Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 2
Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Í yfirlýsingu heilbrigðisráðherra og stjórnar Sunnuhlíðarsamtakanna er boðað að ríkið muni tímabundið taka yfir rekstur Sunnuhlíðar. Áherslan er á að tryggja rekstur heimilisins, en ríkið tekur ekki yfir eignir og skuldir félagsins. „Meginatriði í yfirlýsingunni eru tvö. Annars vegar er um að ræða forgangsmálið, sem er að tryggja aðhlynningu og umönnun þeirra öldruðu einstaklinga sem eru til heimilis á Sunnuhlíð. Við erum að gera samkomulag um það,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis- ráðherra. „Hinn þáttur málsins er skuldbindingar sem hvíla á Sunnu- hlíðarsamtökunum. Við lýsum því yfir að við séum reiðubúin að reyna að finna lausnir á þeim málum.“ Ríkissjóður er því ekki að taka yfir eignir og skuldir hjúkrunar- heimilisins. „Það er ekki inni í mynd- inni. Eins og fram hefur komið þurf- um við að vinna heildstæða úttekt á stöðu málefna aldraðra og sjá hvern- ir landslagið í þeim efnum er. Á þeim grunni verður svo ákveðið hvernig verður tekið heildstætt á Tryggja órofinn rekstur Sunnuhlíðar  Ríkið yfirtekur rekstur Sunnuhlíðar  Tryggja að engin röskun verði á starfsemi heimilisins  Einboðið að leita til annarra um rekstur heimilisins  Tekið verði heildstætt á málefnum aldraðra verkefnum sem við blasa á sviði öldrunarmála.“ Kristján Þór sagði málin ekki komin svo langt að farið væri að leita varanlegra lausna á vanda Sunnu- hlíðar, eins og að leita til annarra hjúkrunarheimila um að taka rekst- urinn yfir. „Ég tel það hins vegar einboðið að við leitum að einhverjum öðrum aðilum til að reka þetta. For- gangsverkefnið er að tryggja að ekki verði röskun á rekstri heimilis- ins og að því beinast allra sjónir í dag. Þegar við erum komin á lygnan sjó með það getum við farið að velta fyrir okkur öðrum þáttum.“ 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. JÓLATILBOÐ Þráðlaus kjöthitamælir FULLT VERÐ 6.990 4.990 Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 www.grillbudin.is Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Á yfirstandandi þingi hafa 20 frum- vörp orðið að lögum. 12 þessara frumvarpa voru samþykkt í gær og tvö í fyrradag. Enn bíða 69 mál af- greiðslu þingsins. 16 mál bíða 1. um- ræðu, 33 eru í nefnd eftir fyrstu um- ræðu, níu bíða 2. umræðu og tvö eru í nefnd eftir 2. umræðu. Níu mál bíða svo þriðju umræðu. Hæst ber samþykkt nýrra heild- arlaga um stimpilgjöld, laga um frestun á nauðungarsölu, heildarlaga um Orkuveitu Reykjavíkur og frest- un gildistöku sektarákvæðis laga um endurnýjanlegt eldsneyti í sam- göngum á landi. Bankaskattur sem mun leggjast á fjármálafyrirtæki í slitameðferð verður að öllum líkind- um samþykktur í dag. Heildarlög um stimpilgjald Gjaldskyldan samkvæmt nýjum lögum um stimpilgjald nær einungis til þeirra skjala sem varða eignar- yfirfærslu fasteigna hér á landi og skipa yfir 5 brúttótonnum. Þetta þýðir að ekki þarf að greiða stimp- ilgjald vegna lánsskjala, þar með tal- ið skilmálabreytinga á lánsskjölum og fleiri skjölum. Stimpilgjöld falla því í auknum mæli á þá sem t.d. fjár- magna fasteignakaup sín án lántöku. Frestun sektarákvæðis Með því að fresta sektarákvæði laga um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi verður ekki heimilt að sekta seljendur eldsneytis sem uppfylla ekki skilyrði laganna um lágmarkshlutfall endurnýjanlegs eldsneytis sem blandað er í eldsneyti fyrr en níu mánuðum eftir að lögin öðlast gildi. Lögin hafa verið gagn- rýnd þar sem útlit er fyrir að mikið af íblöndunarefninu þurfi að flytja inn. Maraþon á lokadögunum  12 af 20 lagafrumvörpum 143. þings samþykkt í gær  69 málum ólokið Morgunblaðið/Golli Stutt í jól Þingsalurinn er tómlegur á kvöldfundum. Þinglok nálgast. Slökkvilið og lögregla voru kölluð út til að losa niðurföll þegar sjór flæddi yfir við Kaldbaksgötu og nágrenni á Eyrinni á Akureyri í vonskuveðri í gær. Björgunar- sveitir aðstoðuðu ökumenn í erfiðleikum í Víkurskarði. Veðrinu slotaði á Norðurlandi undir kvöld. Hvassviðri og þung snjókoma var hins vegar á Vestfjörðum í gær- kvöldi. Spáð var hvassvirði eða stormi á Vestfjörðum og Norðausturlandi í nótt. Lýst var yfir varúðarstigi í Súða- víkurhlíð vegna snjóflóðahættu í gærkvöldi. Eins var Ólafsfjarðarmúli lokaður vegna snjóflóðs. vidar@mbl.is Vonskuveður og snjóflóðahætta Ljósmynd/Karl Eskil Pálsson Eftir helgi er reiknað með að byrj- að verði að búta flutningaskipið Fernöndu niður. Skipið var flutt í Helguvíkurhöfn í fyrradag frá Njarðvík og í gær var unnið að því að færa jarðveg að skipinu og búa til vinnupall í kringum það. Eldur kom upp í Fernöndu í lok október þegar skipið var statt út af Vestmannaeyjum. Eftir að áhöfn- inni var bjargað var skipið dregið til Hafnarfjarðar en út aftur þegar eldurinn blossaði upp á ný. Þá var skipið dregið til Grundartanga þar sem olíu og olíumenguðum sjó var dælt úr því. Fernanda bútuð niður Ljósmynd/Hafsteinn Hilmarsson Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður VG, beindi þeirri spurningu til heil- brigðisráðherra á Alþingi í gærmorgun hvort ráðherrann hygðist hækka daggjöld til hjúkrunarheimila í þriðju umræðu fjárlaga, og hvort mála- flokkurinn yrði færður til sveitarfélaganna í núverandi ástandi. Ólafur benti á í spurningu sinni að daggjöld hefðu alls ekki haldið í við verðlag undanfarin ár. Kristján Þór sagði ekki hægt að hækka daggjalda- grunninn með jafnskömmum fyrirvara og nú gæfist. Ráðherrann svaraði því jafnframt að „það [væri] algjörlega glórulaust“ að flytja málefni aldr- aðra til sveitafélaganna í því ástandi sem málaflokkurinn er í. „Algjörlega glórulaust“ MÁLEFNI ALDRAÐRA Stjórn RÚV ákvað á fundi sínum í gær að auglýsa eftir nýj- um útvarps- stjóra. Eins var ákveðið að Bjarni Guð- mundsson, fram- kvæmdastjóri RÚV, yrði starf- andi útvarps- stjóri þar til niðurstaða liggur fyr- ir. Þetta kom fram á vef RÚV í gær. Ennfremur kemur fram á vef RÚV að auglýsingin verði birt í fjöl- miðlum á laugardag. Umsóknar- frestur verður til og með 6. janúar og fer Capacent með umsjón með ráðningarferlinu. Ekki náðist í stjórnarmenn RÚV í gærkvöldi þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir. Þá var ljósmyndara Morg- unblaðsins meinað að taka myndir af fundinum. Bjarni verður út- varpsstjóri um sinn Bjarni Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.