Morgunblaðið - 04.12.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.12.2013, Blaðsíða 2
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég sem formaður fjárlaganefndar hef kallað stjórn Íbúðalánasjóðs, fjármálaráðherra, félagsmálaráð- herra og formann Fjármálaeftirlits- ins og aðra sérfræðinga fyrir nefnd- ina til að ræða stöðu sjóðsins. Staðan er grafalvarleg. Sjóðurinn er hálf- gert svarthol,“ segir Vigdís Hauks- dóttir, formaður fjárlaganefndar, að- spurð um hagræðingartillögur sem eru í skoðun og varða framtíð ÍLS. Vigdís vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið að sinni en gert er ráð fyrir 4,5 milljarða fjárveitingu til sjóðsins í fjárlagafrumvarpinu og sömu við- bótarfjárveitingu í fjáraukalögum, alls 9 milljarðar króna. „Ríkissjóður hefur ekki efni á þessum fjáraustri,“ segir Vigdís sem sat í hagræðingar- hópi ríkisstjórnarinnar. Hún segir aðspurð að fyrir helgi verði kynntar breytingartillögur á fjárlagafrumvarpinu í anda tillagna hópsins. Hún vill ekki tjá sig um hvaða tillögur urðu ofan á en segir þær styðja markmið um að tryggja aukið fé til heilbrigðismála. Mikil tækifæri til sparnaðar Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og vara- formaður hagræðingarhóps ríkis- stjórnarinnar, telur sameiningu ÍLS og Landsbankans fela í sér tækifæri til mikils sparnaðar. Boðaðar aðgerðir í skuldamálum styðji við það markmið, enda geti þær styrkt lánasafn ÍLS. „Það sem þarf fyrst og fremst að skoða í fjáraukanum og fjárlaga- frumvarpinu varðandi skuldaleið- réttingar er Íbúðalánasjóður. Það er stærsta einstaka málið, en einnig þarf að skoða áhrif á vaxtabætur o.fl.“ segir Guðlaugur Þór sem telur milljarðatap ÍLS kalla á róttækar aðgerðir. Engar ákvarðanir hafi hins vegar verið teknar í þessu efni. „Ég tel að það þurfi að fara í mjög róttækar aðgerðir með Íbúðalána- sjóð. Því fyrr þeim mun betra. Vandamálið fer ekki frá okkur. Í því samhengi verður líka að skoða stöðu Landsbankans en bankinn býr við íþyngjandi fjármögnun í erlendri mynt, stærstur hluti útlánasafnsins og þ.a.l. eigna bankans er veðsettur og krafa er um lágmarks veðþekju- hlutfall og önnur íþyngjandi skilyrði. Eiginfjárhlutfall Landsbankans er mjög hátt, öfugt við Íbúðalánasjóð, þar er eiginfjárhlutfallið allt of lágt. Sameining myndi stöðva út- greiðslur skattgreiðenda til ÍLS en sameinaður banki yrði að öllu óbreyttu of stór. Það þyrfti þá að taka á því sérstaklega. Það þarf hins vegar að skoða sameiningu og aðrar róttækar aðgerðir. Eins og staðan er núna er sjóðurinn holræsi fyrir skattfé almennings. Þar lekur enda- laust niður,“ segir Guðlaugur Þór. Hann bendir á að verði samtals 9 milljarða fjárveiting til sjóðsins í fjárlagafrumvarpinu og fjárauka- lögum samþykkt muni hún bætast við þá 40 milljarða sem ríkið hafi lagt sjóðnum til frá efnahagshruninu. „Ef við göngum frá frumvörpun- um á þennan hátt fara fjárveitingar í þennan litla banka því að nálgast kostnað við nýjan Landspítala,“ seg- ir Guðlaugur Þór en stefnt er að því að fjárlagafrumvarpið komi inn til 2. umræðu næstkomandi þriðjudag. Myndi efla félagslega kerfið ÍLS sinnir félagslegu hlutverki á fasteignamarkaði. Spurður hvort sameining við Landsbankann myndi grafa undan þessu hlutverki sjóðsins segir Guðlaugur Þór að þvert á móti myndi hagræðingin sem af þessu hlytist gera ríkið betur í stakk búið til að sinna þessu hlutverki og þeir fjármunir sem nú eiga að fara í sjóð- inn nýtist í annað, m.a. aðstoð við að hjálpa fólki við eignast húsnæði.  Formaður fjárlaganefndar segir nefndina meta kosti sameiningar Íbúðalánasjóðs við Landsbankann  Þingmaður segir ÍLS „holræsi fyrir skattfé“  Aukafjárveitingar ríkisins til ÍLS nálgist 50 milljarða Skoða að renna ÍLS í Landsbanka Vigdís Hauksdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013 Leikföng Barnaherbergið olatagardur.is / Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin við Faxafen) / Sími: 511 3060 Opið: mán.–fös. 11.00–18.00 og laugardaga 11.00–16.00 Skapandi jól í Ólátagarði Föndur Púsl PIPA R \TBW A • SÍA • 133324 Spil Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Stækkunarskrifstofa ESB hefur tek- ið einhliða ákvörðun og án fyrirvara um að hætta öllum svokölluðum IPA-verkefnum sem hafin voru hér á landi í tengslum við umsóknina um inngöngu í sambandið. Fram kemur í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að fram- kvæmdastjórn ESB ætli að segja upp samningum í þeim efnum með tveggja mánaða fyrirvara og að bréf þess efnis verði send út næstu daga. „Í erindi sínu til íslenskra stjórn- valda vísar framkvæmdastjórnin til þess að IPA-aðstoð við Ísland hafi verið ætlað að styðja við verkefni sem ráðast þyrfti í vegna áforma um aðild að ESB. Í ljósi breyttrar stefnu stjórn- valda, telji hún ekki vera forsendur fyrir frekari styrkveitingum. Ríkis- stjórnin hefur frá upphafi lýst vilja til þess að þau verkefni sem hafin eru verði leidd til lykta samkvæmt gerðum samningum. Um það virtist ríkja samstaða,“ segir þar einnig. Fóru yfir verkefnin í sumar Þá segir að í samræmi við niður- stöðu fundar stækkunarstjóra ESB og Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í júní sl. hafi fulltrúar framkvæmdastjórnarinnar og stjórnvalda í sumar og haust farið ofan í saumana á hverju verkefni fyr- ir sig. Fyrir liggi að styrkþegar hafi í öllum tilvikum staðið við gerða samninga og að mati eftirlitsmanna framkvæmdastjórnarinnar uppfyllt kröfur um framvindu verkefnanna. Í tilkynningunni segir að ákvörð- unin komi „Íslendingum í opna skjöldu“. Framkvæmdastjórnin hafi á fyrri stigum enda ítrekað „gefið til kynna að öllum IPA-verkefnum sem hafin væru yrði lokið án tillits til mögulegrar aðildar. Íslenskir og er- lendir samstarfsaðilar hafa því hald- ið áfram að vinna að verkefnum í góðri trú um að ESB myndi standa við fyrri ákvarðanir og yfirlýsingar.“ ESB hættir svonefndum IPA-verkefnum á Íslandi  Stækkunarskrifstofa Evrópusambandsins segir upp samningum Hiti var í fundargestum á vel sóttum borgarafundi í Hafnarfirði í gær um bága fjárhagslega stöðu framhaldsskól- anna í bænum. Það voru kennarar og nemendur í Flensborg og Iðnskólanum ásamt foreldrum og Hafnarfjarðarbæ sem boðuðu til fundarins. „Þrátt fyrir að fundurinn hafi kannski ekki gert kraftaverk þá létum við heyra í okkur, létum vita að okkur er ekki sama og við erum mjög ánægð með það,“ sagði Alda Áskelsdóttir, einn skipuleggjenda, að fundinum loknum í gærkvöldi. Illugi Gunnarsson, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, flutti erindi á fund- inum og svaraði spurningum úr sal. „Það sem við fengum frá menntamála- ráðherra var það, að hann veit að skól- arnir eiga við rekstrarvanda að stríða og hann veit að það er of lítill pen- ingur í menntakerfinu. Þegar fjárlögin verða orðin hallalaus ætlar hann að bæta peningum í framhaldsskólakerf- ið,“ segir Alda. Að sögn hennar kom einnig fólk frá öðrum skólum en Flens- borg og Iðnskólanum á fundinn og skipuleggjendur vonist til að fleiri fundir verði haldnir og fleiri láti heyra í sér. „Létum vita að okkur er ekki sama“ Morgunblaðið/Golli Vel sóttur Margt var um manninn á borgarafundi sem haldinn var í Flensborgarskóla í gær um rekstrarvanda framhaldsskóla í Hafnarfirði. Bág fjárhagsleg staða framhaldsskóla í Hafnarfirði rædd á fjölmennum hitafundi í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.