Morgunblaðið - 20.12.2013, Page 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013
Upplýsingar um sölustaði hjá
Fullkomnar
krullur
HÁR
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305
3 hitastillingar, 3 tímastillingar, kraftmikið hitakerfi.
Fáðu fullkomnar krullur sem endast lengi.
Gunnar Birgisson,
bæjarfulltrúi í Kópavogi,
bendir á í grein sem
hann ritar í blaðið í gær
að verulegur skortur sé
á félagslegu leigu-
húsnæði í Kópavogi eins
og reyndar fleiri sveit-
arfélögum. Hann kvartar
undan aðgerðarleysi fé-
laga sinna í bæjarstjórn
en tillaga hans um að
byggja félagslegar leigublokkir fékk
dræmar undirtektir að hans sögn og
var svæfð í einni af mörgum nefnd-
um sem hans eigin meirihluti hefur
stofnað um ýmis mál sem ekki hefur
náðst samstaða um. En Gunnar seg-
ir ekki söguna alla og vill undirrituð
bæta við því sem upp á vantar.
Samfylkingin vill
byggja leiguhúsnæði
Samfylkingin í Kópavogi hefur
talað fyrir byggingu leiguhúsnæðis
á vegum bæjarins frá síðustu kosn-
ingum. Þannig höfum við viljað
bregðast við þeirri brýnu þörf sem
hefur skapast eftir leiguhúsnæði á
hinum almenna markaði, ekki bara
á hinum félagslega grunni. Við í
Samfylkingunni erum því hjart-
anlega sammála Gunnari og fögum
því að hann skuli sjá mikilvægi þess
að hið opinbera grípi inn í þegar
markaðurinn stendur sig ekki.
En tillaga Gunnars miðar að því
að byggja félagslegar leigublokkir
þar sem allar íbúðirnar í hverri ein-
ingu verði leigðar út á félagslegum
grunni. Það er í algjörri andstöðu
við þá stefnu sem flest sveitarfélög í
landinu hafa, að félagslegum leigu-
íbúðum sé dreift sem mest um bæ-
inn til að forðast „félóstimpilinn“.
Þannig höfum við að jafnaði keypt
að hámarki 1 íbúð í hverjum stiga-
gangi í flestum hverfum bæjarins.
Litlu munar að við náum sam-
an
En við Gunnar getum hæglega
náð saman. Á þann hátt að byggja
blokkir sem verða tímabundið í eigu
bæjarins. Þær íbúðir verði leigðar
út á almennum leigumarkaði og ein-
ungis ein íbúð í hverjum stigagangi,
mögulega tvær (í ljósi aðstæðna)
verði leigðar út á hinum félagslega
grunni. Um leið og fleiri íbúðir
koma inn á almenna leigumarkaðinn
mun það lækka leiguverð og draga
úr þeirri miklu um-
frameftirspurn sem
er eftir leigu-
húsnæði. Það mun
líka koma þeim
tekjulægstu til góða
þar sem það mun þá
að sama skapi draga
úr eftirspurn eftir
félaglegu leigu-
húsnæði.
Nú reynir á …
Það er hins vegar
hárrétt hjá athafna-
manninum Gunnari að hinn litlausi
og verklitli bæjarstjóri, Ármann Kr.
Ólafsson, er ekki maður mikilla
verka. Hann er fyrirliði í valda-
bandalagi þar sem lítil samstaða
ríkir. Eins og Gunnar bendir rétti-
lega á er lítill vilji hjá félögum hans
að koma að málefnum leigjenda. En
það eru fleiri sem vilja láta verkin
tala en Gunnar Birgisson. Samfylk-
ingin, VG og Næstbesti flokkurinn í
bæjarstjórn Kópavogs hafa ítrekað
léð máls á málefnum leigjenda og
ber lítið í milli svo við getum náð
meirihluta í bæjarstjórn um verk-
efni af þeim toga sem Gunnar nefn-
ir. Nú reynir á, Gunnar Birgisson –
hefurðu kjark þegar á reynir að
ganga gegn félögum þínum í meiri-
hlutanum og móta með okkur hin-
um tillögu um byggingu leiguhús-
næðis í Kópavogi? Eigum við ekki
bara að láta verkin tala?
Nú erum við
sammála, Gunn-
ar Birgisson
Eftir Guðríði
Arnardóttur
»Nú reynir á, Gunnar
– hefurðu kjark þeg-
ar á reynir að ganga
gegn félögum þínum og
móta með okkur hinum
tillögu um byggingu
leiguhúsnæðis í Kópa-
vogi?
Guðríður Arnardóttir
Höfundur er kennari og bæjarfulltrúi
í Kópavogi.
Magma Energy var
yfirtekið af Plutonic
Power, hlutir 2,38 á
móti 1, Plutonic í vil,
og nýtt fyrirtæki, Al-
terra Power, sett á
stofn 7. mars 2011.
Eftir þetta eru skráð
til eignar hjá Alterra,
ásamt öðru, tvö gufu-
aflsfyrirtæki á Íslandi
sem Magma Energy
átti. Hvað átti skúffufyrirtækið
Magma eftir þetta?
Stuttu eftir þennan samruna
kaupa lífeyrissjóðirnir okkar í
Magma Energy, eða 18. apríl 2011,
fyrir átta milljarða.
Hvað voru lífeyrissjóðirnir að
kaupa? Það er spurning sem hvílir á
mér en hvernig getur OR leyft sér
að selja ruslhlutabréf til Landsbréfa
og hvað voru lífeyrissjóðirnir okkar,
þ.e. 14 sjóðir, að kaupa og hvernig
geta þeir leyft sér að stofna fyrir-
tæki sem heitir Jarðvarmi slhf.?
Hinn 18. apríl 2011 settu þeir rúma
átta milljarða í fyrirtæki til að kaupa
hlut í Magma, sem var ekkert og er
ekkert í dag nema
kannski skúffufyr-
irtæki? Getur einhver
svarað þessu?
Er ekkert eftirlit
með þessum stóru fyr-
irtækjum og hvað þá
Alþingi eða ónefndur
maður þar? Geta þessi
fyrirtæki stolið al-
mannafé að vild og skil-
að engu til baka og í
þessu tilfelli munu aldr-
ei gera? Reikni hver
sem getur en það verður aldrei
neinn þjóðarhagur í neinu formi.
Landsbréf og OR – hvað
er OR að selja ykkur?
Eftir Valdimar
Samúelsson
Valdimar Samúelsson
»Hvernig getur Orku-
veita Reykjavíkur
leyft sér að selja verð-
laus hlutabréf í Magma,
sem er í mesta lagi bara
nafn á sama skúffufyr-
irtækinu og áður?
Höfundur er rithöfundur.
Mikið er fjallað um
þann atburð þegar
maður setti svínshausa
á lóð við Suðurlands-
braut sem múslimar
fengu úthlutað fyrir
mosku af borg-
arstjórninni.
Umræðan er flest í
þá átt að fordæma
verknaðinn. Fólk færir
lítil rök fyrir hneyksl-
un sinni og dómar margra bera
keim af rasistahætti og fordómum í
garð þeirra sem leyfa sér að vara
við þeim hugsunarhætti að allt er-
lent sé gott.
Eins og sönnum Íslendingi sæmir
hafði sá sem stóð fyrir uppá-
komunni kjark til að taka á sig alla
ábyrgð og það er vel því ekki eru
allir þeir sem eru á móti því að
moska sé reist á Íslandi sammála
mótmælum af þessu tagi. Ég þekki
ekki listamanninn en eitthvað gekk
honum til með „gjörningnum“ á
„svínshöfðatúni“ en óþarfi finnst
mér að fólk gangi af göflunum við
þetta og beri sig verr vegna atviks-
ins en múslimarnir sjálfir gera.
Ég kýs að líta á þetta sem list-
rænan gjörning þar sem svínshaus-
arnir standa fyrir menningar-
árekstra ólíkra menningarheima og
blóðug bók kóransins fyrir ofsóknir
múslima á hendur kristnum mönn-
um og öðrum ekki-múslimum, í
löndum þar sem þeir fara með land-
stjórn.
Menning kristinna manna og
múslima er með öllu ósættanleg og
verður alltaf. Það sýnir saga síðustu
14 alda. Jesús Kristur kom í heim-
inn og lét líf sitt á krossi til að kalla
menn frá múslimskri trú og öðrum
heiðindómi. Jesús kallar menn frá
hefndarskyldu og ofríki til friðar og
sátta. Sumir virðast halda að Jesús
hafi komið í heiminn til að sýna
hefndum og ofríki umburðarlyndi
en ég hef þá trú að það sé skrattinn
sem kann að meta „kærleika“ af því
tagi.
Múslimar hafa engu gleymt og
menning þeirra ekkert breyst síðan
á dögum Tyrkjaránsins. Þeir
brenna kirkjur og Biblíur aldrei
meira en nú og þeim sem ganga af
trú þeirra er útskúfað. Ef á Íslandi
störfuðu metnaðarfullir fréttamiðlar
þættu rannsóknir og frásagnir af
slíku ofbeldi gott fréttaefni, en svo
virðist sem flestar útvarps- og sjón-
varpsstöðvar hérlendis dauðhreinsi
fréttaflutning sinn þegar múslimar
eiga í hlut. Margar bækur eru til á
íslensku eftir konur sem flúið hafa
frá heimalöndum sínum þar sem
múslimar ráða. Bækurnar innihalda
hrikalegar frásagnir ofríkis og mis-
kunnarleysis þar sem menning
múslima er afhjúpuð.
Hvers vegna er reynt
að þagga viðvaranir
þessara hugrökku
kvenna niður? „Eigið
engan hlut í verkum
myrkursins, sem ekk-
ert gott hlýst af, held-
ur flettið miklu fremur
ofan af þeim“ (Efes. 5:
11). Ítalir hafa langa
reynslu af múslimum
og taka á móti miklum
fjölda flóttamanna frá
löndum sem múslimar
stjórna. Erlendar fréttir herma að
Ítalir hafa skilgreint íslam sem póli-
tík einræðisviðhorfa, líkt og nas-
isma og kommúnisma. Íslensk
stjórnvöld lifa og hrærast í óendur-
goldnum trúfrelsisviðhorfum og
virðast ekkert vilja læra af reynslu
annarra þjóða eða sögunni. Dýrmæt
menning Íslendinga byggist mjög á
kristnum gildum og er ekki til að
leika sér með. Óraunsæ fjölmenn-
ingarviðhorf eru vísasta leiðin til
svika við menningu og lýðræði þjóð-
arinnar.
Núverandi borgarstjórn Reykja-
víkur verður í framtíðinni metin
sem örlagavaldur þess að hafa út-
hlutað lóð undir mosku. Út um
glugga ráðhússins horfa borgarfull-
trúarnir á hvernig mávarnir eru að
eyðileggja andasamfélagið á tjörn-
inni, sem í líkingunni er ekki ósvip-
að þeim yfirgangi sem múslimar
sýna í vestrænum samfélögum.
Kannski hefði gjörningurinn haft
meiri listrænan boðskap ef hann
hefði verið gerður fyrir framan ráð-
hús Reykavíkur á ísilagðri tjörninni.
Það eru náttúrlega föðurhús valds
og ákvarðana sem bera skömm og
heiður þegar til framtíðar er litið.
Mér virðist fjölskrúðugt menning-
arlíf Reykjavíkur hafa fengið góðan
liðsmann og verðugt verkefni þætti
mér að borgarstjórnin tæki það til
skoðunar að gera „kúnstner“ svíns-
hausanna að næsta borgarlista-
manni.
Ég bið Íslendingum Guðs friðar.
Svínarí
Eftir Ársæl
Þórðarson
Ársæll Þórðarson
»Eins og sönnum
Íslendingi sæmir
hafði sá sem stóð fyrir
uppákomunni kjark
til að taka á sig alla
ábyrgð og það er vel
Höfundur er húsasmiður.
mbl.is
alltaf - allstaðar
Valgarð Blöndal varði
jólasveinatitilinn
Ragnar Magnússon og Valgarð
Blöndal eru Jólasveinar Bridsfélags
Reykjavíkur 2013. Valgarð endurtók
sama leik og í fyrra þegar hann sigr-
aði einnig.
Úrslitin:
Ragnar Magnúss. - Valgarð Blöndal 443
Guðm. Sveinss. - Egill R. Guðjohnsen 438
30. desember verður minningar-
mót um þá höfðinga Ásmund Pálsson
og Símon Símonarson sem létust
báðir á árinu.
Aðeins komast að 56 pör í mótið,
svo það er um að gera að skrá sig
sem fyrst.
Hörkukeppni í sveitakeppninni
í Gullsmáranum
Að loknum 11 umferðum af 13 í
sveitakeppni félagsins er staða
efstu sveita þessi:
Sveit Sigurðar Njálssonar 218 stig
Sveit Arnar Einarssonar 213 stig
Keppni lýkur fimmtudaginn fyrir
jól og verður þá boðið upp á jólakaffi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is