Morgunblaðið - 20.12.2013, Page 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013
Skeifunni 11 · Reykjavík · Símar: 530·2800 / 550·4444Síðumúla 9 · Reykjavík · Sími 530 2900
samsungsetrid.is
Háþróaðar og vandaðar
myndavélar frá Samsung
Samsung · NX 1000 { TIL BÆÐI SVÖRT OG HVÍT }
{ TIL BÆÐI SVÖRT OG HVÍT }
8 rammar á sek.
Direct Wi-Fi
I-Function linsa
Lokarahraði frá 1/4000 upp í 30 sek.
ISO 100-12800
Notar RAW, JPEG, EXIF, DPOF og PictBridge skráarsnið
Tekur upp 1080p (30fps) myndbönd (H.264) með hljóði
Hristivörn (DIS og OIS innbyggt)
TILBOÐSVERÐ: 129.900 kr
20.3 milljón pixlar
18-50 mm linsa fylgir
APS-CMOS Sensor
Samsung · NX 210
20.3 milljón pixlar
20-50 mm linsa fylgir
APS-CMOS Sensor
8 rammar á sek.
Direct Wi-Fi
I-Function linsa
Lokarahraði frá 1/4000 upp í 30 sek.
ISO 100-12800
Notar RAW, JPEG, EXIF, DPOF og PictBridge skráarsnið
Tekur upp 1080p (30fps) myndbönd (H.264) með hljóði
Hristivörn (DIS og OIS innbyggt)
Verð: 99.900 kr
Samsung · NX 300
20.3 milljón pixlar
18-55 mm linsa fylgir
3" hreyfanlegur AMO-LED
APS-CMOS Sensor
Direct Wi-Fi
I-Function
Smart Auto ( 14 atriði ) Panorama, 3D View
Innbyggt flass
Lokarahraði frá 1/8000 upp í 30 sek.
ISO frá 100 - 12800
Notar RAW, JPEG, EXIF, DPOF og PictBridge skráarsnið
Tekur upp 1080p (30fps) myndbönd (H.264) með hljóði
Hristivörn (DIS og OIS innbyggt)
TILBOÐSVERÐ: 179.900 kr
Þessar glæsilegu myndavélar frá Samsung bjóða allar upp á þráðlaust streymi mynda með WiFi-tækninni
beint inn í sjónvarpið og tölvuna – og þannig beinustu leið inn á samskiptamiðla internetsins; Facebook, Twitter, Flickr o.fl.
Einnig er hægt að nota Samsung spjaldtölvuna eða Galaxy símann til að stýra myndavélinni og taka myndir þráðlaust.
Gefðu háþróaða, vandaða og gullfallega jólagjöf!
20.3 milljón pixlar
18-55 mm linsa fylgir
Tekur allt 8.6 ramma á sekúndu
3.3" AMOLED Touch Skjár
APS-CMOS myndflaga
Direct Wi-Fi
Flass fylgir með
Lokarahraði frá 1/8000 upp í 30 sek.
ISO frá 100 - 25600
Notar RAW, JPEG, EXIF, DPOF og PictBridge
skráarsnið
Tekur upp 1080p (60fps) myndbönd
(H.264) með hljóði
Hristivörn (DIS og OIS innbyggt)
Þyngd: 284gr.
Verð: 149.900 kr
Samsung · NX 20
Samsung NX 20
hefur vakið mikla og
verðskuldaða athygli
og hlotið verðlaun og
fjölda viðurkenninga
fyrir háþróaða tækni
og vandaða hönnun.
COMPACT SYSTEM CAMERA
Samsung NX 300
2013-2014
Best
Product
ADVANCED COMPACT SYSTEM CAMERA
Samsung NX 20
2013-2014
Best
Product
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Orðræða samfélagsins um fatlað
fólk þarf að breytast. Slíkt gerist
þó ekki nema með viðhorfsbreyt-
ingu almennings.
Eitt mikilvæg-
asta verkefni
okkar er að ná
betur til þeirra
sem leiða um-
ræðu líðandi
stundar. Fatl-
aðir hafa sama
rétt og aðrir til
sjálfstæðs lífs.
Því er mikilvægt
að fjallað sé af þekkingu og virð-
ingu um þessi mál,“ segir Ellen
Calmon, formaður Öryrkjabanda-
lags Íslands.
Kröfugerðir
skila ekki árangri
Ellen, sem hafði verið fram-
kvæmdastjóri AD/HD-samtakanna
síðustu ár, var kjörin formaður
ÖBÍ nú í haust. Hafði verið vara-
formaður bandalagsins í eitt ár.
Ákvað að stíga skrefinu lengra og
bjóða sig fram til formennsku.
Taldi þörf á áherslubreytingum og
vildi leiða þær. Á aðalfundi í októ-
ber fékk Ellen 51% greiddra at-
kvæða og tók við keflinu af Guð-
mundi Magnússyni.
„Við þurfum að beita okkur
meira í þjóðfélagsumræðunni og
leggja fram raunhæfar lausnir í
þeim málum sem eru í brennidepli
hverju sinni,“ segir Ellen. „Við
eigum að vera gerendur í sam-
félaginu. Ég efast um að kröfu-
gerðir og yfirlýsingar um að hart
skuli mæta hörðu til dæmis í sam-
skiptum við ríkisvaldið skili ár-
angri. ÖBÍ hefur þunga til þess að
ná breytingum í gegn, en innan
vébanda 37 aðildarfélaga okkar
eru tæplega 30 þúsund fé-
lagsmenn eða nærri 9% þjóð-
arinnar.“
Aðstæður fólksins ólíkar
Ellen telur mikilvægt að fólk á
vettvangi ÖBÍ stilli betur saman
strengi sína svo baráttan verði ár-
angursríkari. Aðstæður fólksins
sem bandalagið starfar fyrir séu
eins ólíkar og það sé margt. Hafa
beri í hug að aðeins helmingur fé-
laga sé á örorkulífeyri frá Trygg-
ingastofnun ríkisins. Þó svo flestir
aðrir njóti velferðarþjónustu með
einhverju móti.
„Innan aðilarfélaga okkar eru
langveikir einstaklingar börn,
ungmenni og fullorðið fólk. Allt
eru þetta einstaklingar með ein-
hvers konar fötlun eða glíma við
raskanir en taka þó virkan þátt í
samfélaginu. Stór hópur liðs-
manna aðildarfélaganna getur því
varla talist til öryrkja. Því hefur
stundum verið nefnt hvort betur
færi að bandalagið fengi nýtt nafn.
Það mál þurfum við að skoða eins
og svo mörg önnur með það fyrir
augum að góðum málum megi
þoka áleiðis,“ segir Ellen.
Bætur fylgi
neysluviðmiðum
Í dag fær fólk sem er metið til
75% örorku bætur frá Trygg-
ingastofnun sem hið mesta geta
orðið um 180 þús. kr. á mánuði.
Til samanburðar má nefna að lág-
markstekjutrygging í dagvinnu
skv. kjarasamningum á almenna
markaðnum er rösklega 204 þús.
kr. Þá er líklegt að launþegi á lág-
markslaunum hækki í launum með
aldri og reynslu en sá sem lifir á
örorkulífeyri á litlar vonir um
betri tíð.
„Neysluviðmið stjórnvalda segja
að fólk þurfi minnst um 300 þús.
kr. á mánuði til að framfleyta sér
og auðvitað eiga laun og bóta-
greiðslur að fylgja því. Það er
áhyggjuefni að bilið milli lægstu
launa og örorkubóta hefur breikk-
að síðustu ár. Á fundi með Eygló
Harðardóttur félagsmálaráðherra
á dögunum komum við með þá til-
lögu að þetta bil yrði brúað í
áföngum með hækkun grunnlíf-
eyris,“ segir Ellen og heldur
áfram:
„Einhverjar skerðingar hafa
verið afnumdar nýlega og fyrir
það erum við þakklát en betur
þarf ef duga skal. Hvað varðar til-
lögur okkar um hækkun á grunn-
lífeyri fengum við þau svör að
svigrúmið væri ekki til staðar.
Hins vegar hefur umræðan verið
opnuð. Í umsögn okkar um fjár-
lagafrumvarpið í haust bentum við
á lækkun tekjuskatts í grunnþrepi
myndi henta fleirum. Tillagan
fólst í því að lækka tekjuskatt um
0,3% í miðþrepinu og 0,5% í
grunnþrepinu, þar sem flestir okk-
ar umbjóðenda eru. Slík útfærsla
hefði nýst okkar fólki vel og engu
breytt um afkomu ríkissjóðs.“
Aðhald er
þýðingarmikið
Aðhald gagnvart stjórnvöldum
er einn af þýðingarmestu þáttum í
starfi ÖBÍ, að mati Ellenar. Hún
nefnir að bandalagið hafi gert fjöl-
margar athugasemdir við fjárlaga-
frumvarp næsta árs. Miðað sé við
að starfsendurhæfingarsjóður fái
ekki lengur fjármagn úr ríkissjóði
og að Þroska- og hegðunarstöð
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
hafi úr meiru að spila til að stytta
biðlista. Þangað sé leitað grein-
ingar ef börn eru hugsanlega með
athyglisbrest og ofvirkni. Ef ekk-
ert er að gert þurfi þorri þessara
barna á þjónustu barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítalans að
halda sem sé mun dýrari leið. Þá
sé ekki gert ráð fyrir fjármunum
til að raungera framkvæmdaáætl-
un í málefnum fatlaðra. Með henni
hafi verið ætlunin að nálgast
markmið samnings Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
– sem haldist í hendur við það
markmið ÖBÍ að treysta stöðu
umbjóðenda sinna í orði og verki.
Þurfum að vera ger-
endur í samfélaginu
Morgunblaðið/Ernir
Hjólastólabolti Ríflega 30 þúsund manns eru í ÖBÍ. Aðstæður fólksins eru eins mismunandi og það er
margt, en rauði þráðurinn í réttindabaráttunni er að geta tekið þátt í samfélaginu og öllu daglegu lífi.
Breytt umræða er baráttumál Ellenar Calmon nýs formanns ÖBÍ Nýtt
nafn kemur til greina Grunnlífeyrir og lægstu laun verða að fylgjast að
Ellen Calmon
Stundum er sagt að Öryrkjabandalag Íslands
sé eins og verkalýðsfélag án samningsréttar.
„Við getum þrýst á en ekki farið í til dæmis
verkfallsaðgerðir eða aðrar skærur. Besta
leiðin til árangurs í dag er að koma með já-
kvæðan tón inn í umræðuna og leggja fram
sanngjarnar og raunhæfar tillögur,“ segir Ell-
en Calmon. Hún vill samstarf við t.d. ASÍ og í
samtölum við forystumenn þess hafi hún
skynjað samhljóm. Húsnæðismál formanni
ÖBÍ áhyggjum enda sé þröng sé á leigumark-
aði og verð rokið upp úr öllu valdi. Þá séu
langir biðlistar sé eftir leiguíbúðum hjá
Brynju sem leigufélag ÖBÍ.
„Við þurfum líka samstarf við vinnuveit-
endur,“ segir Ellen. „Leið atvinnulausra út á
vinnumarkaðinn hefur verið greidd. En við
þurfum líka að bjóða fötluðu fólki sambæri-
legan valkost. Og ég trúi ekki öðru en forysta
atvinnulífsins hafi áhuga á slíku og muni
leggja lið. Í líklega hverri einustu fjölskyldu á
Íslandi eru langveikir, fatlaðir eða fólk sem
glímir við raskanir í einhverri mynd. Þörfin á
úrræðum ætti öllum að vera ljós.“
Árangur með raun-
hæfum tillögum
ATVINNU- OG HÚSNÆÐISMÁL
BRÝN VIÐFANGSEFNI
Nauthólsvík Börn í sumarbúðum í Reykjadal.