Morgunblaðið - 04.12.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.12.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013 Ég byrja daginn á sundferð í Sundhöllinni í Hafnarfirði oghlusta á samfélagslegar staðreyndir í heita pottinum. Þegarheim er komið fer ég að setja upp hangikjötið en það var alltaf gert á æskuheimili mínu á afmælisdaginn. Ég reyni að halda í þá hefð og hlakka alltaf jafn mikið til,“ segir Kári Valvesson sem er 70 ára í dag. Hann ólst upp á Árskógssandi í Eyjafirði en er búsettur í Hafnarfirði. Kári er nýkominn heim úr afmælisferð til London en hann fór ásamt tengdasonum og einum afastrák sínum að sjá leik Tottenham og Manchester United. Þó hann styðji United þá langaði hann ekki síður að sjá FH-inginn Gylfa Þór Sigurðsson spila en hann leikur með Tottenham. Um helgina verður áfram haldið upp á árin 70. Þá bregður fjöl- skyldan sér út fyrir bæinn og heldur upp á afmælið. „Maður verður ekki sjötugur nema einu sinni,“ segir Kári og hlær. Hann á fjórar dætur með eiginkonu sinni Sigurborgu Kristinsdóttur ljósmóður og eru barnabörnin átta talsins og eitt langafabarn. Ekki er hægt að segja annað en að Kári njóti lífsins en hann er nýsestur í helgan stein. Hann var annar eigandi Gáru ehf. skipamiðlunar og seldi hlut sinn á þessu ári. „Ég bý á Norðurbakkanum í Hafnarfirði í góðu um- hverfi, hef glæsilegt útsýni yfir höfnina, skipin og sjóinn. Það er ekki hægt að hafa það betra.“ thorunn@mbl.is Kári Valvesson er 70 ára í dag Ljósmynd/Hörður Sveinsson Ættbogi Kári ásamt eiginkonu sinni Sigurborgu Kristinsdóttur og öllum barnbörnum og einu langafabarni sem eru alls níu talsins. Setur upp hangi- kjöt á afmælinu Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hafnarfjörður Anika Rut fæddist 6. janúar kl. 19.09. Hún vó 3.660 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Hel- ena Rut Þórsdóttir og Stefán Óskar Gíslason. Nýir borgarar Ólafsfjörður París Anna fæddist 29. mars kl. 10.26. Hún vó 3.710 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Kar- ítas Ósk Ársælsdóttir og Hilmir Gunnar Ólason. I nga Birna fæddist á Selfossi 4.12. 1983 og ólst þar upp. Hún var í Sandvíkurskóla og Sólvallaskóla á Selfossi, stundaði nám við Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Selfossi og lauk þaðan stúdentsprófum 2004. Þá stundaði hún nám við Tónlistar- skóla Árnesinga á Selfossi og lærði þar á þverflautu 1992-99. Að loknum stúdentsprófum tók Inga Birna sér árs frí frá námi og starfaði þá m.a. hjá 66° Norður en hóf síðan nám við KHÍ og lauk það- an BA-prófi í tómstunda- og félags- málafræði árið 2009. Inga Birna starfaði hjá 66° Norð- ur með náminu til 2006, flutti þá aft- ur til Selfoss, starfaði við fé- lagsmiðstöð á Selfossi og síðan við minjagripaverslunina við Geysi í Haukadal 2006-2008. Þá hóf hún starf við leikskólann Hulduheima á Selfossi og hefur starfað þar síðan. Inga Birna æfði frjálsar íþróttir með UMF Selfossi og keppti á ýms- um frjálsíþróttamótum 1992-99. Hún gekk í unglingadeild Björg- unarfélags Árborgar 1998, starfaði þar í unglingadeildinni í tvö ár við margs konar verkefni, þjálfun, æf- ingar, námskeiðaþátttöku og fund- arhöld, varð síðan fullgildur með- Inga Birna Pálsdóttir, formaður Björgunarfélags Árborgar – 30 ára Litla björgunarsveitin Viðar sem er sjúkraflutninga- og slökkviliðsmaður, Eydís Lilja, Inga Birna og Kári Snær. Björgunarfjölskyldan Úti að borða Inga Birna og Viðar slappa af á veitingastað eftir eril dagsins. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR Keðjurnar eru til á allar gerðir vinnuvéla, vöru- og flutningabifreiða, dráttarvéla og lyftara FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur Keðjurnar eru til í mörgum gerðum og í öllum mögulegum stærðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.