Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013 ✝ Anna Val-gerður Ein- arsdóttir fæddist 4. ágúst 1920 á Ekru í Stöðvarfirði. Hún lést á Landspít- alanum í Reykjavík 9. desember 2013. Foreldrar henn- ar voru Einar Benediktsson, út- vegsbóndi og sím- stöðvarstjóri, f. 9. apríl 1875, d. 6. nóvember 1967, og Guðbjörg Erlendsdóttir hús- móðir, f. 5. nóvember 1886, d. 25. júlí 1978. Systkini Önnu voru Þorbjörg, f. 16. ágúst 1915, Björg, f. 23. september 1905, d. 19. mars 1993, Elsa Kristín, f. 4. desember 1908, d. 23. október 1937, Ragnheiður Sigurborg, f. 26. júní 1912, d. 10. desember 1929, Benedikt, f. 7. mars 1918, d. 1. apríl 2001, Björn Óskar, f. 10. maí 1924, d. 7. jan- úar 1993, og óskírð- ur, f. 1. desember 1923, d. 6. desem- ber 1923. Hinn 24. desem- ber 1952 giftist Anna Baldri Helga- syni rafmagns- tæknifræðingi frá Reykjavík, f. 12. nóvember 1922, d. 2. mars 2013. Synir Önnu og Baldurs eru tveir: 1) Helgi Einar, f. 1953, kvæntur Stellu Sigríði Bene- diktsdóttur. 2) Ásbjörn Garðar, f. 1956, kvæntur Sjöfn Tryggva- dóttur. Útför Önnu verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, 20. des- ember 2013, og hefst athöfnin kl. 11. Þá ertu farin elsku yndislega amma mín, mikið á ég eftir að sakna þín. Við náðum alltaf svo vel saman og mér fannst svo gott að koma til þín alveg frá því ég var lítið barn. Það var alltaf nóg að bralla í Voga- tungunni fyrir unga krakka og ef ég var ekki að máta kjólana þína þá gat ég eytt klukkustundum saman í búðarleik því ég man þú áttir svo mikið af sniðugu dóti og þá sérstaklega man ég eftir pen- ingakassanum sem var einstak- lega spennandi svo ég gæti nú haft leikinn sem raunverulegast- an. Í hvert skipti sem ég fór í sund í Kópavogslaug á yngri árum kom ég við hjá þér og afa á heimleið og alltaf tókstu á móti mér með ný- bakaðar bollur eða kökur og þeg- ar ég var heppin varstu búin að taka bláber úr frystinum og við fengum okkur þau saman með sykri og rjóma út á. Ég vissi nú alltaf hvað okkur þótti þetta gott en mikið gladdi það mig í vetur þegar ég kom til þín á spítalann með glæný bláber og rjóma og sykur til að setja út á og þú sagðir að þetta væri svo gott, þú fengir bara sælutilfinningu alveg niður í tær. Einnig hafði ég ofsalega gaman af pítsu fundunum okkar, þú baðst mig nokkrum sinnum að koma til þín með pítsu og kók og mér fannst það svo hrikalega sætt að amma mín væri spennt fyrir að panta pítsu að ég sagði alltaf já jafnvel þó ég væri nýbúin að borða bara til að njóta þessara stunda með þér. Elsku amma mín, þú munt allt- af eiga stóran stað í hjarta mínu og ég tel mig vera afar heppna að við fengum 33 ár saman það eru ekki allir svo heppnir að hafa ömmu sína hjá sér allan þennan tíma. Þú ert algjör hetja í mínum augum og stóðst svo fallega við hlið afa í gegnum hans veikindi öll árin og það kom aldrei til greina að þú færir ekki til hans. Þú sast hjá honum dag eftir dag og last fyrir hann og passaðir upp á að honum liði sem best, hann var svo sannarlega heppinn að eiga þig. Nú ertu loksins komin til hans rúmum níu mánuðum eftir að hann lést og ég samgleðst ykkur innilega að geta verið aftur saman þó að ég sakni ykkar beggja afar mikið. Ég læt þetta ljóð vera mín hinstu orð til ykkar elsku amma og afi. Um síðir, þegar ævin dvín við mætast munum svo aftur elsku ástin mín við ströndina á englalandi, þar sem fegurðin býr og eilíf sólin við okkur skín. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Anna Birna Helgadóttir. Anna fæddist og ólst upp á smábýlinu Ekru, Stöðvarfirði. Hún var næstyngst sjö systkina sem komust á legg. Pabbi hennar, Einar Benediktsson, var sjávarút- vegsbóndi sem átti lítinn mótor- bát, tvær kýr, einn hest og 40 ær. Hann missti fyrri konu sína af barnsförum en seinni kona hans, Guðbjörg Erlendsdóttir, gekk dóttur hans í móðurstað. Faðir Guðbjargar bjó á Kirkjubóli en vildi ekki láta hana hafa land úr jörðinni. Þá leitaði Guðbjörg til Þorbjargar ömmu sinnar sem átti með réttu Kirkjuból, en á þeim tíma voru ekkjur einu konurnar sem höfðu yfir fjármunum að ráða. Hún féllst á að láta dóttur- dóttur sína fá dálítinn skika úr Kirkjubólslandinu. Ekra átti slægjur uppi í svo- kölluðum Kúabotnum. Eitt sum- arið þegar Einar var þar við slátt bað Guðbjörg þau Þorbjörgu 10 ára og Benedikt 8 ára að fara til hans með nesti, smurt brauð, kökusneið og heitt kaffi á flösku sem stungið var í ullarsokk. Anna, sem þá var 5 ára, vildi fá að fara með og elti eldri systkini sín upp túnið. Þau skipuðu henni að fara heim en þá lagðist hún niður og þóttist vera að tína ber en hljóp á eftir þeim þegar þau héldu áfram upp brekkuna. Alltaf þegar henni sýndist þau horfa til baka lagðist hún niður milli þúfna og stóð upp að nýju þegar þau héldu áfram. Þannig elti hún þau upp Tjarnar- dalinn, upp með Innri ánni og áfram upp í Kúabotna. Á leiðinni gerði úrhellisrigningu með hagléli þannig að þau voru öll orðin hold- vot þegar þau hittu pabba sinn. Ekki var um annað að ræða en að flýta sér heim án þess að borða nestið. Einar tók Önnu litlu og stakk henni inn undir peysuna sína og bar hana þannig í fanginu alla leið niður í bæ. Fyrir nokkrum árum fékk ég áhuga á að rita sögu ættmenna minna. Þá var orðið of seint að spyrja foreldra mína og öll föður- og móðursystkini mín látin nema Anna. Ég bað hana að rifja upp allt sem hún myndi um gamla tíma. Brátt kom í ljós að minni hennar var óvenju gott. Þegar ég bar undir hana skemmtisögu úr ættinni sem færð hafði verið í stíl- inn brást hún hart við: „Hver sagði þetta?“ en sagði síðan: „Mér leiðast svona sögur. Ég vil bara hafa það sem er satt og rétt.“ Þannig gat ég ekki fengið betri heimildarmann en Önnu um lífið á Stöðvarfirði á fyrri hluta síðustu aldar. Síðan höfum við Anna átt marga ánægjustundina saman. Anna var, eins og fleiri af Ekru- ættinni, hrein og bein, kom til dyr- anna eins og hún var klædd og vildi enga sýndarmennsku. Hún var einstaklega góð við börn og þá sem minna máttu sín. Undirferli og fals var ekki til hjá henni. Hennar aðalsmerki var heiðar- leiki, sannleikur, trygglyndi og skyldurækni. Þegar mér var til- kynnt lát hennar hugsaði ég til hennar með þakklæti fyrir sam- veru okkar, hlýja handtakið henn- ar og um allar mikilvægu upplýs- ingarnar sem hún hafði gefið mér. Eins gladdist ég yfir að hún skyldi hafa fengið langt og hamingjuríkt líf, notið þeirrar blessunar að vera við góða heilsu í 93 ár, að hafa átt góðan eiginmann og tvo syni og aðstandendur sem létu sér annt um hana til hinsta dags. Björn Björnsson. Kær móðursystir mín, Anna Einarsdóttir, er látin. Anna frænka eins og ég kallaði hana alltaf er síðust systkinanna átta frá Ekru í Stöðvarfirði til að kveðja þessa jarðvist. Á þeim tímamótum eru kaflaskil í lífi okk- ar allra sem erum af þessu góða fólki komin. Þegar við nú kveðjum Önnu frænku með sorg í huga kveðjum við einnig þau hin með stolti og þakklæti fyrir þá arfleifð sem þau eftirlétu okkur. Anna ólst upp fyrir austan og þótti vænt um uppruna sinn. Hún var liðtæk í flest verk á sinni heimaslóð, á símstöðinni á Ekru, í heyskap, við heimilisstörfin á Ekru eða „lánuð“ á aðra bæi þar sem aðstoðar var þörf. Líka við af- greiðslu í kaupfélaginu. Alltaf kát og fjörug og þá strax með munn- inn fyrir neðan nefið sem er ein- kenni á þessum kvenlegg. Eins og um marga af hennar kynslóð lá leiðin úr fásinninu í sveit og þorpi til höfuðstaðarins þar sem fleiri og betri tækifæri gáfust til atvinnu, menntunar og ævintýra. Anna varð því snemma sönn Reykjavík- urmær og vann til dæmis um skeið í Ingólfs Apóteki sem mér fannst alltaf sveipað ævintýra- ljóma. Hún kom á þeim árum stundum í heimsókn til okkar austur á Stöðvarfjörð, mikill au- fúsugestur, ekki síst okkar krakk- anna. Oftast kom hún færandi hendi og sjálf bar hún með sér framandi ilm og spennandi sögur. Ég man eftir einu skipti þegar Anna gisti hjá okkur og pabbi var ekki heima. Þær mamma, sem voru fjarska góðar vinkonur, lágu saman í myrkrinu í hjónarúminu og hvísluðust á og Anna sagði sög- ur að sunnan. Lítil stúlka lá í næsta rúmi og lét sem hún svæfi en notaði öll skilningarvit til að fylgjast með spennandi frásögn- inni. Anna var mikil barnakona frá fyrstu tíð. Hún elskaði börn og þau löðuðust að henni. Ég held að hugur hennar hafi staðið til að eignast fjöldann allan af börnum og kannski rættist það að miklu leyti í okkur öllum börnunum sem hún sýndi svo mikla alúð og elsku. Sjálf eignaðist Anna tvo syni með Baldri eiginmanni sínum, Helga Einar og Ásbjörn. Hafi einhver börn verið velkomin í þennan heim voru það synir Önnu og Baldurs. Anna sá ekki sólina fyrir þeim og segja má að eftir að þeir fæddust hafi allt hennar líf snúist um þá og fjölskylduna. Hún hafði samt áfram pláss fyrir okkur hina krakkana sem alltaf voru velkom- in í Hófgerði eða Vogatungu í Kópavogi þar sem þau Baldur bjuggu. Mér var Anna sem önnur móðir þegar ég var að alast upp og fram á fullorðinsár og er það nú við leið- arlok þakkað af heilum hug. Það var lán beggja þegar þau Anna frænka mín og Baldur Helgason bundust tryggðaböndum og ákváðu að ganga lífsveginn sam- an. Þeirri vegferð lauk ekki fyrr en 60 árum síðar og nú hafa þau sameinast á ný eftir níu mánaða aðskilnað. Á síðasta fundi okkar Önnu fyrir stuttu ræddum við bæði í gamni og alvöru um að Baldur væri að kalla hana til sín. Ég er þakklát Almættinu fyrir þessa síðustu góðu og fallegu samverustund með Önnu frænku sem bættist við allar góðu minn- ingarnar frá fyrri tíð. Guð geymi Önnu frænku á nýju tilverustigi. Þeim Helga Einari og Ásbirni votta ég samúð og fjölskyldunni allri. Lára Björnsdóttir. Hægt og hljótt ganga Guðs vinir. Stillt og rótt ganga stríðendur miskunnar og mildi og merki ber hljóðrar dáðar yfir háværan storð. Ennþá innar ennþá hljóðar gengur góð kona götu sinnar spor merkt í mannshjarta merkt í hjörtu barna, skrifuð öll og skráð í skjölum Guðs. Því að í lífsbók lifandi Drottins er afritabók athafna vorra. Lokin upp að lyktum og látin svara hver var athöfn vor ósk, vild og gerð. (Sigurður Einarsson.) Fallega frænka mín með glettna blikið í augunum er látin, hún Anna föðursystir mín. Sú síð- asta af systkinunum frá Ekru í Stövarfirði. Ég fæddist í höfuðborginni 1951, flutti beint í Kópavog í aust- urbæinn til foreldra minna og þriggja systra sem við áttum fyrir í glænýtt hús. Um sama leyti byggði Anna föðursystir mín hús í vesturbæ Kópavogs með sínum mönnum og bjó þar framan af minni ævi. Þangað fór ég án þess að láta vita margoft, bæði átti hún heima- ræktuð jarðarber og tvo frændur mína, Helga Einar og Ásbjörn, sem mér fannst mjög skemmti- legir og spennandi. Ég man eftir stóra bílskúrnum með gryfjunni sem þeir opinberuðu fyrir mér. Alltaf tók hún mér opnum örm- um þegar ég mætti, fór um mig höndum eins og ég væri prins- essa, en lét mig svo vita að hún myndi hringja í mömmu svo hún vissi hvar ég væri án leyfis. Þessi fallega frænka mín var ómissandi fyrir mig sem barn, hún var mér svo góð. Hún reyndist mér alltaf sem minn besti vinur og á ég henni margt að þakka, ég man þegar Gestur minn hálsbrotnaði og ég þurfti að dvelja löngum tímum hjá honum á sjúkrahúsinu, þá gætti hún barnanna minna svo ég gæti verið hjá Gesti án áhyggja og dvöldu þau nokkrum sinnum í viku hjá henni meðan erfiðleik- arnir gengu yfir. Hún var þeim sem besta amma. Árin liðu og hún sýndi alltaf af sér þennan dugnað og kærleika sem Ekrusystkinin hlutu í vöggu- gjöf og gáfu af sér alla tíð til sam- ferðafólks síns. Öll miklir gleði- gjafar og bestu vinir mínir. Farðu í Guðs friði, kæra frænka mín. Ég votta frændum mínum, Helga Einari, Ásbirni og þeirra afkomendum samúð mína. Gunnvör Braga Björnsdóttir. Hugur minn leitar til Önnu frænku minnar og móðursystur, sem ég minnist með þakklæti. Ég hef mjúka sjalið, sem hún gaf mér vafið hlýtt um hálsinn. Hún hekl- aði handa mér annað sjal fyrir mörgum árum, sem ég hef notað mikið. Þetta eru dæmi um þær mörgu góðu gjafir, sem ég fékk frá Önnu frænku síðan ég var barn. Anna var barnelsk kona, þótti vænt um öll börn og var við- kvæm fyrir þeim. Þess vegna lað- aðist ég að henni. Það var gaman að heyra Önnu tala um börnin sín, barnabörnin og barnabarnabörn- in, sem hún elskaði mikið. Það var líka ánægjulegt að heyra hve blíð- lega hún nefndi nafn mannsins síns, Baldurs. Hún var góð eiginkona, sem annaðist manninn sinn af miklum kærleik í langtíma veikindum hans og sá til að hann hlyti hina bestu hjálp. Mér þótti vænt um Önnu og Baldur. Anna hafði glað- legan hlátur, sem ekki svo margir hafa og það var gaman að heyra hann. Hann smitaði af sér og létti manni í lund. Við Anna höfum ver- ið nánar frænkur og vinkonur og haft reglubundið samband ekki síst seinni árin, þótt við höfum bú- ið í sitthvoru landinu. Við höfum hringt hvor í aðra, skrifast á, talað á skype, því hún hafði lært að nota tölvu og við höfum hist þegar ég hef komið til Íslands. Anna var lífsglöð og hress og ég heyrði hana aldrei kvarta. Að- spurð hvernig henni liði svaraði hún alltaf að hún hefði það gott. Hún var alltaf ungleg og létt á fæti með fallegt bros og kátínu í svipnum. Það var gaman að hlæja með henni og vera nálægt henni. Í ungdæmi sínu var hún íþrótta- stúlka og var ein af þeim sem stigu skautadans á Tjörninni. Anna gaf mér margar fallegar bækur. Ein af þeim er Sumar- landið. Við ræddum stundum um framhaldslífið. Hún hafði örugga og fallega sýn um paradís, fagra fyrirheitna landið okkar allra. Þegar mamma mín dó sagði Anna við mig að pabbi hefði tekið á móti henni með fangið fullt af blómum á ströndinni fögru. Mér þótti vænt um Önnu frænku og sakna hennar mikið, ég sakna hennar glaðlega hláturs. Ég ætla að reyna að temja mér hann, hugsa til hennar og gleðja aðra með honum. Þar til við hittumst í landinu fagra. Með þökkum og kærleika til Önnu frænku. Guðbjörg Ólöf Björnsdóttir. Anna Valgerður Einarsdóttir ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN GUÐJÓNSSON framkvæmdastjóri, Skúlagötu 40B, Reykjavík, lést á Landakotsspítala mánudaginn 16. desember. Jóhannes Kristinsson, Þorbjörg Jónsdóttir, Elín Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Sonur minn og bróðir okkar, HALLDÓR SÆMUNDSSON frá Patreksfirði, andaðist sunnudaginn 15. desember í Fögruhlíð, Skálatúni. Aðalheiður Kolbeins, systkini og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskuleg móðir okkar og systir, LAUFEY JENSDÓTTIR, dvalarheimilinu Grund við Hringbraut, áður búsett á Ægisíðu 86, er látin. Steinunn Pálsdóttir, Guðmundur Pálsson, Vilhjálmur Jónsson, Vigdís Jónsdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir, Anton Helgi Jónsson. ✝ Okkar yndislega móðir, tengdamóðir, amma, langamma og systir, ALLA MARGRÉT GÍSLADÓTTIR WHITE, fædd 28. desember 1928 í Miðhúsum í Garði, ólst upp á Fjölnisvegi 18 í Reykjavík, lést á heimili sínu í Sacramento, Kaliforníu, 29. nóvember. Eric, Sigríður Anna, Saga og Brynja, Julie Ann, Casey og Austin, Svava, Ingibjörg, Eyjólfur og Ingibjörg Anna Gíslabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR SIGURÐSSON, fv. prentsmiðjustjóri, Mávahlíð 4, Reykjavík, lést aðfaranótt laugardagsins 7. desember á Landspítalanum. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 27. desember kl. 15.00. Sigurður Egill Garðarsson, Karl Friðrik Garðarsson, Áslaug Sif Guðjónsdóttir, Guðrún Garðarsdóttir, Snæbjörn Kristjánsson, Gunnlaugur Garðarsson, Sigríður Halldórsdóttir, Kristín Fríða Garðarsdóttir, Ólafur Fannberg, Anna María Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.