Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2013
Ferðalög og flakk
EYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJA
HÚSGAGNAHÖLLIN • B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k • OP I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a r d . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 7 O
AfsláttuR
6.000
kRónuR!
AfsláttuR
6.000
kRónuR!
AfsláttuR
2.000
kRónuR!
AfsláttuR
3.000
kRónuR!
ANDREW
Svart, hvítt
og brúnt leður.
TILBOÐSVERÐ:
13.990 KR.
Fullt verð 19.990
ILJANA
PU-svart. Svart
lakkaðir viðarfætur.
TILBOÐSVERÐ:
9.900 KR.
Fullt verð 15.990
PIANA
Ljós-grátt
áklæði.
TILBOÐSVERÐ:
7.990 KR.
Fullt verð 9.990
KITOS
PU-svart og hvítt.
Krómfætur.
TILBOÐSVERÐ:
10.990 KR.
Fullt verð 13.990
ASAMA
Margir litir.
Krómfætur.
TILBOÐSVERÐ:
6.390 KR.
Fullt verð 7.990
AfsláttuR
3.000
kRónuR!
ATHENA
Ljóst og steingrátt
áklæði. Viðarfætur.
TILBOÐSVERÐ:
10.990 KR.
Fullt verð 29.990
MARcus
20%
AfsláttuR!
S
alzburg er 170 þúsund
manna borg í Austurríki
sem er hvað þekktust fyrir
að vera fæðingarborg tón-
skáldsins Wolfgangs Amadeus
Mozarts en hann fæddist árið 1756.
Borgin þykir afar falleg og ekki
skemmir umhverfið en Alparnir
blasa við hvert sem litið er.
Leopoldskron-kastali var reistur
1736-40 og er í dag í eigu banda-
rísku stofnunarinnar NGO. Kast-
alinn er lokaður almenningi, en
hann var notaður fyrir upptökur á
hinni frábæru kvikmynd Söngva-
seið (Sound of Music). Myndin var
einmitt að mestu tekin upp í ná-
grenni Salzburg og gerir það góða
mynd frábæra.
Gamli bærinn í borginni slapp að
mestu við loftsprengjuárásir
bandamanna í síðari heimsstyrjöld-
inni. Rétt fyrir stríðslok fengu her-
foringjarnir Gustav Adolf Scheel
og Hans Lepperdinger þá skipun
að verja borgina til hinsta manns
gegn herjum bandamanna. Þeir
óhlýðnuðust þessum skipunum til
að hlífa borginni við frekari
skemmdum. Lepperdinger tók frið-
samlega á móti Bandaríkjamönnum
4. maí 1945 og afhenti þeim borg-
ina bardagalaust. Þykir gamli bær-
inn einn sá fallegasti í Evrópu,
ríkulega skreyttur barokkbygg-
ingum og hefur verið á heims-
minjaskrá UNESCO síðan 1996.
Salzburg liggur við ána Salzach
nokkuð norðarlega í Austurríki.
Miðborgin liggur mitt á milli fimm
hæða. Á einni þeirra gnæfir
kastalinn Hohensalzburg.
Frá Salzburg er stutt til gríðar-
lega fallegra skíðasvæða. Flestir
sem fljúga til Salzburg eru einmitt
að fara að skella sér á skíði. Verðið
þykir hagstæðara og aðstæður
betri en á skíðasvæðum á Ítalíu og
í Frakklandi.
Salzburg er mögnuð borg að
heimsækja þar sem hægt er að
sameina svo margt, hvort sem það
er um vetur eða sumar. Þar er
hægt að versla, renna sér á skíðum
og skoða en umfram allt fá sér
eina Mozart-kúlu.
Kastalinn Hohensalzburg í bakgrunni Salzburg. Kastalinn er opinn almenningi í
dag og er mest sótti ferðamannastaður Austurríkis, utan Vínarborgar.
SALZBURG OG NÁGRENNI
Austurrísk
Alpafegurð
FERÐ TIL SALZBURG Í AUSTURRÍKI GETUR ÞÝTT SVO
MARGT. BORGAR-, SKÍÐA- EÐA VERSLUNARFERÐ ALLT Í
EINUM PAKKA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Myndin Söngvaseiður eða Sound of Music var tekin upp í Salzburg. Hér er
Julie Andrews að syngja í einni af eftirminnilegustu senum myndarinnar.
Hin fræga Getreidegasse, þar sem
Mozart fæddist í húsi númer níu.