Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2013, Qupperneq 39
10.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Í
vikunni sat ég morgunfund Félags kvenna í atvinnurekstri, FKA,
þar sem rætt var um ósýnileika kvenna í fjölmiðlum. Þar var vísað í
könnun sem Creditinfo gerði fyrir FKA en þar kom í ljós að í ljós-
vakamiðlum voru karlar tvöfalt fleiri en konur þegar kom að við-
tölum. Hlutfallið skánaði eitthvað pínulítið þegar bornar voru saman
tölur úr spjallþáttum en þó var munurinn ennþá mikill. Könnunin fór
fram á tímabilinu 1. febrúar 2009 til 30. ágúst 2013 og var heildarfjöldi
viðmælenda yfir 100.000. Þessar tölur eiga reyndar ekki við mitt Smart-
land þar sem konur eru í aðalhlutverki allan sólarhringinn alla daga
ársins.
Jafnréttisumræðan snýst mjög oft um það að konur komist ekki að
fyrir feðraveldinu. Auðvitað er það alveg hárrétt enda hefur sagan ekki
sýnt að fólki séu rétt völd – fólk hrifsar þau til sín (eða réttara sagt –
karlar hrifsa þau til sín). Þeir sem hafa völdin gera auðvitað allt til að
halda þeim – því það er bara hluti af mannlegu eðli. Til þess að breyta
þessu þurfa konur að komast til valda í stjórnmálum og þær þurfa að fá
peningavöld. Það er líklega ekkert skrýtið að flestir fréttatímar séu full-
ir af körlum þegar forsetinn er karl og formenn stærstu stjórn-
málaflokkanna eru karlar.
Þótt karlarnir séu fyrirferðarmeiri í ljósvakamiðlum er því miður
ekki eingöngu hægt að kenna feðraveldinu um það. Það er að hluta til
okkur sjálfum að kenna því það er eins og við séum ragari en bræður
okkar við að tjá okkur.
Flestar konur vilja hafa allt á hreinu áður en þær fara í viðtöl því það
alversta sem gæti gerst er náttúrlega að þær myndu segja einhverja
bölvaða vitleysu. Auk þess er stór hópur kvenna upptekinn af því að
taka „nú alls ekki þátt í neinum fíflagangi“. Sem minnti mig á það að á
ferlinum hef ég oft fengið þau svör, þegar ég óska eftir viðtali við konu
og að fá ljósmynd af henni, að það henti nú ekki alveg því viðkomandi
fari í strípur í næstu viku. Þegar þessi næsta vika kemur er „mómentið
farið“. Á ferlinum hefur karlmaður aldrei frestað myndatöku vegna
hárlitunar og aldrei beðið um að sjá myndina áður en hún birtist. Þeim
virðist einhvern veginn vera alveg „drullusama“. Og þá spyr ég, hefur
það komið þeim í koll? Nei!!!
Ég elska varaliti og fín föt en við megum ekki vera svo hégómlegar að
láta það stoppa okkur í að stíga fram og komast til valda. Indra Nooyi,
forstjóri Pepsico, sem er ein valdamesta kona heims, sagði á fundi í
Þjóðleikhúsinu í síðustu viku að við ættum að sýna meiri tilfinningar og
leyfa okkur að vera eins og við erum. Þá velti ég því fyrir mér hvort
það sé ekki farsælast fyrir okkur að tala
alltaf frá hjartanu og láta vaða.
Auðvitað þurfum við stundum að
glugga í einhverjar skýrslur en
ef við höfum skoðanir á mál-
unum þá hljótum við að geta
rætt það við blaðamenn líkt og
fólkið í kringum okkur.
Ég mæli með því að konur venji
sig á að segja alltaf já þegar þær
eru beðnar um að koma í viðtal.
Þú veist aldrei hvert Já-ið á eftir
að leiða, því lífið er dálítið þannig
að eitt leiði af öðru og svo fram
eftir götunum. Ég grínast stund-
um með það að ég sé eins og Ást-
þór – „alltaf með“ … Það hefur
reynst ágætlega …
martamaria@mbl.is
„Alltaf með –
eins og Ástþór“
Indra Nooyi
forstjóri
Pepsico.
Ástþór
Magnússon
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Síðustu 85 árin hefur Koziol
verið uppspretta hönnunar
sem tekið er eftir og
framleitt ótal þarfaþing sem
færa gleði og litadýrð inn á
heimili og vinnustaði.
Útsölustaðir: Apótek og Heilsuverslanir um allt land.
Háralitir fyrir konur sem velja náttúrulegan
háralit og hárið glansar af heilbrigði
• Inniheldur ekki Paraben, algengasta innihaldsefni
sem veldur ofnæmisáhrifum í háralitun
• Hylur grá hár 100%
• 24 náttúrulegir háralitir
• Hárlýsingarlitur (strípuefni) plasthetta og
hárpinni innifalin
• Náttúrulegar jurtir sem gefa hárinu gljáa og mýkt
• Varanlegur háralitir sem helst fallegur í 3 mánuði
• Ofnæmisprófaður
• Íslenskar leiðbeiningar