Morgunblaðið - 16.12.2013, Page 29
lengst af sjómennsku og fisk-
vinnslu.
Elías átti báta og gerði út á ár-
unum 1948-2010. Hann festi kaup
á eins og hálfs tonna trillu, Von-
inni, 1948, gerði út trilluna Sæ-
björn frá 1956, keypti fimm tonna
bát sem einnig hét Sæbjörn, 1969,
og keypti 12 tonna bát 1977 sem
varð þriðji Sæbjörninn og gerði
hann út allan ársins hring til 2003.
Þá átti hann bátana Glað 1984-88,
Nönnu 1997-2000 og Nönnu II,
1999-2010, en seldi hann þá sonum
sínum.
Elías vann við skipaskoðun í
nokkur ár og var lengi verkstjóri í
rækjuvinnslunni hjá Íshúsfélaginu
í Bolungarvík til ársins 1977.
Skemmtir eldri borgurum
Elías söng með Karlakórnum
Örnum á Ísafirði um árabil. Auk
þess tók hann oft lagið opin-
berlega með öðrum sjómönnum í
Bolungarvík á sjómannadaginn.
Hann var kjörinn í ferðanefnd Fé-
lags eldri borgara í Bolungarvík
og hóf þá að skemmta á ferðalög-
um félagsins með gamanmálum og
söng. Undirtektirnar urðu afar
góðar og hefur Elías oft haldið
uppi fjörinu á samkomum eldri
borgara síðan.
Elías hefur farið til Kanaríeyja
á hverjum vetri upp úr áramótum
sl. áratug. Þar hefur hann sungið
við undirleik Örvars Kristjánsson
og skemmt með gamanmálum,
meira og minna á hverjum vetri
sl. 10 ár.
Fjölskylda
Elías kvæntist 26.12. 1950 Hall-
dóru Jónsdóttur, f. 25.6. 1930, d.
19.10. 1965, húsfreyju. Hún var
dóttir Jóns Guðna Kristjáns Jóns-
sonar og Halldóru Kristjánsdóttur
sem stunduðu búskap í Álftafirði.
Börn Elíasar og Halldóru: Jón
Elíasson, f. 27.10. 1950, sjómaður í
Bolungarvík og á hann einn son;
Guðlaug Elíasdóttir, f. 31.1. 1952,
d. 3.7. 1954; Dóra María Elíasdótt-
ir, f. 30.10. 1953, hárgreiðslukona
og starfar við heimilishjálp í Bol-
ungarvík en maður hennar er
Oddbjörn Stefánsson og á hún
þrjá syni; Guðlaug Elíasdóttir, f.
1.12. 1954, bókari í Bolungarvík,
gift Sigurgeiri Jóhannssyni, bónda
og verktaka, og eiga þau fjögur
börn; Ketill Elíasson, f. 3.2. 1956,
útgerðarmaður og bæjarfulltrúi í
Bolungarvík, en kona hans er
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir og
á hann tvö börn; Elías Þór Elías-
son, f. 8.10. 1961, bílasmiður í
Fellabæ, búsettur á Egilsstöðum
en kona hans er Guðný Birgis-
dóttir og á hann þrjú börn; Ásgeir
Elíasson, f. 19.6. 1963, starfs-
maður við skíðaaðstöðu í Bláfjöll-
um, búsettur í Kópavogi og á hann
tvö börn en kona hans er Bryndís
Baldursdóttir tölvufræðingur og á
hún einn son; Bára, Elíasdóttir f.
30.5. 1965, kennari í Reykjavík en
maður hennar er Óskar Ármanns-
son tölvufræðingur og eiga þau
þrjú börn.
Systkini Elíasar: Elín Ketils-
dóttir, f. 4.8. 1912, d. 14.8. 1920;
Sumarlína Ketilsdóttir, f. 31.7.
1914, d. 21.7. 1944, húsfreyja á
Akureyri; Þórunn Ketilsdóttir, f.
5.10. 1916, d. 10.2. 1962, húsfreyja
í Bolungarvík og í Hafnarfirði;
Magnús Ágúst Ketilsson, f. 15.8.
1918, d. 15.2. 1983, síðast vinnu-
maður í Eyjafirði; Lovísa Ketils-
dóttir, f. 20.8. 1921, húsfreyja í
Svíþjóð; Friðrik Guðmundur Ket-
ilsson, f. 21.6. 1923, d. 7.9. 2008,
húsasmíðameistari og safnari á
Akureyri; Karl Ketilsson, f. 3.6.
1925, dó í frumbernsku; Vil-
hjálmur Ketilsson, f. 16.3. 1926, d.
1939; Skúli Ketilsson, f. 5.11. 1930,
húsasmiður á Akranesi; Lilja F.
Ketilsdóttir, f. 21.4. 1932, hús-
freyja í Bolungarvík; Guðlaugur
K. Ketilsson, f. 24.10. 1934, bif-
vélavirki á Akranesi, og Sigríður
H. Ketilsdóttir, f. 29.6. 1936, hús-
freyja á Akranesi.
Foreldrar Elíasar voru Ketill
Magnússon, f. 16.8. 1885, d. 26.1.
1962, húsasmiður og sjómaður að
Jaðri í Bolungarvík, og k.h., Guð-
laug Jónsdóttir, f. 26.7. 1894, d.
11.7. 1988, húsfreyja.
Úr frændgarði Elíasar Ketilssonar
Elías
Ketilsson
Rannveig Eiríksdóttir
vinnukona á Hrafnseyri
og víðar
Þorsteinn Hallgrímsson
b. á Búrfelli í Miðfirði
Sigríður Þorsteinsdóttir
vinnukona
Jón Guðmundur Sigurðss.
b. á Breiðabóli í Skálavík
Guðlaug Jónsdóttir
húsfr. á Jaðri
Kristbjörg Friðriksdóttir
húsfr. á Hofsstöðum
í Reykhólasveit
Sigurður Þorsteinsson
hreppstj. á Bæjum
Sigríður Magnúsdóttir
húsfr. á Meiribakka
Jón Einarsson
b. á Meiribakka í Bolungarvík
Elín Jónsdóttir
húsfr. í Meirihlíð
Magnús Jónsson
b. í Meirihlíð í Bolungarvík
Ketill Magnússon
sjóm. og smiður á
Jaðri í Bolungarvík
Þóra Árnadóttir
húsfr. á Hóli í Bolungarvík
Jón Guðmundsson
hreppstj. á Hóli í Bolungarvík
ÍSLENDINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2013
Geir fæddist í Reykjavík 16.12.1925, sonur Hallgríms Bene-diktssonar, alþm. og stór-
kaupmanns, og k.h., Áslaugar Geirs-
dóttur Zoëga. Hallgrímur var af
Reykjahlíðarætt en Áslaug var dóttir
Geirs Zoëga rektors. Eftirlifandi eig-
inkona Geirs er Erna Finnsdóttir og
eru börn þeirra fjögur.
Geir lauk stúdentsprófi frá MR
1944, embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1948 og stundaði framhaldsnám í lög-
fræði og hagfræði við Harvard.
Geir var framtakssamur og vinsæll
borgarstjóri, 1959-72, sem hélt meiri-
hluta sjálfstæðismanna í borginni í
þrennum kosningum. Hann leiddi
Sjálfstæðisflokkinn í alþingiskosning-
unum 1974 er flokkurinn vann einn
sinn stærsta sigur og fékk 42,7%
fylgi. Hann var forsætisráðherra er
landhelgin var færð út í 200 mílur
1975 og náði fullnaðarsigri í fisk-
veiðideilum við Breta 1976. Auk þess
náði ríkisstjórn hans góðum árangri í
efnhagsmálum 1974-77.
En „sólstöðusamningar“ vinnu-
markaðarins, sumarið 1977, eyddu
þessum árangri, ríkisstjórnin greip til
óvinsælla efnahagsaðgerða, stjórnin
féll og flokkar hennar töpuðu miklu
fylgi 1978. Við tók ný vinstri stjórn
sem sprakk eftir eitt ár og síðan löng
stjórnarkreppa sem lauk með því að
varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
Gunnar Thoroddsen, myndaði ríkis-
stjórn með Framsókn, Alþýðu-
bandalagi og nokkrum sjálfstæð-
ismönnum í óþökk formannsins.
Í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík, 1982, beið Geir síðan ósig-
ur fyrir „Hulduher“ Alberts Guð-
mundssonar, lenti í 7. sæti listans,
datt út af þingi og sagði af sér for-
mennsku tæpu ári síðar. Hann var ut-
anríkisráðherra 1983-86 og síðan
seðlabankastjóri frá 1986.
Geir var einn merkasti stjórn-
málamaður síðustu aldar, vel mennt-
aður og heiðarlegur hugsjónamaður,
staðfastur en sanngjarn, vandvirkur,
iðinn, óeigingjarn og umtalsfrómur.
Hans pólitíska mótlæti dró fram með
skýrum hætti marga þessa mann-
kosti hans, en jafnframt lýðskrum og
lesti ýmissa annarra.
Geir lést 1.9. 1990.
Merkir Íslendingar
Geir Hallgrímsson
90 ára
Rögnvaldur Gíslason
85 ára
Aðalbjörg
Skarphéðinsdóttir
Dóra Laufey Sigurðardóttir
Elías Ketilsson
Margeir Ingólfsson
80 ára
Hanna Kjeld
Sigríður Benny Jónasdóttir
Þorsteinn Þorsteinsson
75 ára
Alla Berta Albertsdóttir
Fríða Jóhannesdóttir
70 ára
Fanney Anna
Reinhardsdóttir
Gunnlaugur Geir
Guðbjörnsson
Þorlákur Jóhannsson
60 ára
Atli Gunnarsson
Guðrún Kristín Ívarsdóttir
Hermann Benediktsson
Ingibjörg O. Sigurðardóttir
Oddný Steinunn
Sigurðardóttir
Sigurður Gunnar
Magnússon
Sveinn Hall Másson
50 ára
Agnar Jón Ágústsson
Eusebio Rodrigues Costa
Hans Bjarni Sigurbjörnsson
Kristján Ásmundsson
Oddur Helgi Bragason
Ragnhildur Skúladóttir
Viðar Freyr Viðarsson
40 ára
Agla Þyri Kristjánsdóttir
Aneta Wioletta Skrzypczyk
Auðunn Snævar Ólafsson
Berglind Helga
Þorsteinsdóttir
Douglas Arthur Place
Heiðrún Svanhvít Níelsdóttir
Helga Hrönn Þorbjörnsdóttir
Ingibjörg Kristín Eiríksdóttir
Leiknir Ágústsson
Rosemary Lilja
Ríkharðsdóttir
Silja Ágústsdóttir
Silja Dögg Gunnarsdóttir
Svavar Sigurður Guðfinnsson
Trausti Kristinsson
30 ára
Anna Borg Elsudóttir
Antra Krumina
Eva Björg Harðardóttir
Guðbjörg Sigurðardóttir
Guðrún Lilja
Guðmundsdóttir
Júlíus Karlsson
Kristín Sigurðardóttir
Laura Rimkute
Lilja Gunnlaugsdóttir
Martha Hermannsdóttir
Sara Sigríður Ragnarsdóttir
Sigurður Jens Sigurðsson
Tomasz Piotr Kosniowski
Úlfur Arnar Jökulsson
Til hamingju með daginn
30 ára Valý ólst upp í
Reykjavík, er búsett í
Tókýó og er að ljúka
háskólanámi í japönskum
fræðum.
Maki: Ingimar Hólm Guð-
mundsson, f. 1980, forrit-
ari í gervigreind.
Foreldrar: Elsa Guð-
mundsdóttir, f. 1951,
starfsmaður við Lands-
bankann, og Þórsteinn
Ragnarsson, f. 1951, for-
stjóri Kirkjugarða Reykja-
víkurprófastsdæma.
Valý Ágústa
Þórsteinsdóttir
30 ára Rósa Björk ólst
upp á Akureyri, er þar bú-
sett og er verkstjóri á PBI
á Akureyri.
Maki: Jón Gunnlaugur
Stefánsson, f. 1981,
starfsmaður hjá Toyota á
Akureyri.
Börn: Daníel Freyr Jóns-
son, f. 2004, og Alex-
andra Ýr Jónsdóttir, f.
2009.
Foreldrar: Laufey Krist-
jánsdóttir, f. 1962, og
Jósep Hallsson, f. 1952.
Rósa Björk
Jósepsdóttir
30 ára Salbjörg ólst upp í
Hafnarfirði, lauk prófum
frá Nýja tölvu- og við-
skiptaskólanum og starf-
ar hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar.
Maki: Guðjón Frímann
Þórunnarson, f. 1981, sjó-
maður.
Börn: Emilía Rós, f. 2003,
og Gabríel Orri, f. 2009.
Foreldrar: Ágústa Sigríð-
ur Karlsdóttir, f. 1957, og
Jón Guðmundsson, f.
1950.
Salbjörg
Jónsdóttir
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR
Keðjurnar eru til á allar gerðir vinnuvéla, vöru-
og flutningabifreiða, dráttarvéla og lyftara
FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR
Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar
Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur
Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur
Keðjurnar eru til í
mörgum gerðum og
í öllum mögulegum
stærðum