Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Blaðsíða 22
Þ átturinn er einn vinsælasti sjónvarps- þáttur allra tíma og er framleiddur víðs vegar um heim. Alls hafa verið framleiddar fimmtán seríur af þætt- inum í bandarísku sjónvarpi en þar hóf hann göngu sína árið 2004. Síðan hafa þúsundir einstaklinga hvaðanæva úr heiminum farið í gegnum heilsuferlið sem hefur í kjölfarið gjörbreytt lífsháttum þeirra. Þátturinn er keppni í þyngdartapi og í upphafi hans eru allir þátttakendur í lélegu líkamlegu formi. Heilsuferlið sem þátttak- endur ganga síðar í gegnum er vottað af læknum, sálfræðingum og næringarfræð- ingum að sögn framleiðenda þáttanna. Auðvelt er að hrífast með þáttunum enda bjóða þeir upp á allt sem góðir raunveru- leikaþættir hafa upp á að bjóða og jafnvel meira til. Takmark þáttanna er göfugt (ólíkt flestum öðrum raunveruleikaþáttum) því framleiðsla þeirra gengur ekki eingöngu út á að græða peninga heldur er tilgangurinn einnig að hvetja fólk til að lifa heilsu- samlegra lífi. Í þokkabót er dagskrárgerðin krydduð með tilfinningaflækjum, drama og æsispennandi útilokunarkeppni sem lætur engan áhorfanda ósnortinn. Öfgafull aðferðafræði Þrátt fyrir mikla velgengni þáttanna hafa ýmsir erlendir læknar, næringarfræðingar og sálfræðingar varpað fram efasemdum varðandi þá aðferðafræði sem þættirnir boða. Margir segja ferlið vera of öfgafullt til að vera hollt fyrir líkamann og benda á ýmsar slæmar afleiðingar þess að borða lítið og æfa í marga klukkutíma á dag á hverjum degi. Ýmsir sérfræðingar telja þáttinn leggja of mikla áherslu á kílóafjölda í staðinn fyrir að taka mið að ólíkri líkamsbyggingu fólks. Bent hefur verið á að keppendur geta minnkað líkamsþyngd sína með því að brenna vöðvum og einnig með því að losa lík- amann við vatn sem er langt frá því að vera heilsusamlegt. Þá hafa ýmsir stigið fram og lýst yfir áhyggjum sínum yfir því að hags- munir framleiðanda geti haft meira vægi heldur en hagsmunir þátttakenda. Of mikið þyngdartap á skömmum tíma getur haft ýmsar slæmar afleiðingar og þar á meðal alvarleg áhrif á hjartað að sögn bandarískra sérfræðinga. „Ég bíð eftir því að einhver fái hjartaáfall í þættinum,“ sagði dr. Charles Burant, prófessor í lyflæknisfræði við Háskólann í Michigan, í viðtali við The New York Times árið 2009. Hingað til hefur þó enginn fengið hjartaáfall í þættinum og fjölmargir aðdáendur segja þáttinn þvert á móti hafa bjargað lífi sínu. Pissaði blóði í þættinum Þegar fyrri sigurvegarar þáttanna komu saman fyrir nokkru þá mættu allir til leiks nema sigurvegari fyrstu keppninnar, Ryan C. Benson. Hann missti 55 kg í þættinum á sínum tíma en bætti nánast allri þyngdinni aftur á sig stuttu síðar. Þá viðurkenndi hann opinberlega að hafa sleppt að drekka vökva og borða mat í langan tíma til að létta sig áður en hann var vigtaður í þættinum. Hann sagði margt af því sem þarna fór fram ekki vera heilsusamlegt og viðurkenndi að verð- launaféð skipti hann gríðarlega miklu máli. Þegar líða fór á keppnina var hann farinn að pissa blóði sökum þess að hann var að nýta sér óheilbrigðar leiðir til að ná fram miklu þyngdartapi. Þá eru dæmi um að keppendur hafi verið fluttir á spítala eftir að hafa dottið niður við keppni í þættinum. Vika var ekki vika í raun Að minnsta kosti einn annar fyrrverandi keppandi, Kai Hibbard, hefur komið fram og játað að keppendur nýti óheilsusamlegar að- ferðir til að létta sig. Hibbard sem missti tæp 54 kg í þriðju seríu sagði að hún hefði ásamt fleirum drukkið eins lítið vatn og hægt var í 24 klukkustundir áður en vigtun fór fram. Þá sagði hún keppendur hafa klætt sig upp og stundað æfingar í þykkum fötum þegar slökkt var á myndavélunum. Hibbord sagði í viðtali við The morning Show að hún vildi ekki taka þátt í tálsýn sem blekkti fólk. Hún sagði framleiðendur þáttanna nota ýmsar aðferðir til að auka þyngdartap og skapa umhverfi sem ýtti und- ir hegðun í ætt við átröskun. Hún hélt því einnig fram að ein vika í þættinum hefði í raun og veru ekki verið ein vika heldur lengri tími. Slíkar blekkingar gæfu fólki heima í stofu falskar vonir að hennar mati. Þá lagði hún áherslu á að fólk gerði sér grein fyrir að þetta væri í raun og veru sjón- varpsþáttur en ekki heilsubúðir sem væru myndaðar af hreinni tilviljun. Hún hafði bætt á sig 14 kílóum aftur tveimur vikum eftir að þættinum lauk, að- allega með því að drekka vatn að eigin sögn. Nú hefur hún náð aftur 2⁄3 hlutum af þeirri þyngd sem hún missti í þættinum. Slíkar sögur eru ekkert einsdæmi að mati Benson en hann segir fjölda þátttakenda hafa bætt á sig mörgum kílóum eftir að þeir héldu aftur út í daglega lífið. Ströng þagnarskylda Blaðið The New York Times greindi frá því að keppendur þyrftu að skrifa undir samn- inga sem þykja strangir í heimi raunveru- leikasjónvarps. Blaðið átti erfitt með að fá fyrri keppendur til að tjá sig opinberlega um þátttöku sína í þáttunum. Það vissi um stað- fest dæmi þar sem framleiðendur þáttanna sendu fyrrverandi þátttakendum tölvupóst til að minna þá á alvarlegar afleiðingar þess að tala við blaðamenn án leyfis. Samkvæmt SJÓNVARPSÞÁTTURINN „THE BIGGEST LOSER“ ER KOMINN TIL LANDSINS Vinsæll og umdeildur BANDARÍSKI RAUNVERULEIKAÞÁTTURINN „THE BIGGEST LOSER“ HÓF GÖNGU SÍNA Á SJÓNVARPSSTÖÐINNI SKJÁ EINUM Í VIKUNNI. ÞÁTTURINN HEFUR FARIÐ SIGURFÖR UM HEIMINN SÍÐUSTU ÁR EN ER ENGU AÐ SÍÐUR UMDEILDUR AF ÝMSUM ÁSTÆÐUM. VIÐ SKOÐUM HVERS VEGNA. Jón Heiðar Gunnarsson jonheidar@mbl.is Íslensku keppendurnir vógu samanlagt 1.803,8 kg er tökur hófust. Alls sóttu 1.300 Íslendingar um að komast að í þættinum en 12 hrepptu hnossið. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.1. 2014 Heilsa og hreyfing Það eiga allir að kunna að framkvæma hné- beygjur að sögn Fannars Karvels, íþrótta- fræðings og einkaþjálfara hjá Spörtu heilsu- rækt. „Ef þú kannt þær ekki þarftu að senda mér línu undir eins því um neyðartilfelli er að ræða! Til eru u.þ.b. 10.000 afbrigði af hné- beygjum og er það þó varfærnislegt mat, eitt þessara afbrigða er hin eilíflega skemmtilega blinda hnébeygja.“ Hann segir æfinguna auka styrk í þeim fæti sem staðið er á ásamt því að bæta jafnvægið. „Þegar þú hefur náð tökum æfingunni hættir fólk loksins að hlæja og fer að dást að þér. Ef þú treystir þér ekki alla leið í upphafi er gott að byrja á því að hafa augun opin en reyndu síðan að loka öðru og loks báðum.“ Fannar segir gott að framkvæma æfinguna a.m.k. 5-10 sinnum í einu á hvorum fæti. ÆFING VIKUNNAR Blindar hnébeygjur 1 Stattu í vinstri fótinn og lokaðu augunum(ef þú treystir þér til). 2 Beygðu þig í vinstra hné og teygðu báðarhendur í átt að vinstri fæti. 3 Snertu tærnar á vinstri fæti og reistu þigrólega við. Passaðu að beygja hnéð en ekki mjöðmina og halla þér fram. Morgunblaðið/Rósa Braga Líkamsrækt þarf ekki að vera flókin hávísindaleg aðgerð í samræmi við nýjustu kenningarnar frá heilsusérfræðingum. Mestu máli skiptir að hreyfa sig á hverjum degi. Einföld hreyfing á borð við göngutúr getur gert mikið gagn bæði fyrir andlegu og líkamlegu hliðina. Þá skemmir ekki fyrir að taka með sér góðan vin í túrinn og hlæja sem mest á meðan. Einföld líkamsrækt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.