Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 Jólapakkaskákmót GM Hellis verð- ur haldið laugardaginn 21. desem- ber í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er þátttaka ókeypis. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 16. skipti og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skák- mót ársins. Keppt verður í a.m.k. 5 flokkum: Flokki fæddra 1998-2000, flokki fæddra 2001-2002, flokki fæddra 2003-2004 og flokki fæddra 2005 og síðar og peðaskák fyrir þau yngstu. Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum aldurs- flokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happ- drætti um jólapakka í hverjum ald- ursflokki fyrir sig og í lokin verður happdrætti fyrir alla þátttakendur. Skráning á mótið er á skak.is. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólapakkaskákmót Hellis í Ráðhúsinu Arion banki hefur veitt Hjálparstarfi kirkj- unnar, Mæðrastyrksnefnd og Rauða krossi Íslands styrki að upphæð sex milljónir króna, í tilefni jólaúthlutunar þeirra nú í desember. Hverju félagi um sig var veittur styrkur að upphæð tvær milljónir króna. Starfsfólk bankans safnaði einnig jóla- gjöfum sem það afhenti Mæðrastyrksnefnd. Nefndin sá um að koma gjöfunum til skjólstæðinga sinna. Arion banki hefur í gegnum árin átt farsælt samstarf við Hjálp- arstarf kirkjunnar og hefur auk þess komið að ýmsum söfnunarverk- efnum á vegum Rauða krossins sem og Mæðrastyrksnefndar síðastliðin ár, segir í tilkynningu frá bankanum. Á myndinni má sjá Sigmar Inga Sigurðarson, formann starfsmanna- félagsins Skjaldar, afhenda Ragnhildi Guðmundsdóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar, jólagjafir frá starfsfólki bankans. Arion banki styrkir hjálparsamtök STUTT Stjórn Dans- íþróttasambands Íslands hefur valið dansparið Nikita Bazev og Hönnu Rún Óla- dóttur danspar ársins 2013. Nikita og Hanna Rún keppa í sam- kvæmisdönsum, latin-dönsum. Þau hafa dansað saman frá því í byrjun þessa árs. Í gegnum árin hefur Hanna Rún unnið fjölda Íslands- og bikarmeist- aratitla og náð langt á keppnum er- lendis með fyrri dansfélögum. Hún hefur orðið Íslandsmeistari á hverju ári síðan 1997. Þá varð hún Norður-Evrópumeistari í nóv- ember 2011 og náði 16. sæti á Evr- ópumeistaramóti í Frakklandi 2011. Besti árangur Hönnu Rúnar og Nikita er 16. sæti á heimsmeist- aramótinu sem fór fram í Berlín 30. nóvember sl. en ekkert íslenskt par hefur náð svona langt áður. Hanna Rún og Nikita valin danspar ársins HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ Í GÓÐUMHÖNDUM Snjallt að kíkja á okkur á adal.is Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -0 4 6 7 Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is og www.adal.is Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900 fi p y j g p C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam Villibráðar-paté prikmeð pa Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ - salat skufer ðbo arðameð Miðj kjRisa-ræ með peppadew iluS ajónmeð japönsku m het Hörpuskeljar má, 3 s Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hátt í fjörutíu ár voru liðin frá því að manngert far lenti síðast á tunglinu þegar kínverska geimfarið Change’e 3 lenti þar á laug- ardag. Megin- ástæðan fyrir því er sú að kostn- aður við mann- aðar tunglferðir var hár og að menn beindu sjónum sínum að öðrum spennandi hnöttum í sól- kerfinu, að sögn Sævars Helga Bragasonar, for- manns Stjörnuskoðunarfélags Sel- tjarnarness. Tilgangurinn með tunglferð Kín- verja nú er fyrst og fremst að sýna fram á tæknilega getu þeirra til að lenda fari á fylgihnetti jarðarinnar, segir hann. „Um borð eru náttúrlega líka mælitæki og myndavélar sem koma til með að segja okkur ýmsilegt skemmtilegt um yfirborðið á tungl- inu því að jeppinn lenti á hrauni á stað sem hefur aldrei verið kann- aður áður,“ segir hann. Hraunið er eitt hið yngsta á tungl- inu, rétt um milljarðs ára gamalt. Tungljeppinn Yutu mun mæla þykkt jarðvegsins en það segir vísinda- mönnum hvernig tunglið hefur þróast í gegnum tíðina. Oft hefur verið sagt að tilgangur geimferðaáætlunar Kínverja sé að leita að auðlindum í sólkerfinu. Á tunglinu er til dæmis að finna helíum sem er af skornum skammti á jörð- inni en auk þess gera menn sér vonir um að finna málma þar. „Það er ansi margt hægt að læra um myndun tungslins og annarra hnatta í sólkerfinu með því að rann- saka það. Vísindamennirnir horfa náttúrlega fyrst og fremst á það en ætli pólitíkin horfi ekki aðallega á það að það sé hægt að græða eitt- hvað á þessu til lengri tíma litið.“ Þurftu að velja og hafna Tugir tunglfara voru sendir út af örkinni á 7. og 8. áratugnum en síð- asta mannaða ferðin til tunglsins, Apollo 17-leiðangurinn, var farin í desember árið 1972. Síðasta tungl- farið sem lenti mjúklega þar var hið sovéska Lunar 24 árið 1976. „Það var dýrt að senda menn til tunglsins og menn ákváðu líka að smíða geimstöð í staðinn. Við höfum ennþá afraksturinn af því í dag. Það hefur alltaf verið áhugi hjá mönnum á tunglferðum en það eru náttúrlega margir áhugaverðir hnettir í sólkerf- inu og menn verða einfaldlega að velja og hafna,“ segir Sævar Helgi. Reikistjarnan Mars hefur verið vinsæl eftir tunglferðirnar enda mun meiri líkur á að áhugaverðir hlutir hafi gerst þar og þá hafa menn rennt hýru auga til Evrópu, fylgitungls gasrisans Júpíters. Sævar Helgi segir að margir vísindamenn vildu frekar fara þangað en að ráðast aft- ur í mannaðar ferðir til tunglsins. Leiddar hafa verið líkur að því að geimferðaáætlun Kínverja sem mið- ar meðal annars að því að koma mönnum út í geiminn og jafnvel til Mars hrindi af stað nýju geimferða- kapphlaupi þjóða heims. „Kannski verður það Bandaríkja- mönnum vakning ef Kínverjar gefa það upp að þeir ætli að senda menn til Mars. Mér sýnist nú að flest bendi til að menn muni reyna að vinna að mörgum þessum leiðöngrum, sér- staklega mönnuðum, í sameiningu,“ segir Sævar Helgi. Áður þurfa bandarísk lög þó að breytast því þau banna nú NASA að eiga samstarf við Kínverja af ótta við þjófnað á tækni geimferðastofn- unarinnar. Kanna óþekktar slóðir á tunglinu  Geimferðaáætlun Kínverja gæti orðið öðrum vakning  Samvinna á milli þjóða líklegust í mönn- uðum leiðöngrum framtíðarinnar  Tunglferðir lögðust af vegna kostnaðar og annarra áfangastaða Máninn Menn hafa lengi haft áhuga á tunglinu, næsta nágranna okkar. Sævar Helgi Bragason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.