunnudag kl. 16. Nánar: Sýningin Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur verður hér táknmáls- túlkuð. Verð: 3.950. Táknmálstúlkaðir Óvitar * Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.