Morgunblaðið - 20.12.2013, Qupperneq 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda
og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
ABU DHABI| Við
höfum búið til sýnd-
arheim af stærð-
argráðu sem er ofar
okkar skilningi. Til
þess að henda reiður á
umfanginu getum við
íhugað eftirfarandi:
Árið 2012 skapaði nýi
grunnstaðall í netsam-
skiptum, IPv6, meira
en 340 billjón billjón
billjónir (3,4x1038) IP
númer – það er, í kringum 4,8x1028
IP-tölur fyrir hvern einstakling á
jörðinni. Það ætti að vera nóg til
þess að þjóna þeim fimm milljörðum
tækja sem tengjast netinu í dag, og
þeim 22 milljörðum tækja sem spáð
er að verði í notkun árið 2020.
Það erfiðasta við þessa spreng-
ingu í tengingarmöguleikum er ekki
það að búa til getuna, heldur hvernig
eigi að stýra henni. Við verðum að
svara djúpstæðum spurningum um
það hvernig við lifum. Ættu allir að
vera varanlega tengdir við allt? Hver
á hvaða gögn, og hvernig á að gera
upplýsingar opinberar? Getur eða
ætti notkun gagna að vera stjórnað,
og þá hvernig? Og hvaða hlutverki
ættu hið opinbera, viðskiptalífið og
venjulegir netnotendur að gegna við
að svara þessum spurningum?
Það er ekki lengur hægt að leiða
þessar spurningar hjá sér. Á sama
tíma og hinn stafræni heimur stækk-
ar, þá fjölgar dæmum um trún-
aðarbrest og misnotkun persónu-
legra gagna. Eftirlit hefur aukið á
almennan óróa – og jafnvel ofsókn-
aræði – um ríkisstofnanir. Einkafyr-
irtæki sem versla með persónuleg
gögn hafa leitt til stofnunar hreyf-
inga sem vilja „ná aftur einkalífinu“.
Eins og einn fulltrúi sagði nýlega í
umræðum hjá Alþjóðaefnahags-
ráðinu: „Því tengdari sem við urðum,
því meira af einkalífi okkar þurftum
við að fórna.“
En við getum mótað sýndarheim
framtíðarinnar á þann veg að gögnin
okkar verði örugg, traust aukist á ný
og bjóði velkomna nýja meðlimi í
milljarðatali. Til þess að tryggja ör-
yggi þurfa þeir mörgu sem taka þátt
í netinu að búa til einhvers konar
kerfi fyrir bætta stjórnarhætti.
Samtök á borð við Netsamtökin um
úthlutuð heiti og númer
(ICANN) þurfa að vera
alþjóðlegri í hugsun.
Á sama tíma verður
að forðast of mikið
reglugerðafargan eða
yfirstjórn stjórnvalda.
Það gæti þýtt að það
þyrfti að leggja IANA
niður í nokkrum þátt-
um, til þess að koma í
veg fyrir að stofnunin
falli undir yfirvald
milliríkjastofnana, eins
og sum ríki hafa kraf-
ist.
Stjórnvöld hafa vissulega mik-
ilvægt hlutverk. En að veita þeim of
mikla stjórn myndi nær örugglega
takmarka nýsköpun, auka kostnað,
og líklega útiloka mikilvægar gagn-
rýnisraddir. Betri nálgun, sem
myndi auka traust almennings á
kerfinu, væri að koma á fót fjöl-
breytilegum hópi umsjónaraðila með
mörgum hagsmunaaðilum.
Einn slíkur aðili er viðskiptalífið.
Nú þegar persónuleg gögn okkar
eru orðin að jafnverðmætum eig-
inleika, eykst þrýstingur á fyrirtæki
að þróa viðskiptamódel á netinu sem
verndar einkagögn notenda í staðinn
fyrir að hagnýta sér þau. Netnot-
endur vilja sérstaklega hindra fyr-
irtæki í að rugla viðskiptavini sína
með ruglings- og lagatæknilegum
þjónustusamningum til þess að geta
fengið og selt áfram gögn þeirra.
Hægt væri að takmarka þessa
tegund af misnotkun með því að búa
til lagalega og samfélagslega samn-
inga til þess að stýra því hvernig
leyft sé að nýta gögn. Ein hugmynd,
sem vísindamaðurinn Marc Davis
hefur bryddað upp á er að teikna
upp staðlaðan, læsilegan notenda-
samning í sjö punktum sem gefi fólki
vald yfir því hvernig einkagögn
þeirra séu notuð. Önnur er að leyfa
notendum sjálfum að velja úr fyr-
irframgefnum möguleikum um það
hversu miklu af einkamálum sínum
þeir séu tilbúnir að deila.
En spurningin um traust snýst
ekki bara um lagarammann. Fyr-
irtæki verða að finna leiðir til þess að
kynna nýja tækni og stunda viðskipti
á vinsælan hátt meðal viðskiptavina
sinna og heldur trausti þeirra.
(Vissulega er það svo að í heimi þar
sem samskipti við vélmenni, þrívídd-
arprentun, örtækni og nýting leir-
steins til olíuframleiðslu tíðkast,
þurfa öll nýskapandi fyrirtæki að
spyrja sig þessarar grundvall-
arspurningar.)
Að lokum, þá verðum við að íhuga
mannlega þáttinn í sýndarheimi okk-
ar. Ofurtengingarmöguleikar búa
ekki bara til ný viðskiptatækifæri;
þeir breyta einnig hvernig venjulegt
fólk hugsar um líf sitt. Heilkennið
sem kennt er við FoMo (óttann við
að missa af einhverju) endurspeglar
kvíða yngri kynslóðar sem finnst það
vera nauðsynlegt að festa og birta
strax allt sem þau gera og sjá.
Á kaldhæðnislegan hátt hefur
þessi ofurtenging gert okkur að
meiri eylöndum, þar sem við lifum
lífi okkar í sífellt meiri mæli í gegn-
um raftækin okkar. Taugavís-
indamenn trúa því að þetta hafi jafn-
vel breytt því hvernig við tengjum
okkur við hvert annað í raunheim-
inum.
Kjarni málsins er þörfin á að
tryggja það að í heimi þar sem mörg,
ef ekki öll, af mikilvægustu smáat-
riðunum í lífi okkar – þar með talið
sambönd okkar – lifa í sýndareilífð,
hafi fólk áfram, eða fái á ný, ein-
hverja stjórn yfir sínu nettengda
sjálfi. Á meðan heimur gleymsk-
unnar hefur hugsanlega horfið, get-
um við mótað þann nýja á þann hátt
sem hentar okkur, frekar en að það
þyrmi yfir okkur. Mikilvægasta hlut-
verk okkar er að búa til stafræna
lífshætti sem styðja við þau siðferð-
isgildi sem við búum þegar við, þar
sem öryggi, traust og sanngirni eru
höfð að leiðarljósi.
Réttindi hins stafræna manns
Eftir Rod A.
Beckstrom »Mikilvægasta hlut-
verk okkar er að búa
til stafræna lífshætti
sem styðja við þau sið-
ferðisgildi sem við búum
þegar við, þar sem ör-
yggi, traust og sann-
girni eru höfð að leið-
arljósi.
Rod Beckstrom
Rod Beckstrom
Höfundur er aðalöryggisráðgjafi
Samsung Electronics USA og for-
maður Alþjóðadagskrár Alþjóðaefna-
hagsráðsins um framtíð netsins.
© Project Syndicate/World Economic
Forum/Institute for Human Sciences,
2013.www.project-syndicate.org
VINNINGASKRÁ
34. útdráttur 19. desember 2013
364 10281 19606 29512 39617 49901 60758 73527
440 10472 20073 29614 39637 50415 60791 73586
577 10900 20522 29954 39921 50611 60918 73677
734 10936 21388 30052 40594 51206 61213 73737
1302 11592 22466 30157 41956 51400 61273 73853
1333 11657 22991 30204 42174 51729 61457 73939
1510 12063 23358 30208 42466 51874 61886 74050
1559 12593 23707 30228 43244 52115 62061 74387
1565 12622 23839 30372 43498 52209 62786 74819
1667 13004 24214 30642 43537 52395 62914 76424
3089 13371 24523 30921 44170 52509 63128 76484
3137 13538 24658 31405 44278 52917 63129 76711
3298 13639 24663 32094 44496 53175 63370 76877
3500 14199 24873 32433 44845 53867 63903 77450
3792 14317 25202 32801 44943 54345 64331 77939
3983 14635 25256 33019 45161 54488 65222 78230
4831 15093 25554 33720 46239 55162 65448 78267
4898 15317 25830 33897 46303 55315 65499 78653
5506 15474 26112 34050 46549 55724 65802 79097
5708 15568 26653 34124 46778 57138 66669 79300
5785 15792 26816 34126 47060 57219 67567 79466
5845 16368 26910 34478 47897 57307 68165 79655
5951 16413 27021 34539 48050 57528 68860 79666
6079 16722 27031 34658 48082 58152 69421 79685
6240 17413 27498 34820 49016 59094 69431 79858
6297 17547 27533 34954 49161 59168 69588 79931
7176 17712 27691 36402 49269 59433 70511
7557 17965 28782 37032 49380 59718 71092
8454 18271 29049 37119 49453 59837 72589
8464 18756 29198 37605 49651 60062 72722
9483 18820 29226 37869 49764 60281 73429
9557 19500 29344 37877 49818 60745 73431
20 16179 25156 33637 46575 56529 63609 72246
1642 16660 25654 33638 46664 56666 63723 73350
2175 16869 26463 34916 46825 57074 63933 74751
2369 17047 26483 35108 47997 57285 64060 74792
2376 17165 26654 38239 48416 58106 64524 75498
2644 17535 26902 38625 49285 58330 64704 77740
3879 18128 27346 38687 49713 58878 64713 79035
5510 18515 27696 38940 51007 59330 65560 79047
11087 18983 28216 43237 51044 59700 68033 79383
13720 19538 30748 43675 52689 61021 68818
13852 21725 30840 45350 53166 61035 71343
15707 22865 30991 45997 55827 62729 71358
15714 23104 32029 46210 56244 63368 72163
Næstu útdrættir fara fram 27. des. 2013 og 2. jan. 2014
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
13250 34252 59594 68467
A ð a l v i n n n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 3 0 6 4
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1253 10090 28088 35557 55822 67827
1679 16445 29616 38560 57211 72297
2698 17239 29668 38661 64486 77950
8778 22029 32983 50850 67353 78305
Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | act@actehf.is
Jólagjafir
fyrir hann
Rakvél
Lithium
rafhlaða
Rakvél
Rakvél
Lithium
rafhlaða
Hárklippa
Lithium rafhlaða
Hárklippa
Skeggsnyrtir
Lithium rafhlaða
Alhliða snyrtitæki
Lithium rafhlaða
Fæst í öllum helstu raftækja-
verslunum á Íslandi