Morgunblaðið - 04.12.2013, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Smáauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuherbergi til leigu
Lítil og meðalstór skrifstofuherbergi
með aðgangi að interneti, kaffistofu
og wc, miðsvæðis í Reykjavík.
Upplýsingar í síma: 899-3760.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Kristalsljósakrónur til sölu
Glæsileg ný sending af kristalsljósa-
krónum og veggljósum. Klassískur og
nýtísku stíll. Sjón er sögu ríkari.
BOHEMIA KRISTALL
Grensásvegi 8, s. 571 2300
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551-6488.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
TILBOÐ TILBOÐ
Stakar stærðir frá skálum E-G á
kr. 5.500.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18.
Opið á lau. 10-14.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Teg. Florida. Nýkomnir hinir frá-
bæru inniskór frá BIRKENSTOCK
Litir: Svart lakk, rautt og silfrað.
Stærðir: 36-42. Verð: 12.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - föst. 10 - 18.
Opið laugard. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Teg. 7328 Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: Svart og bordo. Stærðir: 36-42.
Verð: 16.600.
Teg. 99520 Sérlega mjúkir og
þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41.
Verð: 18.500.
Teg. 1501 Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36-41. Verð: 16.400.
Teg. 107 Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36-42. Verð: 14.885.
Teg. 171 Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 37-42. Verð: 15.785.
Teg. 7282 Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: Svart og bordo. Stærðir: 37-42.
Verð: 15.600.
Teg. 7268. Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 37-42. Verð: 15.785.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - fös. 10 - 18,
laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Frú Sigurlaug
Mjóddin s. 774-7377
Mikið úrval
af sloppum
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt
Bátar
Bayliner sportbátur til sölu!
Bayliner sportbátur til sölu, tilvalinn í
sjóstöngina, skotveiðina. Lítur hrika-
lega vel út, árgerð 2007. Allur klædd-
ur hvítu leðri. Öll staðgreiðslutilboð
skoðuð!
Upplýsingar í 659-2805 eða
leo@hresso.is
Ferðaþjónusta – „Water-Taxi” –
hvalaskoðun
Hraðskreiðasti farþegabáturinn
á Íslandi, Technomarine Rib-bátur,
700 hestöfl, gengur 50 mílur. 12
metra Rib-bátur með öllum siglinga-
tækjum, 20 sæti, 20 gallar, tvær 350
hestafla Yamaha 2007, Saltwater
series XL V-8 four stroke, nýyfirfarnir,
aðeins 608 tímar á vélunum.
Til sýnis í Kópavogshöfn um
næstu helgi.
Uppl. í síma 820 5181.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Glerjun og gluggaviðgerðir
Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum
smíðaverkefnum.
Kortaaðgangskerfi fyrir húsfélög/
sameignir - engir lyklar.
Glugga- og hurðaþjónustan,
s. 895 5511, smidi.is
Helgi pípari
Hitamál vegna frostsins, viðhald,
endurlagnir o.fl.
Upplýsingar í síma 820 8604.
Iðnaðarmenn
Föstudagurinn 1. nóv., var
langur, mjög langur, Stebbi
bróðir var jarðsunginn í Egils-
staðakirkju sem var þétt setin
af vinum og vandamönnum.
Gott var að sjá allt þetta fólk
sem við þekkjum svo vel og
stóð þarna við bakið á okkur og
kvaddi hann. Stebbi var vin-
margur maður, ekki komið að
tómum kofa hjá þeim hjónum,
hvorki með greiða eða mót-
tökur.
Við systkinin höfum haldið
lengi þann sið að koma saman á
jóladag og þá skipt með okkur
að hafa Þrándarveislu. Sl. jól
var Stebbi með veisluna ásamt
sinni fjölskyldu, þó svo að hann
hafi verið orðinn veikur þá,
kom það ekki til greina að veisl-
an væri ekki hjá honum. Ekki
reiknuðum við með að það yrði
hans síðasta jólaveisla. Það
sannast í kvæðinu, „guð má vita
hvar við dönsum næstu jól“.
Það er mikið skarð sem
myndaðist hjá okkur Þrándum
nú, og verður erfitt að sigla í
gegnum framtíðina án hans. Þó
svo að margir segi að við séum
mjög lík og aðrir að Þrándar
séu allir eins, þá er sérstaða
hvers og eins mikil.
Stebbi var mjög ólíkur okk-
ur, t.d. hvað varðar pólitískar
skoðanir. Stebbi var fylginn sér
með það sem hann var búinn að
ákveða og yfirleitt þýddi ekkert
að viðra sínar skoðanir, það
kom bara „víst“ og þar með
Stefán Hlíðar
Jóhannsson
✝ Stefán HlíðarJóhannsson,
bóndi og húsa-
smíðameistari,
Þrándarstöðum
(Stebbi Þrándur),
fæddist á Sjúkra-
húsinu á Egils-
stöðum 19. ágúst
1949. Hann lést á
sjúkrahúsinu á Eg-
ilsstöðum 25. októ-
ber 2013.
Útför Stefáns fór fram frá
Egilsstaðakirkju 1. nóvember
2013.
voru það lög.
Stebbi var líka
sá sem allmargir
leituðu til hvað
varðaði smíðar og
góð ráð varðandi
það. Hann ætlaði
að hjálpa Gulla og
Huldu á Egilsstöð-
um við að byggja
við hótelið þegar
honum væri batn-
að. Stebbi var lengi
eini bóndinn í fjölskyldunni og
ól upp mörg ungmennin, þar á
meðal „undanvillingana hennar
Ásdísar“. Tveir synir mínir fet-
uðu í fótspor hans og námu
smíðar og „kristnaði“ hann þá
einnig í pólitíkinni. Dóttirin
sem var hjá þeim í vist, varð
bóndi.
Það eru ómetanleg árin sem
við höfum verið samvistum við
hann og hans fjölskyldu. T.d.
árin sem við bjuggum í sambýli
við þau, Guju og Stebba og
Auði og Leif í litlu íbúðum okk-
ar í húsinu þeirra. Þar var oft
glatt á hjalla og mikil sam-
skipti, bæði barna og fullorð-
inna.
Gott var að heyra drauminn
hennar Guju, með að hann kom
heim nóttina eftir að hann dó,
með fylktu liði sem bar hann á
höndum sér, gekk inn og settist
á rúmstokkinn og lagðist svo í
rúmið.
Við vitum það öll að hann er
kominn heim og mun halda
áfram að fylgjast með okkur í
fjarska. Ábyggilega er hann nú
einhvers staðar, kominn á fullt
að kanna nýjar lendur og smíða
við og bardúsa eins og hann var
vanur.
Öfundsvert er það lið sem nú
hefur hann samvistum við sig.
Það eru svo ótal, ótal margar
minningar sem hrannast upp
nú á þessari kveðjustund.
Minningar sem aldrei gleymast
og munum við eftirlifendur
halda þeim á lofti. Takk fyrir
allt, bróðir minn, Stebbi Þránd-
ur.
Ásdís Jóhannsdóttir.
Elsku Snorri.
Okkur systrum verða lengi of-
arlega í minni allar heimsóknirn-
ar okkar til þín. Það var alltaf
jafn gaman að koma til þín og þú
tókst alltaf vel á móti okkur. Þér
þótti óneitanlega skemmtilegra
Snorri Sigjónsson
✝ Snorri Sigjóns-son, bóndi í
Bjarnanesi, fæddist
á Meðalfelli í
Hornafirði 23. júlí
1930. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 8. nóv-
ember 2013.
Útför Snorra fór
fram frá Bjarna-
neskirkju 22. nóv-
ember 2013.
þegar við komum á
hestum og bauðst
okkur alltaf upp á ís.
Hjá þér prófuðum
við ýmislegt mis-
gáfulegt eins og til
dæmis ís með heitu
vatni þegar ísinn
var of kaldur. Við
prófuðum líka ís
með appelsínusafa
og kóki. Þú sýndir
okkur alltaf mikinn
stuðning í hverju sem við þurft-
um aðstoð við, þá sérstaklega ef
það sneri að hestum.
Þín verður sárt saknað og
minning þín mun lifa í hjörtum
okkar um ókomna framtíð.
Guðlaug Jóna, María
Hjördís og Nanna Guðný.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má
finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má
smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi
lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar