Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Matgæðingurinn Eva Rós Brink gefur gómsætar uppskriftir tilvaldar fyrir flott matarboð »32
6-700 gr kjúklingabringur
2-3 msk ólífuolía
2-3 msk limesafi
1 tsk paprikukrydd
1 tsk reykt paprikukrydd
2 tsk cumin
2 tsk púðursykur
2-3 tsk chipotle paste
e.t.v. smá cayenne pipar
salt og pipar
3 stór hvítlauksrif
1 gulur laukur
1 rauðlaukur
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 dós hakkaðir tómatar
150 ml dökkur bjór
1 msk bbq sósa
1 msk kjúklingakraftur
1 dós svartar baunir
0,5 bolli frosnar maísbaunir
maisenamjöl eftir þörfum
Aðferð:
Kjúklingabringur eru skornar í litla
bita. Ólífuolíu, lime safa og kryddi
blandað saman og hellt yfir bring-
urnar. Gott er að láta þetta standa
aðeins.
Steikið kjúklinginn næst á pönnu
þar til brúnaður. Lauk, hvítlauk og
papriku er bætt við og steikt í
smástund. Þá er bjór, hökkuðum
tómötum, kjúklingakrafti og bbq
AVÓKADÓ-RJÓMI:
0,5 dós sýrður rjómi
2 stk þroskuð avókadó
lime safi
nokkrir dropar græn tabasco
sósa
salt
cumin
Allt sett saman í Mulinex og hrært
þar til slétt og fín áferð næst.
sósu bætt við og látið malla í ca
hálftíma. Næst er baunum bætt
við og maisenamjöl þar til ákjós-
anleg þykkt er á réttinum. Smakk-
að til og látið malla í ca 10 mín.
Gott er að bera réttinn fram
með hrísgrjónum, rifnum osti,
kóríander-laufum og smátt skornu
íssalati. Jafnvel nachos flögum líka
til að fá smá bit í réttinn, og svo
auðvitað avocadorjómanum.
Yljandi Chili con pollo með avókadó-rjóma
É
g hef bara svo gaman af því að vera í
eldhúsinu. Tíminn þar fyrir kvöldmat
er eiginlega uppáhaldstími dagsins,“
segir Jóna í viðtali við Morgunblaðið.
Ung að árum, eða um 12 ára aldurinn, segist
hún hafa verið farin að elda einn dag í viku
en eigin matvendni hafi orðið til þess að hún
byrjaði fyrst að prófa sig áfram í eldhúsinu.
Þar með var áhuginn á mat og matargerð
kveiktur, sem enn sér ekki fyrir endann á.
Átti hún m.a. eftir að ráða sig í vist á bónda-
bæ í Þýskalandi, þá 17 ára Verzlunarskóla-
mær. „Þar var ég síðan í því að búa til osta
og elda ofan í þýska bóndafjölskyldu sum-
arlangt,“ segir hún létt í bragði.
Jóna, sem er lærður viðskiptafræðingur,
starfar í dag í markaðsdeild Garðheima. Þar
hefur hún getað leyft áhugamálinu að
blómstra en hún sá m.a. um að koma veit-
ingastaðnum Spírunni á laggirnar þar, í fé-
lagi við systkini sína og frænda, kokkinn
Hinrik. „Hugmyndin með Spírunni er ná-
tengd stefnu Garðheima þar sem samvinna
við bændur er grunnurinn. Heildsalan okkar
flytur vörur um allt land til bænda og við
flytjum til baka afurðir frá þeim – þannig
fylgjum við vörunum svolítið alla leið, má
segja,“ segir hún. Frumleg salöt á Spírunni
hafa t.d. mælst afar vel fyrir, en þau koma
ásamt fjölbreyttum kjöt- og fiskréttum, og
nú orðið er töluvert um að fólk og fyrirtæki
séu í áskrift að mat hjá fyrirtækinu.
Slow food og hægeldað í uppáhaldi
Sjálf segist Jóna reyna að versla eins mikið
og ferskt beint frá bónda og hún getur. Er
öll matreiðsla kennd við „slow food“ í miklu
MATGÆÐINGURINN JÓNA BJÖRK GÍSLADÓTTIR
Hægeldaður matur í uppáhaldi
JÓNA BJÖRK GÍSLADÓTTIR VAR
EKKI HÁ Í LOFTINU ÞEGAR HÚN
VAR FARIN AÐ PRÓFA SIG ÁFRAM
Í ELDHÚSINU. ENN Í DAG NÝTUR
HÚN ÞESS AÐ DUNDA SÉR ÞAR,
OFTAR EN EKKI MEÐ AÐSTOÐ
ÞRIGGJA UNGRA HJÁLPARKOKKA,
Á MILLI ÞESS SEM HÚN SINNIR
DAGLEGUM VERKUM OG STÖRFUM
Í FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKINU
GARÐHEIMUM.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Jóna, ásamt Matthíasi Jörva Jenssyni, einum af þremur sérlegum „aðstoðarmönnum“ hennar í eld-
húsinu. Tekur hann gjarnan að sér að hræra fyrir móður sína, smakka til og veita almenna ráðgjöf.
Kjúklingapottrétturinn góði
er tilvalinn á nöprum
haustdögum. Í hann fer
m.a. svolítið af dökkum bjór.
uppáhaldi hjá henni. „Ég elska svona hæg-
eldaðan mat og allt kennt við „slow food“
höfðar mikið til mín,“ segir hún. Bætir hún
við að hún viti fátt betra en að byrja að elda
kvöldmatinn í hádeginu, eins og t.d. á sunnu-
dögum, þegar hægt er að leyfa matnum að
malla allan daginn í rólegheitunum.
Jóna gefur hér uppskrift að ljúffengum
pottrétti, sem er vinsæll á hennar heimili.
„Þetta er svona yljandi haustréttur, t.d. þeg-
ar maður er búinn að vera úti með krökk-
unum um helgar og allir orðnir kaldir. Þá er
tilvalið að elda svona hlýjan pottrétt sem
höfðar til allra kynslóða,“ segir hún.Sjálf
segist hún yfirleitt umkringd við pottana en
synirnir þrír, ekki síst þeir tveir yngri, sitji
iðulega uppi á eldhúsborði og „taki þátt“ í
eldamennskunni, hjálpi til við að hræra og
þvíumlíkt. „Ég geri fastlega ráð fyrir að þeir
hafi erfti matreiðsluáhugann og verði áfram
svona myndarlegir í eldhúsinu í framtíðinni,“
segir hún létt í bragði að lokum.