Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 „Skagfirðingar eru vissulega skemmtilegir, eins og gildir um flesta landsmenn held ég, en þeir eru miklir sagnamenn og hafa gam- an af því að segja gamansögur og frásagnir af fólki í sinni sveit,“ seg- ir Björn Jóhann Björnsson, höf- undur Skagfirskra skemmtisagna, þriðja bindis. Það ber undirtitilinn Enn meira fjör. Björn Jóhann bætir við að í Skagafirði hafi sagnahefð- inni verið haldið vel við gegnum ár- in, ekki síst fyrir tilstuðlan Sögu- félags Skagfirðinga, sem sé gríðarlega öflugt. „Ég leita víða fanga, bæði í rit- uðum heimildum en ekki síður munnlegum með því að hitta fólk og fá þannig sögur. Ég hef fengið margar ábendingar og á enn eftir að ná tali af fleiri sagnamönnum,“ segir hann. Þegar spurt er hvort von sé á fleiri bindum segist Björn Jóhann eiga meira efni. „Og ég er alltaf að fá fleiri og fleiri ábendingar um sögur og góða heimildarmenn. Þannig að mjög líklega á fjórða bindið eftir að líta dagsins ljós, ef Bókaútgáfan Hólar hefur áfram áhuga, hvort sem það verður á næsta ári eða því þarnæsta. Ég er bara mjög þakklátur fyrir góðar móttökur og hvet fólk til að halda áfram að verra duglegt að benda mér á snjallar sögur.“ Að lokum ein saga úr bókinni: Á einum bæ í Skagafirði fékk Ýtu-Keli að snæða svið. Var hann svangur mjög og hámaði í sig fjóra kjamma. Spurði húsfreyjan þá hvort hann vildi ekki fá sér meira. „Nei takk, ómögulega,“ sagði Keli, „ég er ekkert mikið gefinn fyrir svið.“ Skagfirðingar eru vissulega skemmtilegir Morgunblaðið/Styrmir Kári Gamansögur Björn Jóhann Björns- son hefur nú skrifað þrjár bækur með skagfirskum skemmtisögum. „Elskaðu-mig-eða-farðu!“ Over light earth bbmnn Verkin Over light earth (1-2), Emergence (1-3) og Solitudes (1-5) eftir Daníel Bjarnason. [Flytj- enda ógetið.] Bedroom Community, 2013. 48:08 mín. Hógværð þykir vissulega meðal höfuð- dyggða. En ef svo ber að túlka sláandi skort þessa bæklingslausa disks, er út kom á nýliðnu hausti að manni skilst, af lágmarksupplýs- ingum um flytjendur og stjórnanda, þá er hér fulllangt gengið. Hafi menn einhverja vitn- eskju um feril Daníels Bjarnasonar má að vísu leiða af líkum að hann stjórni sjálfur sinfóníusveitinni sem í verkunum þremur heyrist. En hver er hún? Og hver stendur t.d. fyrir hinum víða áberandi píanóleik? Um það fæst ekki bofs – né heldur ef smellt er á netsíðu út- gefandans, Bedroom Community, jafnvel þótt heimasíða höfundar nefni „the newly formed Reykjavik Sinfonia“ (s.s. ekki SÍ) og Víking Ólafsson. Væntanlegum kaupanda er m.ö.o. ætlað að iðka sjálfstæða menningarrannsókn- arblaðamennsku af einskærri forvitni. Hverju sætir? Að tónlistin tali alfarið fyrir sig sjálfa? Það hefur oft verið haft á orði um jafnt gamla sem nýja, og má svosum til sanns vegar færa. En hætt er við að þess konar „elskaðu-mig-eða-farðu!“-afstaða, í jafnfálátri framsetningu og hér getur, örvi varla út- breiðslu framsækinnar listtónlistar í gegnd- arlausu afþreyingarflóði nútímans. Mætti því alveg eins halda að afurðirnar séu aðallega boðnar þeim sem eru fyrirfram innvígðir og innmúraðir í téðum afkima fárra útvalinna. Hitt er svo annað mál að ekki virtist manni nærri jafnmikið eins óhlustvænt og ætla mætti við fyrstu kynni. Fyrir þá sem enn kunna að meta slíkt var t.a.m. þónokkuð um dúr/moll- hljóma, púlsrytma og skynjanlega lagrænu innan um löngu kunna áferðarúrvinnslu – í nærri durtslegum blóra við lengst af ríkjandi útlegð hins fyrrtalda úr véböndum akadem- ískrar nýhugsunar. Nái hlustandinn á annað borð að rífa sig upp úr vanabundnu jötungripi klassískra hlustunarstellinga ætti því sumt að koma honum á óvart. Stórmerk stílbreidd túlkandans Edda Erlendsdóttir piano bbbbn Edda Erlendsdóttir leikur píanóverk eftir Schu- bert: 3 Klavierstücke D946; Liszt: En rêve, Toccata, Nuages gris & Bagatelle sans tonalité; Schönberg: 3 Klavierstücke Op. 11 og Berg: Sonata Op. 1. ERMA, 2013. 66:22 mín. Snemmrómantík og frummódernismi á sama diski? Já, hví ekki? Þó að verkefni hans spanni nærri öld, þá voru jafnvel frum- kvöðlar Seinni Vín- arskólans – þ.e. Arnold Schönberg og nemandi hans Alban Berg, að Webern slepptum – væntanlega það ríg- saddir af rómantískum arfi í uppvexti að um- bylting varð þeim mun öflugri hvöt en seinni tónskáldum, er tóku slíku sem sjálfsögðum hlut. Íhugulum hlustanda er því á sinn hátt skilningsaukandi að fá hugboð um hvaða tón- leifð kom Schönberg og Berg (ásamt furðu- framsýnum elliverkum Liszts einni kynslóð fyrir vatnaskilin miklu laust fyrir 1914) til að nálgast róttæka nýsköpun – með nánast allt og alla á móti sér. En vitaskuld er sú bakhyggja engin for- senda. Njóta má disksins beint eins og hann kemur fyrir. Þá er stórmerk stílbreidd túlk- andans kapítuli út af fyrir sig, enda vandséð í fljótu bragði að margir aðrir íslenskir pían- istar ráði jafn sannfærandi við jafnólíkar tón- smíðar í einni bendu. Verkavalið er nánast hið sama og á tónleikum Eddu í Salnum 8. sept- ember sl. er uppskáru fyrirsögnina „Þegar torf verður að tónlist“ – nánar tiltekið fingur- brjótarnir þrír eftir Schönberg. Og flutning- urinn er engu síðri hér en þá. Fallega hljómandi jólagjöf Portrait bbbbn Flytjendur: Emilía Rós Sigfúsdóttir á flautu og Ástríður Alda Sigurðardóttir á píanó. Verk eftir Schubert, Sancan, Fauré, Atla Heimi Sveinsson, Younis og Jolivet. Útgefandi. Emilía Rós Sigfús- dóttir, 2013. 64:57 mín. Flautan er frá fornu fari ímynd ljóðrænnar hjarðsælu, þótt fráleitt hafi það útilokað hana frá tilraunaviðleitni tónsmiða 20. aldar. Sú þrautaleit er samt víðsfjarri hér, þar eð im- pressjónískt lituð verk Ravels og Jolivets, ásamt yngsta stykkinu, Rising from the ashes (1975) eftir hinn jórd- anska Tarek Younis, eru einna framsæknust á boðstólum. M.ö.o. ræður hið lagræna að mestu ríkjum, og fer ekki sízt vel á því ef gleðja á tón- elska vini með fallega hljómandi jólagjöf. Að því leyti er fjölskrúðugu verkavali disk- ins vel í sarp komið, enda verkin upp til hópa hlustvæn og heillandi þótt séu misjafnlega kunn. Meðal hinna minna þekktu er Sónatína Sancans þar sem hægi þátturinn blómstrar af blæðandi melódík, líkt og í Concours Ravels (að ekki sé talað um Sikileysku hans), og verk- ið austan úr Miðjarðarhafsbotnum kemur og skemmtilega út. Samt fær tápmikið fjör líka að slá neistum, t.a.m. í lokaverkinu eftir Jolivet, Chant de Linos, og ætti því fáum að leiðast. Emilía Rós er m.a. kunn fyrir framkomu sína með kammerhópnum Elektru. Flautu- tónn hennar er afar kliðfríður án yfirdrifins víbratós (fyrir þá með ofnæmi fyrir Galway!), eitilsnarpur þegar það á við, og að auki merki- lega hreinn – einkum ef hugsað er til þess hvað flautublástur virðist furðuoft lafa í tónstöðu á hæsta sviði. Píanósamleikur Ástríðar Öldu er sömuleiðis vakur og fylginn við hæfi og því fátt út á heild- ina að setja. Heillandi hlustupplifun Flúr bbbmn Flytjendur: Funi (Bára Grímsdóttir og Chris Foster). 15 þjóðlög og sönglög eftir Báru Gríms- dóttur í útsetningum hennar og Chris Foster. Green Man Productions, 2013. 57:54 mín. Diskur þessi minnir enn og aftur á hvílíkt texta-Gósen íslenzkir tónlistarmenn búa við. Allt frá landnámi liggja söngvænar bók- menntir í hrönnum, flestar m.a.s. enn ótón- settar. Og þó að þjóðlagahreyfingin hafi hér varla enst nema tvo áratugi eftir upphaf Sav- annatríósins um 1963, þá lifir hún góðu lífi er- lendis – og hefur sumpart víkkað með tilkomu svo- nefndrar heimstónlistar. Hér er á ferðinni dúó – ekki dúett líkt og nýgildir tónlistarmenn kalla, enda þótt alþjóðaorðið merki aðeins „lag fyrir tvo söngvara“. Svo því sé nú komið á hreint! Dúóið Funi er skipað hjón- unum Báru Grímsdóttur og Chris Foster og hóf göngu sína 2001. Chris er frá Somerset, löngu kunnur þjóðlagatrúbadúr í föðurlandi sínu, og nýtur tvíeykið góðs af fimri gít- arplokktækni hans sem og söngs, þó að Bára sé óviðjafnanleg með tærri sópranrödd sinni er einu sinni var líkt við Varðlokuseið Guðríðar Þorbjarnardóttur í lýsingu Eiríks sögu rauða. Einnig koma til kasta finnskur plokksítri Báru (kantele) og langspil og slagsítri (dulci- mer) bóndans – ásamt Lárusi Halldóri Gríms- syni á klarínett í þremur lögum, Birgi Braga- syni á kontrabassa í öðrum þremur, söng Hafsteins Þórólfssonar í tveimur og söng og saxófóni Andra Eyvindssonar í einu. Útsetn- ingarnar eru einfaldar og gegnsæjar og kvæðamannalögin smekklega „lissuð“ hjá Báru, þó að maður sakni svolítið mótraddar í einrödduðu tvísöngslögunum. Heildarsvipurinn er kyrrlátur og tær, jafn- vel dreymandi, og hefði því kannski mátt hafa eitt til tvö dúndur-hrynlög með til mótvægis. Eftir stendur samt heillandi hlustupplifun; sérkennilega tímalaus endurómur af niði alda. Fornt, nýtt – og þar í millum Yfirlit yfir nýjar íslenskar klassískar plötur Ríkarður Ö. Pálsson vindsvelgur@gmail.com Fingurbrjótar Edda Erlendsdóttir leikur verk eftir m.a. Liszt, Schönberg og Berg. Eitilsnörp Tónn Emilíu Rósar Sigfúsdóttur er að mati rýnis „afar kliðfríður.“ F ÍT O N / S ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklega mjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífa í næstu verslun. WWW.PAPCO.IS FIÐURMJÚK FÍFA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.