Morgunblaðið - 16.12.2013, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2013
F
A
S
TU
S
_E
_0
4.
01
.1
3
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Verslun opin mán-fös 8.30 -17.00
Hágæða stálpottar og pönnur fyrir þá sem eru metnaðarfullir í eldhúsinu.
Má nota á allar gerðir af hellum, þ.m.t. spanhellur.
Mikið úrval af öllum stærðum og gerðum.
Potturinn og pannan
í góðu eldhúsi
Veit á vandaða lausn
Meðlimir Xhosa-ættbálksins dönsuðu hefðbundinn út-
farardans á meðan kista Nelsons Mandela var borin til
grafar í heimaþorpi hans í Qunu í gær. Fyrr um daginn
var opinber jarðarfararathöfn og sóttu hana mörg
fyrirmenni og þjóðhöfðingjar. Að henni lokinni var
einkaútför þar sem nánustu ættingjar kvöddu Mandela.
AFP
Mandela borinn til hinstu hvílu
Mótmælin í Úkraínu héldu áfram
um helgina, en um 200.000 manns
komu saman í miðborg Kænugarðs,
höfuðborgar landsins, í gær. Mark-
mið mótmælenda var að fá Viktor
Janúkovíts, forseta landsins, til þess
að leysa ríkisstjórn sína frá störfum
og boða til kosninga. Mótmælin hafa
nú staðið í þrjár vikur.
Bandaríski öldungadeildar-
þingmaðurinn John McCain ávarp-
aði mótmælendur í gær og sagði að
Bandaríkjamenn styddu Úkraínu.
„Úkraína mun gera Evrópu betri
líkt og Evrópa Úkraínu,“ sagði
McCain.
Stefan Füle, stækkunarstjóri
Evrópusambandsins, tilkynnti í gær
að hlé yrði gert á undirbúningi sam-
bandsins fyrir nýjan viðskiptasamn-
ing við Úkraínu þar til ljóst væri að
skýr vilji væri til þess hjá stjórn-
völdum að undirrita hann.
sgs@mbl.is
ESB gerir
hlé á und-
irbúningi
McCain ávarpaði
mótmælendur
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Flokksmenn þýska Sósíaldemókrataflokksins
(SPD) samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta
um helgina að gengið yrði til stjórnarsamstarfs við
kristilega demókrata, flokk Angelu Merkel kansl-
ara. Um 76% þeirra sem tóku þátt í póstkosning-
unni léðu stjórnarsamstarfinu atkvæði sitt. Þykja
úrslitin vera sigur fyrir Sigmar Gabriel, formann
SPD, sem átti frumkvæðið að því að stjórnarsátt-
málinn yrði lagður í dóm flokksmanna.
Ráðherraefni sósíaldemókrata voru samþykkt í
gær af framkvæmdastjórn flokksins, en flokkur-
inn fær sex ráðherra af sextán í nýju ríkisstjórn-
inni. Gabriel mun verða efnahags- og orkumála-
ráðherra, auk þess sem hann mun gegna embætti
varakanslara. Þá ber það til tíðinda að
Frank-Walter Steinmeier verður aftur utanríkis-
ráðherra Þýskalands, en hann gegndi því embætti
frá 2005-2009, þegar SPD sat í ríkisstjórn með
kristilegum demókrötum. Steinmeier leiddi flokk-
inn í kosningunum 2009 en galt þá afhroð og var
talið að hann ætti ekki afturkvæmt í fremstu röð.
Merkel til Parísar á miðvikudag
Ríkisstjórnin nýja mun taka til starfa á morgun,
þegar þing kemur saman og kýs sér nýjan kansl-
ara. Gert er ráð fyrir að Angela Merkel verði þá
endurkjörin. Fyrsta opinbera utanlandsferð henn-
ar eftir að hún tekur á ný við embætti kanslara
verður til Parísar, þar sem hún mun ræða við
Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakka.
Fundurinn verður haldinn í aðdraganda leiðtoga-
fundar Evrópusambandsins í Brussel, þar sem
ræða á varnarmálastefnu sambandsins.
Nýtt stjórnarsamstarf samþykkt
Steinmeier verður aftur utanríkisráðherra Úrslitin sigur fyrir formann SPD
EPA
Á leið í ríkisstjórn Ráðherraefni Sósíal-
demókrataflokksins voru kynnt í gær.
Þjóðþing Jemens samþykkti lög í
gær þar sem bannað var að gera
árásir á skotmörk í landinu með
mannlausum flugvélum eða drón-
um. Samþykkt laganna kom til eftir
að slík vél lenti á bílalest á leið úr
brúðkaupi og felldi þar 17 manns,
allt almenna borgara. Sögðu þing-
menn að vernda þyrfti ríkisborgara
Jemen og tryggja yfirráð yfir loft-
helgi landsins.
Bandaríski herinn hefur átt í
samvinnu við yfirvöld í Jemen í bar-
áttu þeirra við Al-Kaída hryðju-
verkasamtökin. Hafa árásir dróna
aukist að undanförnu og hefur
fjöldi vígamanna fallið í þeim.
Þingið bannar árásir
mannlausra flugvéla
JEMEN
Bresk-írski leik-
arinn Peter
O’Toole lést á
laugardaginn, 81
árs að aldri.
O’Toole skaut upp
á stjörnuhimininn
þegar hann lék
Arabíu-Lárens í
samnefndri mynd
Davids Lean árið
1962. O’Toole var tilnefndur átta
sinnum til Óskarsverðlauna fyrir
besta leik í aðalhlutverki, en vann
þau aldrei. Hann fékk hins vegar
heiðurs-Óskar árið 2003.
Peter O’Toole látinn,
81 árs að aldri
Peter O’Toole
BRETLAND
Javad Zarif, utanríkisráðherra Ír-
ans, segir hvarf Roberts Levinson
vera ráðgátu. „Það sem við vitum
er að hann er ekki í haldi í Íran,“
sagði Zarif í viðtali við bandaríska
fréttaskýringaþáttinn „Face the
Nation.“ Zarif bætti við að ef Levin-
son væri í Íran væri hann ekki í
haldi stjórnvalda. Levinson hvarf
árið 2007 á Kish-eyju í Persaflóa.
Levinson var fyrrverandi starfs-
maður FBI sem stundaði njósnir
fyrir CIA.
Levinson ekki í haldi
íranskra stjórnvalda
ÍRAN