Morgunblaðið - 16.12.2013, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 16.12.2013, Qupperneq 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2013 Rithöfundurinn og frétta-konan Edda Andr-ésdóttir hefur djúpatengingu við Vest- mannaeyjar. Þaðan er fólkið hennar og sjálf var hún þar á sumrin sem barn. Svo sérstaklega vill til að þegar gosið hófst í byrjun árs 1973 var Edda send með fyrsta flugi til Eyja en hún var þá nýbyrjuð sem blaða- maður hjá Vísi. Í bók sinni Til Eyja lýsir hún á afar persónulegan hátt æskuminn- ingunum úr Eyj- um og þeirri upp- lifun að sjá æskustöðvarnar verða að eld- stöðvum. Edda sýnir hversu vel má færa sögu í orð á okkar ylhýra og ástkæra tungumáli og á hún sannarlega hrós skilið fyr- ir það. Það er dýrmætt að geta lesið um upplifun fréttakonunnar Eddu af gosinu og það hvernig fólkið í Eyj- um tók tíðindunum. Sumir afneit- uðu því að slíkt gæti raunverulega gerst og héldu áfram að hella upp á kaffi. Í huga sumra var óraunveru- legt að slíkt ögrandi afl gæti rutt sér upp á yfirborð jarðar og það á agnarsmárri eyju. Eldfjall sem sofið hafði værum svefni í fimm þúsund ár ætti ekkert með það að fara að gjósa fyrirvaralaust. Edda lýsir því vel hvernig and- rúmsloftið var á ritstjórn Vísis á þessum árum og hversu dásamlegt hafi verið að fá draumastarfið. Bókin veitir les- endum býsna góða innsýn inn í blaða- og frétta- mennsku sem er ekki svo algengt í íslenskum bókum. Edda varpar góðu ljósi á tíðar- andann og segir til dæmis frá því að enn hafi verið til mjólkurbúðir í Reykjavík á þessum árum. Daginn áður en hún beið á Reykjavíkur- flugvelli ásamt ljósmyndara Vísis eftir vélinni til Eyja hafði Vísir ein- mitt greint frá því að brotist hefði verið inn í mjólkurbúð og að hár- skerum fækkaði á landinu vegna „loðnu tískunnar“. Einn rakari hafði meira að segja á orði að ekki liði á löngu þar til fáeinir hárskerar yrðu eftir, allir háaldraðir, og þeir myndu fljótlega safnast til feðra sinna og þar með væri úti um rak- arastofurnar. Af þessu höfðu menn nú áhyggj- ur daginn fyrir gosið en svo breytt- ist allt. Til Eyja er einstaklega vönduð frásögn sem óhætt er að mæla með. Edda er hógvær en lúmskur húm- oristi og ekki er verra að fá að skella aðeins upp úr við lestur svo merkilegrar sögu. Þegar Helgafell rumskaði Endurminningar Til Eyja bbbbn Eftir Eddu Andrésdóttur. JPV útgáfa, 213. 224. bls. MALÍN BRAND BÆKUR Edda Andrésdóttir Gamanleikarinn Ed Helms mun bregða sér í hlutverk lögreglu- mannsins Franks Drebins í nýrri Naked Gun-kvikmynd og feta þar með í fótspor Leslies Nielsens heitins. Naked Gun-gamanmynd- irnar urðu þrjár og var titill þeirr- ar fyrstu þýddur með eft- irminnilegum hætti hér á landi á sínum tíma: Beint á ská. Nielsen lést árið 2010 og þótti þá heldur ólíklegt að myndirnar yrðu fleiri. Kvikmyndaritið Variety greinir nú frá því að Helms, sem m.a. hefur leikið í gamanþáttunum The Office og Hangover-myndunum þremur, ætli að leika hinn vitgranna lög- reglumann og að tökur á fjórðu Naked Gun-myndinni hefjist á næsta ári. Drebin kom fyrst fram á sjónarsviðið í gamanþáttunum Police Squad! árið 1982 og var kvikmyndin Naked Gun frá árinu 1988 byggð á þeim. Litríkur Ed Helms í kvikmyndinni The Hangover. Beint á ská á ný með Ed Helms KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM ÁTOPPNUM Í ÁR KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA FROZENENSTAL2D KL.5:40-8-10:20 FROSINN ÍSLTAL2D KL.5:40-6 FROSINN ÍSLTAL3D KL.6 HOMEFRONT KL.5:40-8:20-10:40 HOMEFRONTVIP KL.5:40-8-10:20 MACHETEKILLS KL.8-10:20 DELIVERYMAN KL.8:20-10:40 THOR-DARKWORLD3DKL.8 ESCAPEPLAN KL.10:40 KRINGLUNNI HOMEFRONT KL.8-10:20 FROZEN ENSTAL2D KL. 8 FROSINN ÍSLTAL2D KL. 5:40 FROSINN ÍSLTAL3D KL. 5:40 MACHETE KILLS KL. 10:20 DELIVERYMAN KL. 5:40 - 8 THOR - DARKWORLD 2D KL. 10:20 FROSINN ÍSLTAL3D KL. 3:20 - 5:40 FROSINN ÍSLTAL2D KL. 3:20 HOMEFRONT KL. 3:20 - 5:45 - 8 - 10:15 DELIVERYMAN KL. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 ENDER’S GAME KL. 5:30 ESCAPE PLAN KL. 8 - 10:30 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK FROZEN ENSTAL2D KL.8 HOMEFRONT KL.8-10:20 HUNGERGAMES:CATCHINGFIRE KL.10:20 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á AKUREYRI FROZEN ENSTAL2D KL. 5:40 - 8 FROSINN ÍSLTAL3D KL. 5:40 HOMEFRONT KL. 8 - 10:20 MACHETE KILLS KL. 10:20 EMPIRE  TOTAL FILM  VAR BARA BYRJUNIN CHRIS HEMSWORTH TOM HIDDLESTON FRÁBÆR GAMANMYND VARIETY  FAÐIR 533 BARNA.BARA VESEN! GRJÓTHÖRÐ SPENNUMYNDMEÐ JASON STATHAM JÓLAMYNDIN Í ÁR FRÁ ÞEIM SÖMUOG FÆRÐUOKKUR TANGLED OGWRECK-IT RALPH “BESTA TEIKNIMYNDDISNEY SÍÐAN LION KING“ SÝND Í 2D OG 3DMEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI USA TODAY  LOS ANGELES TIMES  “STATHAMDOESN’T DISAPPOINT“ THE PLAYLIST  S.B. Fréttablaðið ★★★★★ T.V. Bíóvefurinn/Vikan „ÞAÐ BESTA SEM HEFUR KOMIÐ FRÁ HOLLYWOOD Í LANGAN TÍMA“ S.B. Fréttablaðið 12 L L L -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar FROSINN 3D Sýnd kl. 5:30 FROSINN 2D Sýnd kl. 6 HUNGER GAMES 2 Sýnd kl. 8 - 9 - 10 FURÐUFUGLAR 2D Sýnd kl. 6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.