Morgunblaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 50
50 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2013
Glerárgata 7, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Presonus heimastúdíó
39.990
Blásturshljóðfæri fráYAMAHAogOdyssey
Við höfumgræjurnar fyrir þig
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ættir að leyfa ljóðinu að þrosk-
ast hjá þér og sækja síðan í það kraft til
nýrra verka. Vertu samt viss um að þú sért
með allar upplýsingar. Þér eru allir vegir
færir og þú veist það innst inni.
20. apríl - 20. maí
Naut Peningavandræði og ágreiningur við
ástvin koma hugsanlega upp í dag. Spenn-
andi svið sem vert er að kanna eru fast-
eignir og lítil fyrirtæki.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft á óvenjumikilli hvíld að
halda vegna óvissu og breytinga á heim-
ilinu. Vertu manneskja til að taka afleið-
ingum gjörða þinna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Flýttu þér hægt, því flas er sjaldn-
ast til fagnaðar. Þú freistast til að sýna fjöl-
skyldu eða ættingjum of mikið örlæti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú ert alltaf að búast við vandræð-
um leita þau þig uppi. Finndu þér tóm-
stundagaman sem þú getur látið lyfta þér
upp í frítíma þínum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu það ekki draga úr þér kjarkinn
þótt einhver meiningarmunur komi upp.
Ekki rugla því saman að hjálpa til eða fórna
sér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Spáðu í þetta: Barátta þín er fyrst og
fremst við sjálfa/n þig. Gefðu málinu þann
tíma sem þarf til að það leysist farsællega.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi og lítilfjörlegustu atvik geta leitt til
styrjalda. Fólk á sömu línu og þú elskar að
heyra nýjustu furðukenningarnar þínar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Eina rétta leiðin til að ráðast í
stórvirki er að ganga til þeirra með já-
kvæðu hugarfari. Notaðu tækifærið og
reyndu að bæta samband þitt við þína nán-
ustu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt þér finnist margt á móti
þér skaltu varast að bregðast of harkalega
við. Láttu svo annað lönd og leið en
stefndu ótrauð/ur að takmarkinu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er eitthvert agaleysi að hrjá
þig svo það er nauðsynlegt að þú spýtir í
lófana og takir þér tak. Taktu þér frí, ef
tækifæri er til, en gefðu þér tíma til þess
að svara þeim sem til þín leita.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gleymdu vonbrigðum þínum og
vertu bein/n í baki. Kynntu mál þitt af hóg-
værð og þá færðu fólk til að hlusta á þig.
Ekki er allt gull sem glóir.
Vísnahorni barst gott bréf fráBirni Jóhanni Björnssyni. Þar
skilar hann síðbúinni kveðju til Pebl
frá tengdaföður sínum, Trausta
Pálssyni á Sauðárkróki, áður bónda
á Laufskálum í Hjaltadal, „með
þökkum fyrir áritaða og snjalla
Limrubókina!“ Eftir lesturinn datt
honum í hug þessi limra:
Hún var næstum frá Njarðvík hún Kata,
hún naut sín best án fata.
Hún var svo villt,
svo viljug og tryllt
sem væri hún átta gata.
Síðan var hann að lesa limru fyrir
einhverjum árum og þá fæddist
þessi orðaleikur í limruformi:
Í Þorlákshöfn þar voru frakkar,
í þeim tveir blóðheitir Frakkar
þar var ein mær,
nei, þær voru tvær,
en þær voru helvíti frakkar.
Síðan segir Björn Jóhann frá því,
að Trausti hafi um árið unnið við
endurbætur á fjallaskála á Tungna-
hryggsjökli á Tröllaskaga, sem eink-
um var notaður af gangnamönnum
úr Svarfaðardal. Með honum við
verkið var Erlingur Garðarsson frá
Neðra-Ási í Hjaltadal. Trausti orti:
Með allskonar ærslum og glamri
var unnið með sög og með hamri
en það er eins víst
eins og veröldin snýst
að það verður hér vöntun á kamri.
Björn Jóhann bætir því við, að eft-
ir að þeim Svarfdælingum barst
limran til eyrna fóru þeir að huga að
kamri við skálann!
Á sunnudaginn var skrifað í Leir-
inn „Lögreglan stal hnetum drottn-
ingar“. Davíð Hjálmar Haraldsson
orti:
Buckingham-slotið með gluggalaus göng
er geigvænlegt koldimma vetur.
Laumast þar verðir og lögregla svöng
er langar í forboðnar hnetur.
Hinir forboðnu ávextir eru alltaf
freistandi. Faðir minn Lárus H.
Blöndal orti einhvern tíma:
Eva hét hið fyrsta fljóð
sem fjandinn skaut til orðum
en ósköp þótti Adam góð
eplin hennar forðum.
Ármann Þorgrímsson orti:
Kvíslar unn við kaldan stein
með kossum örlög spinnur
en nóttin sefur alltaf ein
því ástvin hvergi finnur.
Og þá er það húsgangurinn:
Eg hef setið uppdubbuð
allan þennan vetur
og beðið þess að góður guð
gefi mér hann Pétur.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr gangnakofa Svarfdæla
í Buckingham-slotið
Í klípu
„EKKI OFHUGSA ÞETTA,
FARÐU BARA EFTIR ÞVÍ SEM
BJÓRVÖMBIN SEGIR ÞÉR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF EITTHVAÐ KEMUR FYRIR FRÆNDA
MINN, RAGNAR, Á AUÐUR MINN AÐ RENNA
TIL LÍFVARÐAR HANS, LÚLLA STÓRA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... eldur sem ekkert
getur slökkt.
SNÖKT! Æ Æ! VÆL!
... ENGINN LES GULLBRÁ OG BIRNINA
ÞRJÁ EINS VEL OG HELGA!
ÞAÐ ER
RÉTT,
HRÓLFUR ...
ÞETTA ER
GRIMM VERÖLD! ÉG KENNI HENNI ALLAVEGA UM!Víkverji hlustar gjarnan ámorgunþátt Bylgjunnar, Í bítið,
og heyrir þar mörg gullkornin. Í
fyrradag var til dæmis endurfluttur
bútur úr ræðu Sigríðar Ingadóttur,
þingmanns Samfylkingar, þar sem
hún hreinlega missti stjórn á skapi
sínu í ræðustól, og í gærmorgun lýsti
Gissur Sigurðsson fréttamaður því
meistaralega hvernig borgarfull-
trúar væru eins og lélegir skák-
menn.
x x x
Fyrir nokkru rifjaði Gissur upp aðrútur tepptu gjarnan þessar fáu
götur sem mætti aka um í miðborg-
inni og ljóst væri að eitthvað mikið
væri að skipulaginu. Í gær furðaði
hann sig á tillögu borgarfulltrúa um
að banna akstur þessara stóru bif-
reiða í miðborginni og sagði ljóst að
þeir kynnu ekki að tefla. Góðir skák-
menn hugsuðu marga leiki fram í
tímann, en lélegir skákmenn hugs-
uðu bara um einn leik í einu og væru
því alltaf á byrjunarreit, þyrftu alltaf
að hugsa stöðuna upp á nýtt. Ekki
gengi að setja farþega, sem ætluðu á
hótel í miðborginni, út á Hlemmi og
segja þeim að ganga þaðan með
töskurnar. Skyldu borgarfulltrúar
hafa áttað sig á þessu?
x x x
Þegar snjóar hefur stefna borgar-stjóra á líðandi kjörtímabili
gjarnan verið sú að bíða eftir að
hann rigni. En stundum hafa gang-
stígar verið ruddir og sandbornir og
má ætla að sá siður hafi verið tekinn
upp á ný eftir að borgarfulltrúar eða
einhverjir nátengdir þeim byrjuðu
að hrasa á hættulegum gangstígum í
tíma og ótíma. Þar sem tekið hefur
verið til hendi hefur tekist vel til en
betur má ef duga skal. Það skilar
aldrei árangri að hreyfa aðeins eitt
peð á skákborðinu.
x x x
Annars nennir Víkverji ekki aðnudda í borgarfulltrúum enda
nógu margir til þess. Hann vill frek-
ar hrósa Baggalúti fyrir góða jóla-
tónleika og efast ekki um að þar
kann Karl Sigurðsson borgarfulltrúi
betur mannganginn en í borgar-
stjórn. víkverji@mbl.is
Víkverji
En helgið Krist sem Drottin í hjörtum
ykkar. Verið ætíð reiðubúin að svara
hverjum manni sem krefst raka fyrir
voninni sem þið eigið.
(Fyrra Pétursbréf 3:15)