Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Lítið framboð er af innlendu nautakjöti á markaðnum og ljóst að ekki fá allir sem vilja íslenska nautasteik í veislurnar eftir jól og um áramót. Flutt er inn kjöt til að fylla í skörðin en háir tollar á dýr- ustu og eftirsóttustu steikunum draga úr innflutningi. „Það er alltaf umframeftirspurn eftir bestu vöðvunum og nær víst að það verður skortur á þeim. Framleiðslan er ekki næg. Svo er að verða knappt með aðra vöru, hakkefni og fleira,“ segir Steinþór Skúlason, forstjóri SS. Tollar urðu of háir Framleiðsla á nautakjöti hefur verið að dragast saman síðustu mánuði, eftir söluaukningu á fyrri hluta ársins, og í nóvember varð verulegur samdráttur. Það má setja í samhengi við hvatningu til kúabænda um að auka mjólkur- framleiðsluna. Það þýðir að þeir fresta slátrun á mjólkurkúm og setja fleiri kálfa á. Það dregur tímabundið úr framleiðslu kjöts. Heildarframleiðsla á nautakjöti er yfir fjögur þúsund tonn á ári. Nautakjöt er flutt inn þegar skortur er á innlendu kjöti. Fyrstu tíu mánuði ársins voru flutt inn um 130 tonn sem er minna en á sama tímabili árið áð- ur. Unnt er að flytja inn tollfrjálst og með lágmarkstollum tæp 200 tonn á ári. Ekki er útlit fyrir að heimildirnar verði nýttar að fullu í ár þótt flutt hafi verið töluvert af hakkefni inn í vor til að hægt væri að búa til alla þá hamborgara sem landsmenn og ferðamenn vildu kaupa. Skýringin á minni innflutningi er talin sú að innlend nautakjöts- framleiðsla jókst á fyrri hluta árs- ins. Þá hefur breyting sem gerð var fyrir ári á útreikningi magn- tolla orðið til þess að tollar eru háir á dýrustu steikunum, eins og nautalundum sem eru uppistaðan í innflutningnum, í sumum tilvikum hærri en leyfilegt er samkvæmt alþjóðasamningum. Frumvarp um breytingar á aðferðum við ákvörð- un tollanna liggur nú fyrir Al- þingi. Hlið við hlið í kjötborðinu Oft hefur verið mikil eftirspurn eftir nautakjöti fyrir áramóta- veislurnar. „Það hefur alltaf verið erfitt að fá nautalundir, það er ekki ný saga. Við höfum þó verið seigir við það en þurfum alltaf að vera með klærnar úti og safna birgðum,“ segir Friðrik Guð- mundsson, kaupmaður í Melabúð- inni. Hann á ekki von á að skortur verði á nautakjöti og bendir á að innfluttar lundir séu boðnar fram við hlið þeirra íslensku í kjötborð- inu. Neytendur hafi val. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hold Í landinu er gamall Galloway-holdanautastofn. Fyrir nokkrum árum var flutt til landsins erfðaefni af tveimur öðrum kynjum, Aberdeen Angus og Limosine. Á Hálsi í Kjós eru Galloway-kýr og Aberdeen Angus-blendingar. Hætt við kjötskorti  Ekki fá allir sem vilja íslenska nautasteik um áramótin  Háir tollar á dýrustu bitana hafa hamlað innflutningi Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslendingar senda um 2,5 milljónir jólakorta í ár, að sögn Brynjars Smára Rúnarssonar, forstöðu- manns markaðsdeildar Póstsins. Hann segir að magnið sé sambæri- legt við það sem það var í fyrra, en til að mæta auknu álagi fyrir jólin hafi þurft að bæta við yfir 300 starfsmönnum. Síðasti skiladagur jólakorta og jólapakka, sem senda á innanlands með Póstinum, var í gær en þeir sem náðu ekki að skila í tíma þurfa ekki að örvænta því flokkun og út- burður halda áfram fram á að- fangadag. Unnið dag og nótt Mikið hefur verið að gera hjá Póstinum undanfarnar vikur og unnið á vöktum allan sólarhringinn við flokkun á pósti. Til að tryggja að kort og pakkar komist til viðtak- enda fyrir jól hafa síðustu skiladag- ar dreifst á undanfarnar vikur. Þannig var síðasti skiladagur vegna jólapakka í flugpósti utan Evrópu 5. desember og innan Evr- ópu 12. desember. „Þetta hefur gengið mjög vel,“ segir Brynjar Smári og bætir við að unnið verði alla helgina til þess að reyna að koma sem flestum jóla- kortum til viðtakenda. Póstur verði borinn út í dag, á Þorláksmessu og aðfangadag og vonandi dugi það. „En það er alltaf gaman að fá jóla- kort, þótt það sé eftir jól.“ Íslendingar senda um 2,5 milljónir jólakorta í pósti  Yfir 300 starfsmönnum bætt við hjá Póstinum  Borið út á aðfangadag Morgunblaðið/Þorkell Flokkun Jólapósturinn er flokkaður hjá Póstinum allan sólarhringinn. Gunnar I. Birgis- son gefur ekki kost á sér í próf- kjöri Sjálfstæðis- flokksins í Kópa- vogi sem fram fer 8. febrúar. Gunnar Ingi hefur verið í forystu sjálfstæð- ismanna í Kópa- vogi frá árinu 1990. Hann var lengst af formaður bæjarráðs Kópavogs og um tíma bæjarstjóri. Hann var al- þingismaður á árunum 1999 til 2005. Framboðsfrestur rann út í gær og tilkynntu 18 manns framboð. Hinir bæjarfulltrúar flokksins gefa kost á sér, þau Aðalsteinn Jónsson, Ár- mann Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Margrét Björnsdóttir. Gunnar I. Birgisson gefur ekki kost á sér Gunnar I. Birgisson Í dag fer þriðja umræða fjárlaganna fram, en í gær lauk meirihluti fjár- laganefndar við tillögur sínar að breytingum á fjárlagafrumvarpinu. Meðal þess sem lagt er til er hækkun á vörugjaldi á bensíni, svokölluðu bensíngjaldi. Yfirleitt hefur gjaldið farið beint út í verðlagið og verði svo líka nú, mun lítrinn af blýlausu bensíni hækka um rúma krónu og annað bensín aðeins meira. Þessi hækkun á bensíngjöldum nemur 3% sem er al- menn viðmiðun við verðlagsupp- færslu krónutölugjalda í ársbyrjun 2014 . Í breytingartillögunni er lagt til að vörugjald af blýlausu bensíni muni hækka um 1,19 krónur, úr 39,51 í 40,70 krónur og vörugjöld af öðru bensíni hækki um 1,28 krónur, úr 41,87 í 43,15. Samkvæmt vegaáætlun á að verja þessum tekjum til vega- gerðar, að frádregnum 0,5% sem renna í ríkissjóð til að standa straum af kostnaði við álagningu og inn- heimtu gjaldsins. Gert er ráð fyrir að þessi hækkun, auk olíugjalds, kílómetra- og bif- reiðagjalds skili ríkissjóði samanlagt 800 milljónum króna á næsta ári. Yfirleitt strax út í verðlagið „Þetta kemur ekki á óvart. Við höf- um búið við þetta undanfarin ár,“ segir Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu. „Yf- irleitt fara svona hækkanir fljótlega út í verðlagið, reyndar mun það ekki gerast strax um áramótin, heldur leggst vörugjaldið á við innflutning, þegar fyrsti farmurinn kemur inn á nýju ári og við byrjum að selja hann.“ Þannig að eldsneytið gæti hækkað á mismunandi tímum hjá olíufélög- unum, eftir því hvenær þau fá nýjan farm? „Já, það gæti verið þannig. En það er mikil samkeppni og hugsan- lega reynir það félag sem fyrst þarf að hækka að taka það á sig.“ „Þetta kemur ekkert á óvart,“ seg- ir Magnús Ásgeirsson hjá N1. „Það má búast við því að þetta fari beint út í verðlagið. En maður veit ekki hvernig eða á hvaða tíma.“ annalil- ja@mbl.is Eldsneytið hækki um 3%  Hækkun á vörugjaldi um áramót leiðir væntanlega til hækkunar á eldsneyti  Fyrirsjáanlegt, segja talsmenn olíufélaga  Lítrinn hækkar um rúma krónu Kúabændur hafa áhyggjur af því að tapa stærri hluta af nautakjötsmark- aðnum og vilja að þegar í stað verði gripið til ráðstafna til að flytja inn erfðaefni til kynbóta holdanautastofnsins. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, tekur undir áhyggjur kúabænda af þróun framleiðslunnar. „Það vantar að flytja inn nýtt erfðaefni svo hægt sé að auka framleiðslu á holdanautum. Þeir eiga með réttri fóðrun að ná sláturþyngd á tólf mánuðum á meðan það tekur meira en tuttugu mánuði að ala naut af íslenska mjólkurkúakyninu,“ segir Steinþór. Landssamband kúabænda (LK) sótti um að flytja inn sæði til notkunar hjá einstökum bændum. Það er fljótvirkasta leiðin til að auka framfarir. Þannig standa svínabændur að málum og fengu til þess sérstaka heimild í lögum. Leggja þeir til að í upphafi verði flutt inn djúpfryst sæði eða fóst- urvísar af Aberdeen Angus-kyni og síðar Limosine. Atvinnuvegaráðuneytið fól Matvælastofnun í október að gera áhættu- mat vegna innflutningsins, annars vegar við notkun beint hjá bændum og hinsvegar á einangruðu ræktunarbúi. Ráðuneytið hefur fallist á að veita stofnuninni frest til 1. febrúar til að skila niðurstöðum. Stjórn LK telur af- ar brýnt að fá úr því skorið sem allra fyrst hvort innflutningi holdanauta- sæðis fylgi áhætta fyrir heilbrigði búfjár hér á landi og hefur leitað til norsku dýralæknastofnunarinnar um að gera áhættumat vegna innflutn- ings á sæði hingað til lands. Það mat kemur til viðbótar greiningu Mat- vælastofnunar. Áhættumat vegna innflutnings HOLDANAUTASTOFNINN ÞARF NÝTT BLÓÐ Hugljúfar gjafir Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011 TOMONA „True Friend” spirit is direct but respectful. Maxi doll með swarovski kristöllum 4,500.- Bolli 2,590.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.