Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 Þessi vara er laus við: Mjólk Glúten Sykur Soja Rotvarn- arefni 10 0% NÁ TTÚRULEGT •100% NÁTTÚRUL EG T • Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is P R E N T U N . I S UPPLIFÐUMUNINN! Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt öðrum öflugum góðgerlum Oft spurt? Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð- gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga- erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang, uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl. Svar? Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ DDS PÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana. Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum, vinnusamur og stöðugur. Notkun 2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari. - Prófaðu og upplifðu muninn Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hvernig drukknar maður með börn- um sínum? Að því spyr Sigrún Páls- dóttir, höfundur bókarinnar Sigrún og Friðgeir – ferðasaga. Í bókinni segir hún frá hjónunum og lækn- unum Friðgeiri Ólasyni og Sigrúnu Briem sem héldu til Bandaríkjanna í framhaldsnám og voru á heimleið með Goðafossi haustið 1944, með þrjú ung börn sín, þegar þýskur kaf- bátur sökkti skipinu. Sigrún Pálsdóttir er með doktors- gráðu í hugmyndasögu frá Oxford, er ritstjóri Sögu, tímarits Sögufélags, og fyrsta bók hennar, Þóra biskups og raunir íslenskrar embættis- mannastéttar kom út fyrir þremur árum og vakti verðskuldaða athygli. Rétt eins og þessi nýja bók sem hlaut Bóksalaverðlaunin sem besta ævi- sagan. En hvað var það sem dró Sig- rúnu að sögu nöfnu sinnar og Frið- geirs, sem drukknuðu með börnum sínum? „Það var þessi örlagasaga fólksins en jafnframt heimildirnar sem ég erfði,“ segir hún og í ljós kemur að Sigrún Briem var ömmusystir höf- undarins, sem einnig var skírð í höf- uðið á frænkunni sem lést 33 ára gömul. „Faðir Sigrúnar, Sigurður Briem póstmeistari, átti mikið og glæsilegt skatthol og þar geymdi hann dagbók og bréf Sigrúnar og Friðgeirs frá tíma þeirra í Bandaríkjunum. Þetta skatthol barst svo með tímanum frá Tjarnargötu 20, þar sem þau bjuggu, til frænda míns ofar í götunni, og síð- an í póstnúmer 108 þar sem við bjuggum. Ég hef því lengi vitað af þessum gögnum og að ég ætti eftir að gera eitthvað með þetta efni. Þetta er ekki stór bunki og ég taldi lengi vel að þetta væri ekki nóg efni í ævisögu, þriggja binda doðrant eins og ég sá slíkar bækur fyrir mér á unglingsárum. Ég sá þetta líka lengi fyrir mér sem sögu hennar en þegar ég fór að skoða bréfin og dagbæk- urnar betur kom í ljós hvað Friðgeir var áhugaverður maður. Þau voru líka svo óaðskiljanleg og því varla hægt að skrifa bara um annað þeirra.“ Sigrún bætir við að þrátt fyrir ætt- artengslin bindist hún viðfangsefn- inu fyrst og fremst sem höfundur verksins. „Maður verður að vera auð- mjúkur og trúr þegar maður er að vinna á þennan hátt úr persónu- legum bréfum og dagbókum.“ Býr til myndir og stemningu Í bókinni segir Sigrún frá uppvexti og menntun ungu læknanna sem höfðu ólíkan bakgrunn, hún alin upp á borgaralegu heimili í Reykjavík en hann á kotbýli í Skjaldabjarnarvík á Ströndum. Þá fylgir lesandinn hinum metnaðarfullu hjónum eftir þar sem þau fara víða um Bandaríkin og Kan- ada, með stækkandi barnahópinn, að afla sér frekari menntunar og reynslu. Bakgrunnur Sigrúnar í sagnfræð- inni birtist til dæmis í nákvæmri notkun heimilda og fjölda skýringa aftanmáls. Hún segir brosandi að ekki skrifi samt allir upp á að þetta geti kallast sagnfræði. „Sú sagnfræði sem ég stunda stendur í raun mikið nær bók- menntum en hefðbundinni sagnfræði sem leitast við að skilja og skýra. Ég legg ekki beinlínis upp með neinar fræðilegar spurningar – nema svona í retórískum tilgangi – heldur leitast ég við að búa til myndir, stemningu og andrúmsloft. Og í mínum bókum er fagurfræðilega hvorki pláss fyrir formála né eftirmála því slíkt spillir heimi sögunnar.“ Alls sem kemur á óvart … „Framandleiki fortíðarinnar er lykilatriðið, allt sem kemur mér á óvart og er skrítið – og það geta verið býsna smávægilegir þættir sem hafa samkvæmt hefðbundnum skilningi lítið sögulegt gildi. Þess vegna var til dæmis ákveðin áskorun fyrir mig að skrifa sögu sem gerist í síðari heims- styrjöldinni miðri, sem kalla má móð- ur allra stórsagna,“ segir hún og brosir. „Ég þurfti að ramma frásögn Sigrúnar og Friðgeirs inn með þess- um kunnuglegu atburðum styrjald- arinnar og það fannst mér erfitt. En í stað þess að taka þessu stórsögulega samhengi sem gefnu reyndi ég að vinna með það og jafnvel afsanna til- vist þess og áhrif á líf Sigrúnar og Friðgeirs. Þannig vísar saga þeirra beint inn í mjög fræðileg álitamál eins og spurninguna um það hvernig hinn þungi taktur stórsögunnar á erfitt með að rúma öll þau blæðbrigði og frávik sem persónusagan býr yfir. Sagan af árásinni á Pearl Harbor þegar Sigrún og Friðgeir eru stödd í New York er mjög gott dæmi um þetta. En ég læt þetta nú samt liggja undir textanum til að halda períód- unni, heimi sögunnar, hreinni.“ Þegar Sigrún er spurð um næstu verkefni kemur svarið því ekkert á óvart. Hún er að leggja drög að sinni fyrstu skáldsögu sem hefur sterkan sögulegan tón án þess þó að vera söguleg skáldsaga en einnig að öðru verki sem byggist á sagnfræðilegum heimildum. „Maður verður að vera auðmjúkur og trúr “ Morgunblaðið/Einar Falur Fagurfræði „Sú sagnfræði sem ég stunda stendur í raun mikið nær bókmennt- um en hefðbundinni sagnfræði sem leitast við að skilja og skýra,“ segir Sigrún.  Sigrún Pálsdóttir skráði örlagasögu Sigrúnar Biem og Friðgeirs Ólasonar Í tveimur veglegum bindum nýs stórvirkis, Kaupmannahöfn sem höfuðborg Íslands, rekja sagnfræð- ingarnir Guðjón Friðriksson og Jón Þ. Þór söguna. Hið íslenska bók- menntafélag gefur verkið út. Í fyrra bindinu er sagan sögð frá upphafi til ársins 1814 en þá urðu tímamót í sögu Danaveldis og sam- bands landanna. Síðara bindið nær yfir tímabilið 1814 til 1918 og fjallar m.a. um sjálfstæðisbarátt- una, viðskipti og menningu. Morgunblaðið/Golli Stórvirki Margrét Danadrottning og Ólafur Ragnar Grímsson veittu fyrstu ein- tökum bókarinnar viðtöku á dögunum. Höfuðborgin Kaupmannahöfn Ljóðheimur Matthíasar er heiti nýrrar hljóðbókar með ljóðum eftir Matthías Johannessen, skáld og fyrrverandi ritstjóra, frá tímabilinu 1958 til 1999. Höfundur les sjálfur á þessum upptökum sem voru gerðar hjá Ríkisútvarpinu. Fyrsta ljóðabók Matthíasar, Borgin hló, kom út árið 1959 og vakti mikla athygli. Ljóðabókum hans hefur fjölgað og eru þær orðn- ar yfir 20 talsins. Útgefandi Ljóða- heims Matthíasar er Hlusta.is. Úrval Í hljóðbókinni er lestur Matthíasar á ljóðum frá tímabilinu 1958 til 1999. Hljóðbók með ljóðum Matthíasar Forsvarsmenn Kópavogsbæjar og Listaháskóla Íslands hafa handsalað samkomulag um að uppskeruhátíð skólans á vorin, í tónlist, myndlist og hönnun, verði á menningartorfu Kópavogsbæjar. Útskriftartónleikar tónlistardeild- ar Listaháskóla Íslands fara fram í Salnum í apríl og maí, samkvæmt samkomulagi Salarins, LHÍ og lista- og menningarráðs bæjarins. Samn- ingurinn nær til þriggja ára. Fyrr í vetur var ákveðið að útskriftarsýn- ingar meistaranema í myndlist og hönnun yrðu haldnar í Gerðarsafni. Útskriftartónleikarnir eru fjár- magnaðir með framlagi úr lista- og menningarsjóði Kópavogsbæjar en tilgangur hans er að efla menningar- lífið í bænum. Aðgangur að tónleik- um LHÍ verður ókeypis og allir vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. Með samningnum fær tónlistar- deild skólans einnig aðgang að Tón- listarsafni Íslands fyrir útskriftar- nema skólans og verkefni þeirra. Samið Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, og Karen E. Halldórsdóttir handsala samkomulagið. Með þeim eru Kjartan Ólafsson, prófessor við LHÍ, og Aino Freyja Järvelä, forstöðumaður Salarins. Uppskeruhátíð LHÍ verður í Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.