Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, kom færandi hendi á Alþingi í gær. Hann færði alþing- ismönnum marineraða síld, en mörg undanfarin ár hefur Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum gefið honum síld sem þeir vinna í takmörkuðum mæli. Árni sagði að Binni í Vinnslustöðinni (Sigurgeir B. Kristgeirsson) legði áherslu á að þeir gæfu Árna síldina, hann réði svo hvað hann gerði við hana, hvort hann gæfi hana og þá hverjum. Árni sendi alþingismönnum kveðju með tilkynningu um að jólasíldin væri komin frá Vestmannaeyjum. Þeir gætu sótt sér dós á tiltekinn stað. „Ég ákvað að hressa upp á mannskapinn í þinginu og hef mætt mörg undanfarin ár með síld fyrir jólin,“ sagði Árni. „Þetta er eðalsíld úr gull- kistu Íslands.“ Þegar Alþingi var frestað í mars sl. sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fráfarandi þingfor- seti, um Árna að hann hefði kryddað tilveruna á Alþingi og löngum farið sínar eigin leiðir og ekki ávallt troðnar slóðir. „Þetta er bara partur af kryddinu,“ sagði Árni og hló. „Menn héldu að ég væri ekki klár á vakt- inni lengur og voru farnir að sakna síldarinnar, en jólasveinninn úr Eyjum klikkar ekki!“ Auk þess að hafa fært þingmönnum jólasíld um árabil var það árviss viðburður í fjölda ára að Árni kæmi að vori með fulla olíufötu af svartfuglseggjum í kaffi- stofu Alþingis. Þau voru svo soðin fyrir þingheim. „Ég kom á öðrum sið í þinginu sem hefur tíðk- ast lengi,“ sagði Árni. „Ég mætti alltaf með tvo stóra konfektkassa, sem ég keypti sjálfur, í at- kvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið eftir 3. um- ræðu, lokaumræðuna. Þetta er löng atkvæða- greiðsla, 2-3 tímar. Konfektið gekk um salinn. Svo hringdi Pétur H. Blöndal alþingismaður um dag- inn og sagði að sér hefði verið falið að sjá um þetta sem ég kom á, að koma með konfekt,“ sagði Árni. Hann sagði að alþingismönnum veitti ekki af smáfjörefni og upplyftingu í þingönnunum fyrir jól. „Þeir eru eins og innikróuð dýr þegar álagið er mest,“ sagði Árni. Morgunblaðið/RAX Jólasíldin komin Árni Johnsen færði alþingismönnum svolítið fjörefni úr gullkistu hafsins fyrir jólin. Jón Gunnarsson kunni vel að meta gjöfina. „Þetta er bara partur af kryddinu“ UNDIR HRAUN holar@simnet.is Einstök frásögn Sigga á Háeyri af gosinu í Heimaey, flóttanum upp á fastalandið og öllu því sem á eftir fylgdi. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Kanínur voru til umræðu á fundi um- hverfis- og skipulagsráðs Reykjavík- urborgar á miðvikudaginn. Þar voru kynntar niðurstöður fundar Sam- taka sveitarfélaga höfuðborgarsvæð- inu (SSH) þar sem fjölgun kanína á höfuðborgarsvæðinu var rædd. „Við erum að fylgjast með stöð- unni,“ segir Páll Hjalti Hjaltason formaður umhverfis- og skipulags- ráðs spurður hvers vegna kanínu- kynningin hafi farið fram. „Kanín- urnar hafa verið á dagskrá SSH því þær virða að sjálfsögðu ekki mörk sveitarfélaganna. Þetta er eitthvað sem þarf að taka á í stærra samhengi á öllu höfuðborgarsvæðinu,“ segir Páll og bætir við að Reykjavíkurborg ætli að bíða áttekta, engar ákvarð- anir hafi verið teknar um að fara í að- gerðir. Bregðast við kvörtunum Snorri Sigurðsson, verkefnastjóri á skrifstofu náttúru og garða Reykjavíkurborgar, sá um kynn- inguna fyrir umhverfis- og skipu- lagsráð. „Fulltrúar umhverfissviða sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu hittust á fundi í lok nóvem- ber til að ræða málin og bera saman stöðuna. Aðalmarkmiðið með fund- inum var að reyna að kortleggja hversu mikil útbreiðsla kanínanna er og hvort hún hefur aukist,“ segir Snorri, kanínurnar séu mjög víða og ljóst að þeim hafi fjölgað þó engin formleg úttekt hafi farið fram á fjölda þeirra. Snorri segir að fulltrúar sveitarfé- laganna séu sammála um að það sé tilefni til að hafa áhyggjur af fjölgun kanína og að þær gætu orðið alvar- legt vandamál í framtíðinni. „Það voru samt engar ákvarðanir teknar um aðgerðir, en ályktað að skynsam- legt væri að íhuga staðbundnar fækkunaraðgerðir fljótlega.“ Kanínur eru friðaðar samkvæmt lögum en hægt er að fá undanþágu á því. „Reykjavíkurborg fékk leyfi í sumar til tveggja ára til að veiða þær. Það hefur eingöngu verið notað til að bregðast við einstökum kvörtunum og ekki verið farið út í veiðar með það að markmiði að fækka þeim,“ segir Snorri en aðeins örfáar kanínur voru felldar í sumar vegna kvartana. Kanínur í íslenskri náttúru eru að uppruna gæludýr sem hefur verið sleppt. Með nýju dýravelferðarlög- unum, sem taka gildi um áramótin, verður ólöglegt að skilja gæludýr eftir í náttúrunni. Kortleggja útbreiðslu kanínanna  Kanínukynning fór fram hjá umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar  Engar ákvarðanir teknar Morgunblaðið/Ómar Kanínur í Heiðmörk Þær fjölga sér hratt ef vel viðrar yfir vetrartímann. Báðir vinnings- hafarnir í lottó- inu á laugardag- inn hafa nú gefið sig fram og vitj- að 70 millj- ónanna sem þeir unnu. Potturinn var áttfaldur í fyrsta sinn í sögu lottósins. Seinni vinningshafinn reyndist vera atvinnulaus fjölskyldukona sem býr á höfuðborgarsvæðinu, að því er fram kemur á heimasíðu lott- ósins. Það var fyrir tilviljun að hún kom við á Stöðinni á Bústaðavegi, en hún var að verða bensínlaus. Af- greiðslumaðurinn bauð henni að kaupa lottómiða, sem hún þáði. 10 raða sjálfvalsseðil sem kostar 1.300 krónur. Hún skoðaði miðann ekki fyrr en eftir hádegið í gær eftir að hún hafði heyrt að annar miðinn hefði verið keyptur á þessari stöð. Þegar í ljós kom að þetta var vinningsmið- inn titraði konan og skalf, segir á heimasíðunni. „Hún setti miðann í veskið og skellti sér í sturtu og tók veskið með sér inn á baðherbergið því að allt í einu þorði hún ekki að líta af því, samt var hún búin að þvælast út um allt með 70 milljóna króna lottómiða í veskinu án þess að hún hefði hugmynd um það.“ Þorði ekki að líta af veskinu  Vinningshafarnir hafa gefið sig fram Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Pósthúsum á Þingeyri og Suð- ureyri verður brátt lokað en Póst og fjar- skiptastofnun birti í gær til- kynningu um að hafa veitt Ís- landspósti heim- ild þess efnis. Póstbílar eiga að koma í staðinn fyrir útibúin. Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði, gagnrýnir Íslandspóst fyrir að leggja starfsemina niður á stöð- unum án þess að hafa samráð við bæjaryfirvöld. „Við höfum reynslu af svona fyrirkomulagi þar sem pósthúsinu á Flateyri var lokað í fyrra. Það gengur ágætlega að af- henda pakka og póst sem keyrður er heim til fólks og fyrirtækja. En það er mjög erfitt fyrir íbúa að koma frá sér pakka. Þá þarf fólk að taka sér frí frá vinnu eða öðru til þess að koma pakkanum til skila. Nokkur óánægja hefur verið með þetta á Flateyri og við blasir að þetta er skerðing á búsetuskilyrð- um,“ segir Daníel. Óttast keðjuverkun Póstþjónustan á Suðureyri hefur til þessa verið rekin í samstarfi við Sparisjóð Bolungarvíkur en póst- þjónustan á Þingeyri hefur verið rekin í samstarfi við Landsbankann. „Við erum ósátt við það að opinber stofnun tilkynni okkur að til standi að loka þessu. Þeir gera það án þess að reyna að hafa neinar samræður við okkur,“ segir Daníel. Hann legg- ur áherslu á að aldrei hafi komið til umræðu við bæjaryfirvöld að íhuga aðra möguleika. „Póstþjónustan hefur verið starfrækt í bankaútibú- unum og þessi lokun kann að hafa áhrif á afgreiðslutíma,“ segir Daní- el. Hann óttast að lokanirnar geti valdið keðjuverkun sem skerði þjón- ustu við íbúa enn frekar. Hann gerir ráð fyrir því að á bilinu eitt til eitt og hálft stöðugildi muni tapast á hvorum stað en gerir jafnframt ráð fyrir því að önnur störf verði til í staðinn við breytt fyrirkomulag. Tveimur pósthúsum lokað  Póstbílar koma í stað pósthúsa á Þingeyri og á Suðureyri  Bæjarstjóri ósáttur við að ekki hafi verið haft samráð Daníel Jakobsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.