Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2013
Það dynja á okkur tölur um hvernig við höf-um það og hvert við stefnum. Þrjú kommatvö prósent hagvöxtur á síðasta ársfjórð-
ungi, fasteignaverð stóð í stað í síðasta mánuði,
kaupmáttur launa fór upp um hálft prósent síð-
asta árið, laun hafa þannig hækkað umfram verð-
bólgu.
Hve margir ætli kannist við þessar tölur af eig-
in raun? Er þessi maður sem hagtölurnar lýsa til?
Sennilega ekki. Það gengur nefnilega ekki aðeins
misjafnlega milli atvinnugreina og landshluta
heldur einnig milli fyrirtækja og einstaklinganna
sjálfra.
Þess vegna kemur mér það jafnan á óvart þegar
fram stíga menn, embættismenn, stjórn-
málamenn og hinir svokölluðu aðilar vinnumark-
aðarins og gefa út skoðun sína á því hvað muni
teljast æskileg launahækkun næstu misserin. Og
nefna eina tölu fyrir alla og telja það um leið mikið
áhyggjuefni ef hækkunin verður meiri. Þá fer jú
verðbólgan af stað. Í vikunni sagði seðla-
bankastjóri, hokinn af reynslu af málaflokknum,
öðrum landsmönnum til að mynda skoðun sína á
því hvað þeir ættu að fá mikla launahækkun á
næstunni.
Gæti verið að þessi ótti við að launahækkunin
verði of mikil skýrist að einhverju leyti af því að
stór hluti vinnumarkaðar er mjög miðstýrður? Í
landi samkeppnislaga og samkeppniseftirlits þyk-
ir fátt eðlilegra en að fylgjast með því í fréttum
þegar samtök fyrirtækja annars vegar og mörg
þúsund launþega hins vegar stilla sér upp við
kaffihlaðborðið með samræmdar kröfur um kaup
og kjör. Þegar slíkir risasamningar takast fara
þeir auðvitað eins og höggbylgja um þjóðfélagið.
Það er því kannski ekki að undra að seðla-
bankastjóri hafi áhyggjur í hvert sinn sem aðilar
vinnumarkaðarins láta á sér kræla.
Það er ekki nóg með að þessir ágætu aðilar
semji fyrir hönd stórs hluta þjóðarinnar um kaup
og kjör heldur má jafnan sjá þá á fundum með rík-
isstjórn lýðveldisins þar sem rætt er um hvernig
haga eigi ríkisfjármálum og annarri stjórn rík-
isins svo samningar gangi nú greiðlega. Auðvitað
skiptir skattprósenta, verðlag og annað í þjóð-
félaginu máli þegar samið er um kaup og kjör. Að
því leyti er mikilvægt að stjórnmálamenn leggi
grunn að góðri sátt launþega og atvinnurekenda
um launakjör. Það gera þeir hins vegar ekki með
svokölluðu útspili á ögurstundu við kleinuborðið í
Karphúsinu. Góður grunnur að kjarasamningum
launafólks, hvort sem þeir eru miðlægir eða ekki,
felst í trúnni á að umbun vinnu og launahækkanir
skili sér í vasa launþegans og trúnni á starfs-
grundvelli fyrirtækjanna. Að búa í haginn fyrir
kjarasamninga er ekki einskiptisaðgerð.
Kleinuliðið
* Laun manna eru mis-munandi. Skilyrði tillaunahækkana eru einnig
mismunandi milli einstak-
linga og fyrirtækja. Samt er
fullt af fólki á launum við að
semja um nákvæmlega eina
hækkun fyrir alla.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Baldur Ragnarsson leikari og
gítaristi Skálmaldar er nýkominn
heim úr Evrópureisu. „Jæja þá er
maður búinn að þvo evrurnar sínar
á 40. Duglegur...
Sá fyrsti sem kem-
ur með pen-
ingaþvættisbrand-
ara fær staðfasta
fimmu í mænuna.“
Ekki stóð á viðbrögðum og benti
Halldór Fannar Sigurgeirsson leik-
ari honum á það að hann hefði átt
að opna vélina í miðri vinnslu og
setja evruna á flot. Þá spurði Snæ-
björn Ragnarsson hvort hann væri
kominn í peningaþvættið.
Hildur Lillien-
dahl vildi toppa
Egil Helgason í
fylgjendum á Fés-
bókinni. „STÖÐV-
IÐ KLUKK-
URNAR. Egill Helgason er með 29
fleiri followera en ég á Facebook.
Þetta krefst aðgerða. Með sam-
stilltu átaki getum við bætt úr
þessu! Komið, fylgjendur!“ Vinir
Hildar létu ekki á sér standa. Logi
Guðmundsson skrifaði: „Meiri
massi, meiri aðdráttarafl. You can’t
win this one.“
Vigdís Hauksdóttir hefur farið
mikinn í vikunni. Í kjölfar ummæla
hennar um námsmenn er óhætt að
segja að Fésbókin hafi logað. Þor-
steinn Guðmundsson leikari er
orðinn þreyttur á fjaðrafokinu.
„Spurning hvort ekki er hægt að
stofna lokaða grúbbu fyrir þá sem
vilja hneykslast á (eða lýsa stuðn-
ingi við) Vígdísi Hauksdóttur og El-
liða í Eyjum svo fólk geti nú bara
látið vaða í friði. Þetta er að verða
álíka þreytandi og leikjabeiðnir.“
Tobba Mar-
inósdóttir lagði
leið sína til Banda-
ríkjanna í vikunni
og svo virðist sem
hún hafi ætlað að
kaupa sér snyrtivörur í leiðinni
með tilheyrandi afslætti. „Að fatta
16 klst fyrir brottför til USA að
MAC afslàttarkortið þitt er út-
runnið er hressandi!“ sagði hún.
Vonum að þetta hafi reddast.
AF NETINU
Viðskiptamaðurinn Kormákur Geirharðsson,
annar eigandi herrafataverslunar og Ölstofu
Kormáks og Skjaldar, fagnar fimmtugsafmæli
sínu um helgina og ætlar að fagna því í kvöld
með vinum og vandamönnum. Kormákur segir
að þetta sé stór áfangi og gerir hann ráð fyrir
því að renna inn í daginn „skítfullur“ og verði
að jafna sig á því á afmælisdaginn með ýmsum
hætti. „Líkaminn segir að ég sé fimmtugur en
andinn er einhvers staðar á síðustu öld,“ segir
Kormákur hress.
Það lá vel á Kormáki þegar blaðamaður sló á
þráðinn og lítur allt út fyrir að þetta stefni
þetta í bestu helgi hjá honum. „Ég hugsa að ég
setjist með félögunum og við horfum á fót-
boltaleik, það verður afréttarinn,“ bætir hann
við en ætlar þó að reyna „rústa upp einni
köku“ fyrir börnin sín upp úr hádegi. Sunnu-
dagsblaðið óskar Kormáki innilega til ham-
ingju með stóra daginn. Kormákur er spenntur fyrir afmælinu.
Ljósmynd/Steinar H.
Gömul sál fagnar
fimmtugsafmæli Landsnefnd UN Women kynnti á dögunum átak-
anlega auglýsingaherferð sem miðar að því að
vekja athygli á einni alvarlegustu birtingarmynd
kynbundins ofbeldis, sýruárásum. Nokkar þjóð-
þekktar konur lögðu átakinu lið og var andlitum
þeirra skeytt við andlit indverskra kvenna sem lif-
að hafa af sýruárásir.
Myndirnar eiga að vekja til umhugsunar um
hversu djúpstæð áhrif sýruárásir hafa á líf ungra
kvenna. UN Women efnir til fagnaðar í Hörpu hinn
14. nóvember til stuðnings þolendum sýruárása
undir heitinu Fiðrildafögnuður. Þar mun helsta
listafólk landsins leggja UN Women lið og búast
má við skemmtilegri upplifun. „Með þessu móti
leggjum við áherslu á gleði, kraft og baráttu á
skemmtilegan hátt,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir,
framkvæmdastýra landsnefndar UN Women.
Miðaverð er 3.900 kónur og hægt að kaupa miða
á Harpa.is og midi.is auk verslunar ELLU í Ing-
ólfsstræti 5. Hafin er sala á leðurarmböndum til
styrktar átakinu sem einnig gilda sem aðgöngu-
miðar á Fiðrildafögnuðinn.
Áhersla á gleði og kraft
Leðurarmböndin gilda einnig sem aðgöngu-
miðar á hátíðina. Hér eru þær Inga Dóra
framkvæmdastýra og Hanna Eiríksdóttir,
verkefnastýra UN Women.
Vettvangur