Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.1. 2014 Ragnheiður Gunnarsdóttir segir frá syni sínum Kjartani, 17 ára einstökum dreng, í viðtali í blaðinu í dag. Hún lýsir baráttu við kerfi sem tekur ekki nægilega vel á málum þegar þarfir ein- staklinga eru flóknar líkt og í til- viki sonar hennar. Saga Kjartans er einstök og þarfir hans eru einstakar og eins og móðir hans bendir á þá þarf þjónustan sem hann fær að miðast við það. Ein af ábendingunum sem Ragnheiður kemur með er sér- lega athygliverð. Hún nefnir und- arlega orðnotkun sem við höfum tamið okkur í samhengi við ein- staklinga sem passa ekki að öllu leyti við forskrift samfélagsins að því hvað er að vera venjulegur. Þegar kemur að umræðu um það við fagaðila hvers konar heimili sonur hennar geti átt möguleika á að búa sér í framtíðinni er jafnan notað kerfismál og talað um „bú- setuúrræði“ í stað þess að kalla þetta einfaldlega heimili. Þetta er góð ábending. Af hverju þarf „venjulegt fólk“ heimili en þeir sem hafa aðrar þarfir og eru ef til vill með ýmsar greiningar eða sjúkdóma eiga að þurfa svokölluð „úrræði“? Öllu má nú nafn gefa. Bryndís Björgvinsdóttir er þjóðfræðingur sem fer óhefð- bundnar leiðir í að sinna þörf sinni til að skilja samfélagið. Hún safn- ar bröndurum og flökkusögum sem hún segir oftar en ekki end- urspegla ótta samfélags við hið óþekkta. Fordóma og kvenfyrir- litningu segir hún oft leiðarstef í bröndurum. Hún er í viðtali í blaðinu og segir frá rannsóknum sínum. Helgin er framundan og þorr- inn eflaust blótaður víða um land- ið. Þorramaturinn er ekki allra en vonandi fá allir gott í gogginn, hvort sem það er súrsað, saltað, reykt eða bara hrátt. Góða helgi. RABBIÐ Of einstakur fyrir kerfið Eyrún Magnúsdóttir Hjólreiðamanninum sem átti leið um Ánanaust í vesturborginni í vikunni leið eflaust eins og fylgst væri með honum. Stóreyga frökenin á veggnum virðist þó ekki kippa sér mikið upp við ferðir hans, hún er niðursokkin í eigin hugsanir og horfir dreymin fram á veginn. Fleiri og fleiri kjósa að nota reiðhjól til að komast á milli staða í borginni. Klakinn gerir hjólreiðafólki víða erfitt fyrir en með réttum útbúnaði hjólfákanna er hægt að komast yfir flestar hindranir. Eftir því sem hjólastígum fjölgar og samgönguforkólfar ríkis og sveitarfélaga taka í auknum mæli mið af fjölbreyttum farartækjum verður sífellt einfaldara að komast leiðar sinnar hjólandi. AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg HJÓLAÐ UNDIR EFTIRLITI Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Stjörnuleikshátíð KKÍ 2014. Hvar? Ásvöllum Hafnarfirði. Hvenær? Laugardag kl. 13-17. Nánar: Stjörnuleikur KKÍ. Frítt inn. Körfuboltafjör Hvað? Undirstaða – Katrín Sigurðardóttir. Hvar? Hafnarhúsi. Hvenær? Laugardag kl. 16. Nánar: Verkið var framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins á síðasta ári. Tvíæringurinn Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Fjölskyldutónleikar með Ellen. Hvar? Café Rósenberg. Hvenær? Laugardag kl. 21. Nánar: Ellen Kristjáns og Eyþór Gunn- ars spila og syngja með dætrum sínum og góðum gestum. Saman á sviði Hvað? Listasýning Guðmundar Ár- manns. Hvar? Populus tre- mula, Kaupvangs- stræti 12, Akureyri. Hvenær? Laugardag og sunnudag kl. 14-17. Nánar: Guðmundur Ármann sýnir olíumálverk, vatnslitamyndir og þrívíð verk aðeins þessa einu helgi. Málaður Eyjafjörður Hvað? Þetta vilja börnin sjá. Hvar? Gerðubergi. Hvenær? Sunnudag kl. 14. Nánar: Sýndar verða myndskreytingar í íslenskum barnabókum sem gefnar voru út á árinu 2013. Aðgangur ókeypis. Myndskreytt fyrir börn Hvað? Opnun Psychotronics eftir Bryndísi Hrönn Ragnarsdóttur. Hvar? Nýlistasafninu. Hvenær? Laugardag kl. 17. Nánar: Sýningin er framhald ferlis í list- sköpun Bryndísar, þar sem hún fæst við mörk efnis og túlkun rýmis. Landamæri hins efnislega * Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.