Morgunblaðið - 20.12.2013, Page 60
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 354. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Þjóðagrínið vekur heimsathygli
2. Atvinnulaus og vann 70 milljónir
3. Víðigerði gjaldþrota og lokað
4. „Ég var valin fallegust í heimi …“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Söngvarinn Kristján Jóhannesson
hlýtur viðurkenningu úr styrktarsjóði
Önnu K. Nordal. Sjóðnum ber að
styrkja efnilega tónlistarnema í söng
og fíólínspili. Kristján hefur fram-
haldsnám sitt í söng í janúar nk. við
Konservatoríið í Vínarborg, þar sem
kennari hans verður Uta Schwabe.
Hlaut viðurkenningu
Önnu K. Nordal
Bedroom
Community-
útgáfan er, líkt og
undanfarin ár, í
hátíðarskapi og
hefur af því tilefni
gefið út jólamixið
Yule sem er frítt
til niðurhals með
hverri keyptri
plötu á heimasíðu útgáfunnar. Meðal
höfunda efnis eru James McVinnie &
Nadia Sirota, Valgeir Sigurðsson og
Daníel Bjarnason.
Jólamixið Yule frá
Bedroom Community
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari
og Peter Maté píanóleikari úr Tríói
Reykjavíkur koma fram á hádegistón-
leikum á Kjarvalsstöðum í dag kl.
12.15 ásamt Huldu Björk Garðars-
dóttur sópran. Á efn-
isskránni verða
verk eftir Mozart,
Corelli, Bach og
Strauss. Aðgang-
ur er ókeypis og
eru allir vel-
komnir.
Hamingja, hátíðleiki
og hugarró í hádegi
Á laugardag Norðaustan 10-18 m/s norðvestantil og snjókoma.
Hægari vindur í öðrum landshlutum, víða él en skúrir með austur-
ströndinni. Frostlaust með ströndinni og vægt inn til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austanátt síðdegis með snjókomu
sunnan- og austanlands, en rigningu með suðurströndinni. Austan
10-18 m/s í kvöld. Hiti kringum frostmark.
VEÐUR
Handbolti, fimleikar og lyft-
ingar eru í hvað mestri sókn
hérlendis samkvæmt árlegu
yfirliti ÍSÍ um iðkendafjölda
hjá sérsamböndum þess.
Handboltinn bætti við sig
flestum iðkendum árið 2012
eða 711 og er aukningin
nokkuð jöfn þegar litið er til
kynjanna og aldurs. Fim-
leikar bættu við sig 560 iðk-
endum eftir að hafa fengið
tæplega 1.000 nýja iðk-
endur árið áður. »4
Handbolti, fim-
leikar og lyftingar
Rut Jónsdóttir, landsliðskona í hand-
knattleik, þarf að taka sér frí frá
íþróttinni næstu tíu mánuðina eða
svo vegna alvarlegra meiðsla í öxl.
Hún fer í aðgerð strax eftir áramótin,
leikur ekki meira með Tvis Holstebro
eða íslenska landsliðinu í vetur og
vor, og óvíst er að
hún verði tilbúin
þegar næsta
keppnistímabil
hefst. »1
Rut verður frá keppni
næstu tíu mánuðina
„Á síðustu árum hafa liðin í deildinni ekki átt
erindi í Fram og Val. Þar af leiðandi kom það
mjög á óvart þegar okkur tókst að slá Val út í
úrslitakeppninni í vor. Síðan höfum við haldið
okkar striki en það skyldi enginn afskrifa
Valsliðið, langt í frá, það á bara eftir að
styrkjast á næstu vikum og mánuðum,“ segir
Rakel Dögg Bragadóttir, leikmaður Stjörn-
unnar og íslenska landsliðsins, í ítarlegu við-
tali um kvennadeildina í handbolta. »2-3
Stjarnan efst en enginn
skyldi afskrifa Val
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Viðurkenningin kom mér algjör-
lega í opna skjöldu og það var ein-
stök upplifun að vera í þingsalnum,
þar sem þingmenn stóðu upp og
klöppuðu mér lof í lófa, mikill heið-
ur,“ segir Vestur-Íslendingurinn
Robert T. Kristjanson, fiskimaður á
Winnipegvatni í Kanada.
Fylkisstjórn Manitoba heiðraði
Robert T., Bobby eins og hann er
líka gjarnan kallaður, í tilefni átt-
ræðisafmælis hans 7. desember sl.
fyrir dugnað hans við að verjast
mengun í Winnipegvatni og baráttu
fyrir sjálfbærum veiðum.
Peter Bjornson, húsnæðis- og fé-
lagsmálaráðherra, ávarpaði Bobby
og Sigurrós, eiginkonu hans, á þing-
fundi í þinghúsinu í Winnipeg. Hann
gat þess að Robert hefði haft fisk-
veiðar að atvinnu í 65 ár, byrjað 1948
og væri enn að. „Hann hefur verið
öðrum í samfélaginu við vatnið
hvatning í áraraðir,“ sagði Peter,
sem er frá Gimli eins og Bobby og
hefur verið þingmaður svæðisins og
ráðherra síðan 2003.
Sendiherra fiskimanna
„Robert er þekktur víða um heim
sem sendiherra fiskimanna á Winni-
pegvatni,“ sagði Peter og benti á að
hann hefði verið sæmdur afmælis-
orðu Bretadrottningar, The Queen’s
Diamond Jubilee Medal, á 79 ára af-
mæli hans í fyrra. Ástríða hans hefði
verið verðlaunuð, framkoma, árang-
ur og lífsmáti, lífsmáti fiskimannsins
á Winnipegvatni.
„Ég er ekki þekktur fyrir að sitja
hljóður úti í horni og þessi viður-
kenning, eins og aðrar, sýnir að ég
hef gert eitthvað rétt,“ sagði Bobby í
gær áður en hann hélt út á ísinn.
Vegna athafnarinnar missti hann
dag úr vetrarveiðunum, sem hófust í
lok nóvember. „Það er mikill fiskur
en það er óvenjulega mikill snjór á
ísnum og hann gerir okkur erfitt fyr-
ir,“ segir Bobby og bætir við að
kuldinn hafi líka verið óvenjulega
mikill. Hann var -35 gráður með
vindkælingu í gær og segir Bobby að
rakinn sé meiri en áður.
Robert T. er þriðji ættliðurinn í
beinan karllegg til þess að hafa af-
komu af fiskveiðum í Winnipegvatni,
en Peter benti á að sonur hans og
sonarsynir hefðu fetað í fótsporin og
því væru enn þrír ættliðir úti á vatn-
inu. Robert T. væri virtur fyrir bar-
áttu fyrir mikilvægi umhverfis-
verndar enda ötull talsmaður
ómengaðra vatna og sjálfbærni fisk-
veiða með kynslóðir framtíðarinnar í
huga. „Hann er fyrirmynd, óþreyt-
andi talsmaður Winnipegvatns og
hvatning til okkar allra,“ sagði Peter
Bjornson.
Bobby, fiskurinn og vatnið
Fylkisstjórn
Manitoba heiðrar
Robert T.
Viðurkenning Peter Bjornson, Robert T. Kristjanson og Sigurrós Kristjanson í þinghúsinu í Winnipeg.
Morgunblaðið/Kristinn
Lífsbjörgin Bobby til vinstri í kunnuglegri stellingu á ísnum á vatninu.
VEÐUR » 8 www.mbl.is