Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 1
Búast má við að jólaverslun nái hámarki um helgina
enda fjórir dagar til jóla. Þessar snótir höfðu nælt sér í
eitthvert góss til að gleðja náungann. Langtímaveður-
spá yfir hátíðisdagana gerir ráð fyrir hvassviðri.
Gengið um bæinn í leit að jólagjöfum
Morgunblaðið/Kristinn
Jólaverslun landsmanna nær hámarki um helgina
F Ö S T U D A G U R 2 0. D E S E M B E R 2 0 1 3
296. tölublað 101. árgangur
SAGA HJÓNA
SEM FÓRUST
MEÐ GOÐAFOSSI
STEMNING
Í FUGLA-
TALNINGU
FJALLALAND
HLÝTUR
FUGLAÁHUGAFÓLK 10 RAGNAR AXELSSON 53SIGURÚN PÁLSDÓTTIR 52
ÁRA
STOFNAÐ
1913
dagar til jóla
4
Gluggagægir
kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
MIÐBORGIN OKKAR BÝÐUR ÞÉR HEIM
HÁTÍÐARDAGSKRÁ VÍÐA UM BORG ALLA HELGINA
Um 88 slös-
uðust, þar af
fjórir alvarlega,
þegar hluti af
þaki yfir Apollo-
leikhúsinu í
London hrundi.
Talsmaður
slökkviliðsins
sagði í gærkvöldi
að búið væri að
bjarga öllum út
sem voru í leikhúsinu.
Vitni segja að fólk sem kom út úr
leikhúsinu hafi verið blóðugt og
þakið ryki. Verið var að sýna leik-
ritið „Furðulegt háttalag hunds um
nótt“ þegar þakið hrundi. Björg-
unarmenn notuðu tveggja hæða
strætó til að flytja fólk á sjúkrahús.
Leikhúsið var byggt árið 1901 og
tekur 775 gesti í sæti.
88 slasaðir eftir að
leikhúsþak hrundi
London Frá slys-
stað í gærkvöldi.
Efnaiðnaður
» Framleiðendur nýju fíkni-
efnanna eru m.a. í Evrópu og
Kína.
» Í janúar í fyrra var talið að
700 vefsíður byðu fíkniefnin til
sölu í Evrópu.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Snemma á næsta ári munu tugir
nýrra efna bætast á lista yfir bönn-
uð fíkniefni á Íslandi. Þetta verður
gert með breytingu á reglugerð um
ávana- og fíkniefni og er tilgang-
urinn að bregðast við fjölgun nýrra
fíkniefna sem oftast eru afleiður af
eldri fíkniefnum, svokölluðum nps-
efnum (e. new psychoactive substan-
ces). Talið er að þessi efni, sem er
auðvelt að kaupa á netinu, hafi vald-
ið 52 dauðsföllum í Bretlandi í fyrra.
Enn sem komið er hafa þessi efni
lítið komið til kasta yfirvalda hér á
landi en tollstjóri hefur á þessu ári
lagt hald á ellefu póstsendingar frá
Evrópu og Bandaríkjunum sem
innihalda þessi efni, samtals 60
grömm.
Lista yfir bönnuð fíkniefni hér á
landi má annars vegar finna í lögum
um ávana- og fíkniefni og hins vegar
í reglugerð sem byggist á þessum
lögum. Ný efni er hvorki að finna í
lögunum né í reglugerðinni sem var
síðast breytt í júní 2012 og á und-
anförnum árum hefur fáum efnum
verið bætt á listann. Frá 2010 hafa
Bretar á hinn bóginn bætt 200 fíkni-
efnum á bannlista.
Tugir nýrra efna bannaðir
Bregðast við örri fjölgun nýrra fíkniefna sem oftast eru afleiður eldri efna
Tollverðir hafa lagt hald á ellefu sendingar á þessu ári Kaupa á netinu
MHundrað þúsund möguleikar »18
Frímerkjasafn-
arar eru nú sum-
ir hverjir einnig
byrjaðir að safna
sms-kóðum sem
skrifaðir eru ut-
an á umslög auk
hefðbundinna
frímerkja.
Þetta segir
Gísli Geir
Harðarson, for-
maður Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara. Tækniframfarir
hafa jafnframt gert söfnurum auð-
veldara fyrir að þefa uppi fágæta
muni, til dæmis í gegnum vefsíður
eins og uppboðsvefinn eBay. »16
Safna sms-kóðum
utan af umslögum
Á aldarafmæli
Morgunblaðsins
Stjórn Lands-
sambands kúa-
bænda hefur
ákveðið að semja
við norsku dýra-
læknastofnunina
um að vinna
áhættumat vegna
innflutnings á
holdanautasæði
frá Noregi til Íslands. Bændur hafa
áhyggjur af því að tapa markaði
vegna þess að framleiðslan dugar
ekki og stjórn LK telur nauðsynlegt
að endurnýja holdanautakynin til að
auka möguleika bænda til framtíðar.
Atvinnuvegaráðuneytið hefur ósk-
að eftir því að Matvælastofnun geri
áhættumat vegna innflutnings á
djúpfrystu sæði og fósturvísum frá
Noregi, annars vegar til notkunar
beint á búunum og hins vegar á ein-
angruðu ræktunarbúi. Matið á að
liggja fyrir ekki seinna en 1. febrúar
næstkomandi. Mat norsku dýra-
læknastofnunarinnar á að koma því
til viðbótar. »6
Tvöfalt
mat á
áhættu
Vilja nýtt blóð
í holdanautastofna